Vikan - 21.04.1993, Side 11
Mér finnst ég ekkert líkari
Dolly Parton en til dæmis
Arnold Schwarzenegger! Þótt
ég stigi upp á stól á sauð-
skinnskóm og upphlut, með
sviðakjamma í hendinni og
færi að kveða rímur myndi ef-
laust einhver segja að ég væri
eins og Ameríkani. Ég veit
ekki af hverju þetta stafar.
Reyndar veit ég ekki af hverju
ég er að fárast yfir þessu,
Ameríkanar eru hið ágætasta
fólk og því hlýtur að vera
besta mál að líkjast þeim.”
Annars vekur Anna Mjöll
jafnmikla eftirtekt í Los Angel-
es og hérna heima. Á göngu-
ferð um Venice Beach tók
blaðamaður eftir því að nán-
ast allir karlmenn á aldrinum
12 til 112 litu við og horfðu á
eftir henni enda er stórfalleg
kona á ferð þar sem hún fer.
Hún er miðpunktur athyglinnar
hvar sem hún er enda hefur
hún mikla persónutöfra og er
mjög gefandi. Það hreinlega
stafar af henni jákvæð orka.
PRINSPÍSLINNI
TROÐIÐ UM TÆ.R
- Ferðu mikið út að djamma?
„Nei, ekki get ég nú sagt
það. Margir héldu þegar þeir
fréttu að ég væri á leiðinni
hingað út að nú hæfist mikið
skemmtanalífsskeið hjá Önnu
Mjöll en sannleikurinn er sá
að ég fer eiginlega ekkert út á
lífið. Hérna úti þarf maður að
velja og hafna, annaðhvort er
maður að vinna að einhverju
eða að djamma. Hver einasti
dagur hjá mér er stífbókaður,
mér veitir ekkert af hverri ein-
ustu mínútu til að læra og
halda f þau sambönd sem ég
er búin að koma mér upp.
Reyndar hef ég bara farið
einu sinni út að skemmta mér
frá því að ég kom hingað í
haust. Þá fór ég á Roxburys
og þar hef ég áður rekist - í
bókstaflegri merkingu - á lít-
inn nagg sem heitir Prince. Ég
var næstum búin að stíga á
tána á honum. Hann er svo
rosalega lítill, þessi náungi.
Hann er minni en ég og ég er
ekki nema rétt um einn og
sextíu! Svo sá ég líka Mickey
Rourke, hann er nú öllu stærri
en prinspíslin, maður í fullri
stærð! Annars er svo skrýtið
með leikara og söngvara,
mjög margir af þeim frægustu
í þessum hópi eru mjög lág-
vaxnir. Ég held að þetta hafi
með það að gera að lágvaxið
fólk þarf að hafa meira fyrir
því að ná athygli heimsins og
þess vegna þróar það sviðs-
hæfileikana meira en aðrir.”
FRH. Á BLS. 52
8.TBL. 1993 VIKAN 1 ]