Vikan - 21.04.1993, Blaðsíða 36
ÞaA var ekki hlaupiA aA því fyrir stúlkurnar aA klifra á veggn-
um í World Class - neglurnar gerAu þeim meöal annars erfitt
fyrir. En þaö var glatt á hjalla.
Katý, Katrín Hafsteinsdóttir,
leiðir stúlkurnar í allan sann-
leika um þessi musteri þeirra.
Þær puða og púla í World
Class, hver um sig eftir eigin
kostum og göllum. Stúlkur
sem þurfa að grenna sig fá
sérstaka tilsögn í æfingum
fyrir þá líkamshluta sem í
brennidepli eru og þær sem
einhvers staðar þurfa að bæta
við fá yfirhalningu hjá Katý á
þeim sviðum. Þarna fá þær
líka leiðbeiningar um matar-
æði því musterið er víst það
sem maður borðar. Stúlkurnar
átján mega til dæmis ekki
borða sælgæti eða drekka
sæta gosdrykki. Salt- og syk-
urbaukar skulu standa ó-
hreyfðir og auk þeirra krydd-
tegunda eru aðrar í algeru
lágmarki leyfðar, sumar bann-
aðar. Og svo náttúrlega allar
fituríkar afurðir. Sem sagt: Allt
gott og bannað!
Ekki má gleyma hárinu. Ef
eitthvað er mikilvægt ásamt
góðri förðun og línulagi þá er
það hárið. Eiginlega má segja
þessa þrenningu það sem
skapi heildarpakkann. Stúlk-
urnar fá hvorki fleiri né færri
en landsliðið í hárgreiðslu
eins og það leggur sig til þess
að sjá um hárið. Hárið er því í
góðum höndum.
GÓÐAR GJAFIR
Styrktaraðilar í svona sam-
keppnum eru geysilega mikil-
vægir til þess að unnt sé að
standa að þeim með svo stór-
glæsilegum hætti sem nú er
gert. Sumir af þessum styrkt-
araðilum hafa styrkt allar und-
ankeppnirnar víða um landið.
Má þar nefna verslunina
Conný sem hefur gefið um
það bil níutíu sundboli, Capta-
in Morgan hefur boðið gestum
á landshlutakeppnunum for-
drykki og íslensk-austur-
lenska hefur gefið öllum kepp-
endum á landinu þetta árið
Oroblu sokkabuxur. Úr því að
minnst er á sokkabuxur má
alveg geta þess að fallegustu
fótleggirnir verða valdir til
auglýsinga fyrir Oroblu. Verð-
launin eru samningur við fyrir-
tækið. Og að auki fá stúlkurn-
ar, sem keppa til úrslita í feg-
urðarsamkeppni íslands, að
gjöf Champion æfingafatnað,
Mumm kampavín, perluskart-
gripi, kvöldverð og blómvönd.
Á úrslitakvöldinu kennir ým-
issa grasa fyrir gesti þar sem
styrktaraðilar gera vel. Allar
dömur fá Oroblu sokkabuxur,
varalitaspegil frá Wella, Chan-
el ilmvatn, Clarins krem og
Majorica perluhálsmen. Það
er því ekki amalegt fyrir
herrana að bjóða dömum sín-
um að vera viðstaddar krýn-
ingu fegurstu konu íslands en
athöfnin verður með glæsileg-
asta móti þetta árið. Kvöldið
allt er í forngrískum anda eins
og sjá má meðal annars á
matseðli kvöldsins. Þar ræður
gríska goðafræðin ríkjum,
meðal annars er boðið upp á
ostatertu Afródítu.
Strax þegar gestir ganga í
salinn býður Seagrams í New
York upp á fordrykk. Tegund-
irnar eru þrjár, í fyrsta lagi
Captain Morgan, eitt vin-
sælasta romm á íslandi, Chi-
vas Regal viskí og Seagrams
gin. Þannig ættu allir að finna
eitthvað við sitt hæfi strax við
innganginn. Síðan tekur við
fjölbreytt skemmtidagskrá.
Nú. Veglega er að verki
staðið hjá eiganda samkeppn-
innar, Ólafi Laufdal, en hitann
og þungann af öllu þessu
verki hefur Esther Finnboga-
dóttir framkvæmdastjóri borið.
Að baki liggur þrotlaust starf