Vikan - 25.02.1993, Qupperneq 37
VIÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR:
þaö sem hefur gerst hjá þér
sjálfri.
TILFINNINGAR ÞÍNAR
Þú ræöir um aö þú getir ekki
fyrirgefið honum en þú ræöir
ekkert um þær tilfinningar
sem eru að brjótast um í þér.
Þú ræöir ekkert um trúnaðar-
brestinn sem þó liggur á milli
línanna. Þú ræðir ekkert um
reiðina sem þó hlýtur aö
kvelja þig. Þú ræöir ekkert um
vangaveltur þínar um hvers
vegna hann fór út í framhjá-
hald og hvaö þaö hefur meö
þig aö gera og margt annað
sem hlýtur aö vera að brjótast
um í þér þessa stundina. Af
því ræð ég aö þú sért fyrst og
fremst upptekin af manninum
þínum og því aö fá hann til
þess aö velta sér upp úr at-
burðinum sem slíkum meö
þér, líklega í þeim tilgangi aö
finna enn meiri höggstaö á
honum og fá hann til aö hafa
enn meira samviskubit. í
sjálfu sér eru þetta ekkert ó-
eölileg viðbrögö en þú græöir
bara ekkert á þeim. Maöurinn
þinn getur í raun ekki gert
meira en þaö sem hann hefur
þegar gert, það er aö segja ef
þú heldur áfram á þessari
braut.
Aö vísu gæti hann orðið
enn aumari og jafnvel undir-
gefinn þér í sektakennd sinni
en ég tel afar hæpiö aö þú
yrðir nokkuö ánægðari meö
þaö. Þaö væri viss fróun fyrir
þig en framhaldið yrði það aö
þú yrðir mjög ófullnægð og
reyndar þiö bæði í hjónaband-
inu og þá er alveg eins gott
aö slíta þvi strax.
Sú leiö sem þú hefur valiö
er sem sagt ekki leið til þess
aö Ijúka málinu og koma því
út úr heiminum heldur leið til
þess aö láta annan vera sig-
urvegara í málinu og hinn tap-
ara. Maöurinn þinn vill greini-
lega ekki taka að sér tapara-
hlutverkiö og þér finnst ekki
sanngjarnt aö þaö lendi hjá
þér þar sem þú hefur ekki gert
neitt af þér. Þiö eruö þess
vegna patt, þiö komist ekki
lengra eftir þessari leiö.
AÐ GERA UPP
TILFINNINGAR
Leiðin, sem þiö þurfiö aö fara,
er að endurskapa traustiö,
endurskapa ástina og síðast
en ekki síst aö endurskapa
viröingu hans fyrir þér og virö-
ingu þína fyrir honum. Þetta
geriö þiö ekki meö því aö
keppa um titilinn „sigurvegari"
heldur meö því aö vinna ykkur
í sameiningu út úr þessum til-
finningum. Meö því aö ráöast
á hann ýtir þú honum frá þér.
Þú þarft í staðinn að toga
hann til þín, gera kröfur um aö
hann sýni þér og tilfinningum
þínum virðingu, sýna honum
aö þú sért tilbúin aö bera til
hans ást og virðingu, finnir þú
aö hann komi til móts viö þig.
Þess vegna þarft þú aö tala
um þig, horfast í augu við þín-
ar eigin tilfinningar. Þaö er
eina leiðin til þess að fá hann
til að horfast í augu viö þær.
Hvernig á hann aö geta horfst
í augu við þínar tilfinningar ef
þú gerir það ekki sjálf?
Hann getur ekki borið virð-
ingu fyrir þér ef þú sýnir engar
tilfinningar vegna þess sem
geröist. Þú verður aö sýna
honum reiöina, sárindin, van-
líöanina og aörar þær tilfinn-
ingar sem hjá þér bærast. Þú
verður aö ræöa viö hann um
efasemdir þínar um sjálfa þig
og hversu erfitt þú átt með aö
treysta honum þó þú viljir þaö.
Þú veröur aö hleypa honum
aö þér, leyfa honum að bæta
fyrir sektarkenndina meö því
að vera góöur viö þig og með
því aö hjálpa þér aö komast
yfir þessar tilfinningar meö því
að sýna þér ást, virðingu og
umhyggjusemi. Þú mátt ekki
halda honum fjarri þér eöa
banna honum aö taka út sekt-
arkenndina meö því aö sýna
þér ást. Þú átt þvert á móti að
gera kröfur um aö hann sýni
þetta svo aö þú getir farið aö
treysta á ást hans aftur.
ER ÞETTA HÆGT?
Já, þetta er hægt en forsendan
er sú aö þið viljið bæði raun-
verulega komast yfir þetta. Ef
svo er ekki er þetta ekki hægt.
Þú segir í bréfinu aö þú haldir
aö þú viljir halda í hjónabandiö.
Á þeirri setningu hef ég byggt
svar mitt. Ef þú kemst að raun
um að þú viljir ekki halda í þaö
skaltu ganga frá skilnaði sem
fyrst. Ekki kvelja þig eða ykkur
bæði lengi. Það sama gildir um
hann. Vill hann raunverulega
halda í hjónabandiö?
Það er sem sagt ekki hægt
samtímis aö byggja upp hjóna-
band og vera í samkeppni um
sigur og tap. Það er þaö sama
og aö opna faðminn fyrir mak-
anum meö annarri hendinni en
halda honum fjarri sér meö
hinni. Þess vegna kostar slík
uppbygging mikil átök fyrir ykk-
ur bæöi en einkum fyrir þig því
aö þú ert i leiðinni að fyrirgefa.
Ef þið eruö bæði tilbúin í þau
átök getur þetta gengið. Ann-
ars ekki.
Gangi ykkur vel,
Sigtryggur
AUGLÝSINGA-
OGIÐNAÐARLJÓSMYNDUN
1 S • T • U - D - 1 - O
\ w A G N U sj
| g~67 96-90 VIÐENG|ATEIG BfLL:985 _2 n 71 |
REYKJAVÍKUHVEGI 64 • HAFNARFIRÐI • SÍMI 652620 ■ HEIMASÍMI 52030
Hreinsum allan venjulegan fatnað með bestu vélum sem
fáanlegar eru í dag. Tökum í þvott fyrir fyrirtæki. Hreinsum
einnig gluggatjöld, svefnpoka, gólfmottur, tjöld o.fl.
HflBGHEIflSLUSTOFfl HÖLLU MflGHUSDÖTTUR
__________HIDIEITI7 - SÍHI6B5562_
HAR&NYRTISTOFAN
GRAMDAVEGI47 0 626162
Hársnyrting fyrir dömur og herra
Veitum
10% atslatt
viö afhendingu
þessa korts!
Stripur i ollum litum — hárlitur —
pcrmanent fyrir allar hárgerðir.
Úrvals hársnyrtivörur.
Opið á laugardögum.
tlrafnhildur Konráðsdóttir hárgreiðslumeistari
Þuriður tlildur Malldórsdóttir hársnyrtir
ZAKARA- <k HÁRqRemOíSTVFA
HVERFISGÖTU 62 -101 REYKJAVÍK
4. TBL. 1993 VIKAN 37