Vikan


Vikan - 21.04.1993, Page 17

Vikan - 21.04.1993, Page 17
- SEGIR HILDUR HELGA SIGURÐARDÓTTIR, FRÉTTARITARI RÍKISÚTVARPSINS í LUNDÚNUM Uppi á hæö í hvítu húsi viö Þrenningarkirkjutorg í útjaöri fjármálahverfis- ins City, rétt sunnan Thamesárinnar í Lund- únum, er lítið herbergi fullt af blööum og bók- um. Varla sér í auðan blett. Myndir af íslensk- um náttúruperlum prýóa veggina en mest ber þó á nútímalegum tækja- búnaöi á borö viö tölvu, prentara og bréfsíma. Þetta er vinnustaður ís- lensks fréttaritara í stór- borginni Lundúnum. Þegar viö heyrum í út- varpinu fréttapistil um stórpólitísk mál eða nýj- ustu fréttir af raunum Díönu prinsessu, af- kynntan með oróunum: Hildur Helga Siguröar- dóttir, Lundúnum - má allt eins reikna meö aó hann hafi verið saminn í þessu herbergi. „Það var eiginlega tilviljun að ég tók að mér starf fréttarit- ara Ríkisútvarpsins í Lundún- um fyrir rúmum fjórum árurn," segir Hildur Helga. „Ég var ný- komin hingað frá Cambridge þegar á daginn kom að forveri minn, Ásgeir Friðgeirsson, nú ritstjóri lceland Review, var á förum heim. Ég sló til og fór að vinna fyrir RÚV, reyndar með fullu námi svo nóg var að gera. Nú orðið er ég meira í sjálfstæðum rannsóknum og ræð tíma mínum því meira sjálf. Það vill nú stundum verða til þess að frétta- mennskan tekur öll völd. Eftir þriggja ára sagnfræðinám við Cambridgeháskóla langaði mig að eyða minnst einu ári í Lundúnum. í Cambridge er auðvelt að fá hálfgerða inni- lokunarkennd þó að borgin sé forn og fallegur bær, næstum eins og póstkort. Háskólinn hefur að mörgu leyti Iftið breyst frá því á miðöldum og kærir sig ekkert um að breyt- ast. Ég ákvað að breyta til í Lundúnum, fara í framhalds- nám í menningarsögu, afar nútímalegt framhald af mið- aldasögunni sem var aðalfag mitt í Cambridge. Menningarsagan tengist greinum á borð við fjölmiðla- og félagsfræði og alls konar táknfræði, sem gengur út á að lesa í allt frá tyrfnum textum í auglýsingar og jafnvel umferð- arskilti. Eg stökk því næstum milli póla innan sömu greinar þegar ég fór frá Cambridge f Middlesexháskóla, stóran og nútímalegan háskóla í Norður- London. Þetta var að mörgu leyti mjög hressandi breyting og umhverfið líka gjörólíkt. í Cambridge hafði ég búið niðri við ána Cam í litlu, gullfallegu stráþektu húsi sem byggt hafði verið um sama leyti og Jón biskup Arason var að slíta barnsskónum heima á íslandi. Húsið og flestir innviðir var ó- breytt frá því sem verið hafði í upphafi. Ur þessu myndræna miðaldaumhverfi flutti ég fyrst til East End í Lundúnum, þar sem Cray-tvfburarnir og fleiri frægir krimmar slitu sínum barnsskóm og fegurðin situr ekki beinlínis í fyrirrúmi. Og nú fer ég að stúdera sálfræði fjöl- miðla og táknfræði auglýsinga í stað þess að velta fyrir mér hvort Alfreð konungur hafi ver- ið með þennan húðsjúkdóm- inn eða hinn meðan hann barðist við Dani endur fyrir löngu.“ VIGDÍS FORSETI OG UNDA FYRSTU VERKEFNIN Hildur Helga hafði lítið komið nálægt útvarpi eða sjónvarpi er hún tók við fréttaritarastarf- inu í London. Hún hafði aftur á móti verið blaðamaður á Morgunblaðinu í tæp fimm ár áður en hún fór í nám og á sumrin á meðan hún var í Cambridge og var því ýmsu vön þegar slagurinn hófst. „Ég held að það fyrsta sem ég gerði fyrir sjónvarpið hafi verið að segja frá sigri Lindu Pétursdóttur heimsfegurðar- drottningar. Þann sama dag var Vigdís forseti í borginni og fyrsta útvarpsviðtalið mitt var við hana. Það var að mörgu leyti góð og skemmtileg byrj- un. Ég hafði oft „dekkað" Vig- dísi áður og ferðast með henni fyrir Morgunblaðið. Auk þess er hún mjög Ijúf í sam- vinnu svo þetta gekk allt vel. Ég er rétt nýkomin inn úr dyrunum heima hjá mér þarna um kvöldið, eftir fyrsta alvöru verkefnið fyrir útvarpið, ósköp fegin að allt skuli hafa gengið upp, búin að sparka af mér skónum og koma mér nota- 8.TBL. 1993 VIKAN 17 TEXTI: FRÍÐA BJÖRNSDÓTTIR / UÓSM.: BINNI

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.