Vikan


Vikan - 21.04.1993, Blaðsíða 65

Vikan - 21.04.1993, Blaðsíða 65
SKAR Einnig má fá töflur fyrir þær konur sem ekki vilja hafa blæðingar. Þar er um 28 töflur að ræða og er þá östrógen og prógesterón í öllum töflunum. Þessi meðferð spornar gegn blæðingum en konum er þó yf- irleitt ekki boðin hún fyrr en eftir að breytingaskeiðið hefur staðið í eitt til tvö ár. Hreint östrógen er hugsað fyrir konur sem búnar eru að missa legið en hreint östrógen getur aukið hættuna á leg- krabbameini hjá konum sem ennþá hafa leg, fái þær ekki prógesterón með. Að endingu má nefna östró- genplástra sem henta sérstak- lega vel konum sem búnar eru að missa legið og þurfa þess vegna ekki á prógesterónum að halda. Allar aðrar konur veröa að taka prógesteróntöfl- ur með og fá þá blæðingar eft- ir tíu til fjórtán daga pró- gesterónkúr. Hluti kvenna fær ofnæmi af plástrinum. Þær konur sem þola plásturinn þurfa að gæta þess að vera duglegar að skipta um stað ella þykknar húðin undan hon- um. Konur sem hafa fengið blóötappa ættu ekki að taka östrógen né heldur konur sem hafa fengið krabbamein í brjóst eða önnur östrógen- tengd krabbamein, nema í nánu samráði við sérfræðinga á þessu sviði. Það er umdeilt hve lengi konur eigi að taka hormóna en ef verið er aö fyrirbyggja bein- gisnun verður að gefa þá í minnst tíu ár því beinin byrja að gisna um leið og hormóna- gjöfinni lýkur. Meðan rann- sóknir um lengri notkun liggja ekki fyrir er erfitt að ráðleggja lengri hormónagjöf en hins vegar er alveg Ijóst að horm- ónameðferð er engin skamm- timameðferð og að sumra mati jafnvel ævilöng. Lang- flestar konur hafa einkenni í fjögur til fimm ár en í Ijós hefur komið að nokkur hluti kvenna ýmist leysir ekki út lyfin eða hættir meðferð innan árs. Það virðist vera konum eðlislægt að vera illa við að vera „á lyfj- um’’ þótt við séum tilbúnar til að borða ruslfæði, fá litla sem enga hreyfingu, reykja og gera ýmislegt annað sem vitað er að fer illa með okkur. Tíðahvörfin eru óumflýjan- legt ferli á ævi hverrar konu en nú til dags eru ýmis ráð til að vera laus við mörg óþægileg einkenni þeirra svo að konan sé frjáls til þess að hlúa að til- finningalegri og andlegri vellíö- an sinni. □ E Framhald af bls. 63 Eftir athöfnina sagði hann að þaö gleddi sig sérstaklega að verðlaunin væru fyrir vestra sem sýndi andstæða hlið þess ævintýraljóma sem oft er tengdur ofbeldi í kvikmyndum. Unforgiven var einnig verð- launuð fyrir klippingu og verð- laun fyrir besta leik í aukahlut- verki féllu Gene Hackman í skaut. Hann hafði ekki farið leynt með það fyrir athöfnina að sér væri óskarinn vissu- að veita óskarnum móttöku því hann hefði verið á klósett- inu. Það eina sem kom veru- lega á óvart við afhendinguna var að Marisa Tomei sigraði í aukahlutverki í My Cousin Vinny og skaut hún þar reynd- ari leikkonum ref fyrir rass. Alan Menken hélt uppi merki Disney með að fá tvær styttur fyrir tónlistina í Aladdin en Disney sjálfur er sá einstak- lingur sem oftast hefur verið verðlaunaður eða samtals þrjátíu sinnum. hafa til saka unnið er að vera smitaöir af eyðniveirunni og ekki er það glæpur,” sögðu leikarahjónin róttæku. Richard Gere bað viðstadda að senda Deng Xiao Þing, leiðtoga Kína, jákvæðar hugsanir svo hann beitti sér fyrir því að Kín- verjar færu með her sinn frá Tíbet. Myndin The Panama Deception hlaut verðlaun sem besta heimildamyndin og leik- stjórinn, Barbara