Vikan - 21.04.1993, Blaðsíða 37
Katý í World Class sér um aö stúlkurnar fái rétta þjálfun
hver fyrir sig. Hún fylgist einnig meö og ráöleggur um matar-
æöi.
við útvegun allra herlegheit-
anna og Esther hefur að auki
þjálfað stúlkurnar í göngu svo
eitthvað sé nefnt. Sýningu
kvöldsins, þar sem fegurðar-
dísirnar koma fram, stjórnar
Helena Jónsdóttir og hún sér
einnig um tónlistarval. Kynnir
er Sigursteinn Másson, út-
varps- og sjónvarpsmaður.
ALLT ÓKEYPIS
En aftur yfir í undirbúninginn
sem er með slíkum ósköpum
að um fullt starf fyrir á þriðja
tug manna er að ræða um
nokkurra vikna skeið. Stúlk-
urnar átján fá nánast allt sem
hugurinn girnist og þessu
kemur við upp í hendurnar.
Öll þjálfunin er þeim að kostn-
aðarlausu, bæði hvað varðar
framkomu sem og líkamsþjálf-
un. Og kvöldið fyrir gener-
alprufu, sem er síðasta æfing
fyrir úrslitakvöldið, fara þær í
algera afslöppun. Þá verður
stjanað við þær með afbrigð-
um. Þær fara í Ijós, gufu og
nudd. Hvort þær hafa líkam-
lega uppburði eftir slíkar trakt-
eringar til þess að ganga
sperrtar um svið verður síðan
að koma í Ijós. En án gam-
ans, þær fá eiginlega allt. Hér
má benda á verðlaunalistann
í bæklingi samkeppninnar,
hann segir eiginlega allt sem
segja þarf.
MIKIL SAMKENND
Stúlkurnar halda mikið saman
við allan undirbúning og utan
hans raunar einnig. Þær hafa
farið saman í gönguferðir,
safnast saman í Bláa lóninu,
farið í útreiðartúra og farið
saman út að borða og
skemmta sér. Það ríkir mikið
samkennd í hópnum og þegar
maður kemur til fundar við
stúlkurnar er ekki að sjá að
allar vilji þær hreppa titilinn.
Það er nánast eins og þeim
sé sama hver þeirra verði val-
in fegurst, allar komi til með
að fagna hverri sem vera
skal. Þannig á þetta líka að
vera.
Dómnefnd er máttarstólpi
samkeppni sem þessarar
enda er henni ávallt vandi á
höndum. Því er mikilvægt að
til þeirra starfa veljist fólk sem
hefur verulega reynslu og
þekkingu á eðli slíkrar sam-
keppni og ef til vill ekki sfst
því sem bíður sigurvegarans
á erlendum grundum. Dóm-
nefndin er þetta árið sem fyrr
skipuð alvönu fólki. Ólafur
Laufdal er formaður en aðrir
dómendur eru Sigtryggur Sig-
tryggsson, Bryndís Olafsdótt-
ir, Kristjana Geirsdóttir, Gróa
Ásgeirsdóttir, Rúnar Júlíusson
og Ari Singh.
MIKILVÆGI AÐ LOKUM
Vera má að einhver sé orðinn
leiður á því að lesa og heyra
um að það sé ekki bara ytri
fegurð sem skiptir máli. Þó
gefur augaleið að sú sem
stendur ein frammi fyrir millj-
ónum sjónvarpsáhorfenda
þarf að hafa bein í nefinu.
Straumþungi erlendra fjöl-
miðla og annarra sem málið
varðar getur verið slíkur að út-
vörður íslenskrar fegurðar
þarf að geta staðið hann af
sér með sóma. Og þá kemur
útlitið ekki eitt sér til hjálpar.
Hins vegar getur stúlka sem
geislar af gegnheilli fegurð
orðið landi og þjóð til svo mik-
ils sóma að eftir er tekið um
heim allan. Það er oft aðeins
um eitt tækifæri að ræða og
það getur mótað viðhorf heilla
þjóða gagnvart okkur öllum
hér sem skipum höfðatölu-
þjóðina heimsfrægu. □