Vikan - 21.04.1993, Blaðsíða 44
GUDRUN RUT
HREIÐARSDÓTTIR
tók þátt í fegurðarsamkeppni
Reykjavíkur. Hún býr á Sel-
tjarnarnesi og hefur gert frá
þriggja ára aldri. Guðrún Rut
er nítján ára og 173 cm há.
foreldrar hennar eru þau Elín
Sigurbjörg Gestsdóttir og
Hreiðar Karlsson. Hún stund-
ar nám við Fjölbrautaskólann
við Ármúla, er á málabraut í
frönsku. Samhliða námi
starfar Guðrún Rut við fram-
reiðslu á Hótel íslandi og á
veitingahúsinu Búmanns-
klukkunni. Henni þykir fengur
að þeirri reynslu, ekki síst ef
svo færi að hún starfaði sem
flugfreyja í framtíðinni en loku
er ekki skotið fyrir það eins og
staðan er núna.
Guðrún Rut tók fimmtán ára
gömul þátt i módelkeppni hjá
Hári og fegurð og undanfarna
mánuði hefur hún starfað við
fyrirsætu- og sýningarstörf
með lcelandic Models. Ásamt
flugfreyjustarfi er fararstjórn of-
arlega á lista en áður en að
þvi kemur mun Guðrún vænt-
anlega fara til Frakklands til
náms á sviði ferðamála. Hún
hefur mikinn áhuga á hesta-
mennsku og á tvo hesta sjálf
og þrjá hunda að auki. Þannig
eru dýr ofarlega á áhugalistan-
um og ferðalög eru ekki langt
undan og þarf svo sem ekki að
nefna sérstaklega miðað við
framtíðaráformin.
er nítján ára og 173 cm há.
Foreldrar hennar eru Erlín
Linda Sigurðardóttir og Guð-
jón Sigurbjörnsson. Hún er
ungþjónn sem kallað er, nemi
í þjóna- og veitingaskólanum,
hefur lokið tveimur árum í
Menntaskólanum við Sund og
stefnir því á að klára sveins-
prófið vorið 1994.
María segist lengi hafa
gengið með sýningar- og fyrir-
sætustörfin í maganum, hún
hafi til dæmis sótt námskeið
hjá Módelsamtökunum þegar
hún var fjórtán ára en aldrei
stigið skrefið til fulls fyrr en
nú. Og henni finnst gaman í
þessu. Líkamsrækt er annað
áhugamál sem nú fær líka
sinn skammt af ástundun og
hún æfði knattspyrnu með 1.
deildarliði Fram. Útilegur og
önnur ferðalög innanlands
heilla Maríu og hún hefur oft-
sinnis farið hringinn í kringum
landið, segist reyndar vera
farin að þekkja hvern hól.
Myndlist á einnig upp á pall-
borðið, sérstaklega barokk og
quattro cento stfll.
MARIA
GUÐJÓNSDÓTTIR
tók þátt í fegurðarsamkeppni
Reykjavíkur. Hún býr, er fædd
og uppalin í Reykjavík. María