Trent, vakti athygli á samvirkni banda- rískra stjórnvalda og fjölmiðla lega kærkominn því hann hygðist draga í land á hvíta tjaldinu á næstu árum. Dracula var sú mynd sem kannski kom best út verð- launakvöldið því þrjár styttur fóru til hennar eftir fjórar til- nefningar, að vísu engin þeirra í eftirsóttustu greinun- um. Howards End brást hins vegar vonum framleiðenda sinna og fékk aðeins þrenn verðlaun þrátt fyrir níu tilnefn- ingar, fyrir sviðsmynd, handrit skrifað eftir bók og besta kvenhlutverk sem kom í hlut Emmu Thompson. Það var stutt í húmorinn hjá henni og hún sagði við blaðamenn eftir athöfnina að tilnefningin hefði reynst eins og blanda af því að vera fárveikur og ætla að fara að gifta sig því fólk hefði alltaf verið að spyrja sig hvernig henni liði með tilnefn- inguna og þaö gert sig óhóf- lega meðvitaða um eigin líð- an. Al Pacino fór loksins heim með óskar en hann hlaut átt- undu tilnefningu sína fyrir hlutverkiö f Scent of a Wom- an. The Crying Game fékk aðeins verðlaun fyrir handrit og Neil Jordan sagðist næst- um hafa misst af tækifærinu til Barbra Streisand afhenti Clint Eastwood óskarinn fyrir leikstjórn og sagðist vonast til að ekki þyrfti aftur að tileinka verðlaunaafhendinguna kon- um heldur yrðu þær fljótlega fullgildir þátttakendur í kvik- myndaheiminum, báðum megin við myndavélina. Kon- ur voru áberandi við afhend- ingu verðlaunanna og hlutu Elizabeth Taylor og Audrey Hepburn sérstök verðlaun fyr- ir mannúðarstörf. Liz Taylor þakkaði fyrir verðlaunin fyrir hönd allra sem þjást af eyðni og sagðist ekki hafa búist við að hljóta verðlaun fyrir „eitt- hvað” sem henni fyndist hún bara verða að gera. Sean Hepburn, sonur Audrey Hep- burn, tók við verðlaunum hennar en hún lést á síðasta ári, aðeins sextiu og þriggja ára gömul. Það var óvenju mikið um að menn notuðu tækifærið til að koma pólitískum skoðun- um sínum á framfæri úr pont- unni. Hjónin Tim Robbins og Susan Sarandon skoruðu á bandarísk stjórnvöld að hleypa 350 flóttamönnum frá Haiti inn í landið en þeir eru í haldi f bandarískri herstöð á Kúbu. „Það eina sem þeir við að þegja myndina í hel. Frederico Fellini var í takt við myndirnar sínar þegar hann sagðist ekki hafa búist við að verða heiðraður nema hann hefði kannski búist við því. Sophia Loren og Marcello Mastroianni afhentu þessum aldna snillingi séstaka viður- kenningu fyrir ævistarf hans. Franska myndin Indochine varð hlutskörpust mynda á öðru tungumáli en ensku en hún segir frá nýlendutíma Frakka í Víetnam. Á heildina litið gekk sextug- asta og fimmta afhending ósk- arsverðlaunanna snurðulaust fyrir sig og Billy Crystal brást ekki bogalistin í hlutverki gest- gjafans. Núna er svo ákveðið spennufall í kvikmyndaborg- inni en undanfarna þrjá mán- uði hefur fátt veriö meira til umræðu en hverjir hljóti óskar- inn i ár. Þeir sem lásu spá- dóm undirritaðs hafa senni- lega veitt því athygli að Vikan er að verða eins ábyggilegur miðill þegar kemur að ósk- arsverðlaununum og þegar spáð er í þjóðmálin í upphafi árs. Það var aðeins Marisa Tomei sem sló okkur eins og flesta aðra út af laginu. □ ítalski leik- stjórinn og kvikmynda- framleiö- andinn Federico Feliini var heiöraóur fyrir fram- lag sitt til kvikmynda- listarinnar. Sophia Lor- en og Marcello Mastroianni afhentu gamla manninum verðlaunin. 8.TBL. 1993 VIKAN 65
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.