Vikan - 25.02.1993, Page 45
Miðaldra kaupsýslumaður frá
New York ferðaöist með konu
sinni til Parísar. Þegar þau höföu
rambaö um borgina í búðir og á
söfn fór hann einn dag út ein-
samall til að „slappa af“.
Strax og hann var laus við
betri helming sinn fór hann á
nokkra bari og komst í kynni við
gleðikonu nokkra. Það féll vel á
meö þeim þangað til semja átti
um verðið. Hún vildi fá tuttugu
dollara, en hann bauð tíu. Hún
neitaði að semja upp á þau kjör
svo að þau skildu án þess að
samkomulag yrði.
Um kvöldiö fór hann á veit-
ingastað meö konu sína og þar
rákust þau á gleðikonuna fögru
frá því fyrr um daginn.
- Ó, monsieur, sagði gleðikon-
an. - Þarna sérðu hvað þú færð
fyrir tíu dollara.
Óli vinnumaður var svo hás að
hann gat varla komið upp
nokkru orði og var spurður
hverju þetta sætti.
- Við fengum eitthvert duft
hjá dýralækninum fyrir hana
Brúnku og það átti að blása
því ofan í kok á henni.
- Nú, hvað kemur það þessu
við?
- Jú, hún blés fyrst.
Síðasta orðið:
- Pabbi, viltu hjálpa mér með
krossgátuna, mig vantar bara
síðasta orðiö.
- Þá skaltu heldur leita til
hennar móður þinnar, drengur
minn.
Frú Anna: Ég hef heyrt, herra
prófessor, að konan yðar hafi
fætt tvíbura. Eru það drengir
eða stúlkur.
Prófessorinn: Ef ég man rétt
er annað drengur en hitt stúlka
en það getur verið þveröfugt.
- Við verðum að fara út að borða
í dag, rafmagnið er bilað.
- En góða mín, við eldum við
gas.
- Jú, en dósahnífurinn er raf-
knúinn.
FINNDU 6 VILLUR
Finnið sex villur eða fleiri á milli mynda
nsAad | uu|iuo>f je uuunQBUJ 9 ‘Qi|eie6ep e uu(ujo>| je jnQnueuj jáu g ‘uujpoq je sujspunq
IIQls f ‘bjuáis je jeuunuo>| se|6 e 'ejeQjs je jeuunuo>| jblj z ‘UÁejq qjjba jnjeq wnQnu • \
STJÖRNUSPÁ
HRÚTURINN
21. mars-20. apríl
Hingað til hefur styrkur
til átaka verið eitt af aðals-
merkjum þínum. Á næstu dög-
um mun tilfinningasemi þín
aftur á móti koma sér vel. Þú
hefur tilhneigingu til að geyma
hlutina til morguns og slíkt gæti
komið sér illa.
NAUTIÐ
21. apríl-21. maí
Þú leggur áherslu á að
fá svör við áleitnum spurning-
um og það verður til þess að
einhverjir velja þig til forystu.
Vertu óhræddur við þennan
óvænta heiður. Segðu skoðun
þína umbúðalaust á ákveönu
máli einhvern næstu daga, það
er ekki víst að þú fáir annað
tækifæri.
WTVÍBURARNIR
22. maí-21. júní
Þú hefur áhyggjur af
stöðu þinni á vinnustað eða í
þjóðfélaginu yfirleitt. Það er
óþarfi ef þú hlustar á góð ráð
sem einhverjir leitast við að
gefa þér án þess þó að þú látir
á neinu bera. Hrifning kunn-
ingja þíns á ákveðnu fyrirbæri
gæti haft smitandi áhrif á þig.
/J§A KRABBINN
22. júní-23. júlí
Þér finnst tímasóun að
fullnægja formsatriðum en slíkt
mun samt reynast þér heilla-
vænlegt. Þú ert fullur orku sem
krefst útrásar. Haltu þig samt á
jörðinni eftir megni og taktu mið
af aðstæðum.
UÓNIÐ
24. júlí-23. ágúst
Ef þú lætur af ástríðu
þinni á ákveðnu sviöi færðu
svigrúm til að lifa lífinu í meira
jafnvægi. Þú þráir ekkert heit-
ara en frið og notalegt and-
rúmsloft. Tilhneiging þín til að
lifa í fortíðinni gæti komið í veg
fyrir að þú fáir þessar óskir þín-
ar uppfylltar.
MEYJAN
24. ágúst-23. sept.
Þér finnst vera komið
að uppgjöri í lífi þínu, hvort sem
hlutskipti þitt vekur hjá þér
ánægju eður ei. Gefðu þér tíma
til að hugsa málið. Stattu á þínu
gagnvart öðrum, það gefur
síður tilefni til misskilnings.
VOGIN
24. sept.- 23. október
Tilfinningalíf þitt er
fjörugt um þessar mundir. Það
gæti verið hvort sem er vegna
tilfinningasambands þíns við
aðra persónu eða einfaldlega
vegna ánægju þinnar með lífið
og tilveruna. Reyndu að finna
hið erfiða jafnvægi á milli þolin-
mæði þinnar og kapps.
SPORÐDREKINN
24. október-22. nóv.
Þú hefur tekið ýmsa
hluti of nærri þér að undan-
förnu. Því er tími til kominn að
taka lífinu með meiri ró og
slaka á þöndum taugum. Láttu
ímyndunaraflið ekki hlaupa
með þig í gönur, hvorki verald-
lega né tilfinningalega.
BOGMAÐURINN
23. nóv.-22. desember
Þú skalt láta það eftir
þér að njóta lífsins. Fólk mun
leggja eyrun við því sem þú
segir en farðu varlega með
upplýsingar sem þér hefur verið
trúað fyrir og ekki er ætlast til
að fari lengra.
STEINGEITIN
23. des.-20. janúar
Það virðist ýmislegt
spennandi á seyði í lífi þínu. Þú
stendur frammi fyrir ýmsum
kostum og þér getur reynst
erfitt að velja þann rétta.
Treystu eigin sannfæringu og
láttu engan gera þér upp skoð-
anir.
VATNSBERINN
21. janúar-19. febrúar
Nú er rétti tíminn til að
kanna hið óþekkta. Vandlega
hugsaðar efnahagsaðgerðir
þýða ekki endilega stórkostleg-
an ávinning en þær gætu leitt til
rýmri fjárráða í vasanum á
næstunni.
FISKARNIR
20. febrúar-20. mars
Liðna árið er þér ofar-
lega í huga þessa dagana en
skynsamlegt væri að hugsa
svolítið fram í tímann og skipu-
leggja það sem þú hyggst
hrinda í framkvæmd á næstu
mánuðum. Ýmsum kann að
finnast erfitt að vita hvar þeir
hafa þig en það er vegna þess
að þú vilt halda öllum möguleik-
um opnum.
4. TBL. 1993 VIKAN 45