Vikan


Vikan - 21.04.1993, Qupperneq 22

Vikan - 21.04.1993, Qupperneq 22
er vel skiljanlegt af hverju þetta ægifagra land heitir ís- land. Menn þyrftu vart að velta vöngum yfir nafngiftinni hefðu landnámsmenn komið með Flugleiðum frá Noregi. En af því að maður er hvorki fugl né Fokker þá tekur flugið enda. ísafjörður, sem er ekki við ísafjörð heldur Skutuls- fjörð þó ísafjörðurinn sjálfur sé svo sem ekki langt undan og Skutulsfjörður við ísafjarð- ardjúp, var fastur undir fótum þess aö skíðsvæðið er sér- deilis glæsilegt á þessum fai- lega degi og allt til alls á staðnum. Meira að segja átta manna kojur hið mesta inni í Skíöheimum. Þannig aö þar getur eflaust vel orðið glatt á hjalla í gistirými fyrir þrjátíu til fjörutíu manns. Ferðaskrif- stofufólk og Vikupiltur geta þó ekki upplifað það aö sinni enda þéttskipuð dagskrá framundan. Gleðigammur set- ur langferðaþifreiö í gang og Eitt her- bergjanna á Hótel ísafiröi. Þau eru flest meö þessu lagi. staulans og förunauta hans aðeins sem nemur einni kennslustund í barnaskóia eft- ir að lagt var af stað. - Þetta er ekkert mál, segja ísfiröingar. Og það er rétt. Sólin og snjórinn hjálpast að við að sannfæra gestina um fararstjóri segir skemmtisögur og fræðandi. STJÓRI í TURNI í ísafjarðarkaupstað getur aö líta margar frægar byggingar, bæði að fornu og nýju. Ber þar fyrst að nefna stjórnsýslu- Nýtt gistihús í Bolungarvík, Gestahúsiö, var nýlega opnaö. Þaö er eiginlega hóteli likara. það í hvurs konar paradís þeir eru komnir og hve stutt er í hana í raun. Brekkurnar snæ- hvítar í rjómalogni. Árbítur í Skíðheimum áður en lagt er í fjallið. Rennifæri. - Við erum búin að geta veriö á skíöum síðan í nóvember, bæta ísfirð- ingarnir við, kampakátir. Ætli þeir séu þá ekki orðnir þreytt- ir? hugsar snápurinn glottandi með sjálfum sér. Án gamans má hins vegar alveg geta húsið þar sem nánast öll opin- þer starfsemi í bænum fer fram. Raunar er áfengi ekki selt þar, það gerist annars staöar. Nóg um það. Húsiö er hin álitlegasta bygging, ekki síst innan dyra þar sem getur að líta listaverkiö Bergmál eft- ir Steinunni Þórarinsdóttur og annað umhverfisskraut. Nán- ar veröur hugað aö bygging- unni og innviðum hennar í Húsum og híbýlum á næst- unni. Næst getur að líta öllu eldri íverustaði. Þar erum við komin í sjóminjasafn þeirra ís- firðinga sem er í umsjá Jóns Sigurpálssonar og ef til vill ekki síður Gunnars sonar hans, fjögurra ára. í sjóminja- safninu una þeir feðgar glaðir við sitt og mega það líka vel því safnið er auðugt af minj- um um liðna tíma. Safnið er í svokölluðu turn- húsi í Neðstakaupstað á ísa- firði og á sér nokkurn aðdrag- anda. Síðastliðna hálfa öld hefur það verið í deiglum og framkvæmdum en þann 23. júlí 1941 var í raun formlega stofnað Byggða- og sjóminja- safn Isfirðinga. Nú er sjóminja- safnið hluti af stærra safni, byggðasafninu sem á rætur sínar að rekja til ársins 1955 f núverandi mynd. Fyrsti vísir að því var hins vegar forláta sexæringur að gamalli fyrir- mynd sem Jóhann Bjarnason bátasmiður smíðaði eftir að Bárður G. Tómasson skipa- verkfræðingur hafði hvatt til að svo yrði gert í blaðagrein árið 1939. Sexæringurinn var síð- an tilbúinn 1941 og var þá fyrstur gripa afhentur byggða- safninu til eignar. Turnhúsið, sem hýsir sjó- minjarnar, var reist árið 1785. Það var upphaflega byggt sem pakkhús og fiskverkunarhús. Húsið gegndi þeim hlutverkum sínum allt fram á þessa öld en þaö dregur nafn sitt af lítilli turnspíru sem skagar upp úr miðjum mæni. Þar ku verk- stjórinn hafa staðið uppi og getað séð yfir allt vinnusvæð- ið. ísfirðingar komust ekki upp með slór í vinnunni meðan svona var háttað, vitaskuld ekki svo meint að þeir slóri í dag. En þangað upp gat stjóri klöngrast, ekki auðveldlega ef hann var gildur um sig miðjan, og setið þar liðlangan daginn ef svo bar undir. EKKERT VÆL Eins og gefur að skilja er ým- islegt forvitnilegt að sjá á Vestfjörðum og margt tengist það auðvitað sjónum og sjó- sókn. Meðal annars má geta verstöövarinnar Ósvarar í Bol- ungarvík og nafnið hljómar kunnuglega enda heyrist það mikið í fréttum af samnefndu fyrirtæki. í gömlu Ósvörinni getur að líta einstætt sýnis- horn af verstöð eins og þær voru í Bolungarvík á síðustu öld. Bolungarvíkurkaupstaður lét endurbyggja hana árið 1988 og nú stendur hún uppi sem merkilegur minnisvarði um merkilega tíma. Ósvör er nokkuð utan við kaupstaðinn en inni í honum komum við í verulega snyrti- legt, glænýtt gistiheimili, Gestahúsið. Þaö jaðrar nú frekar við það að vera hótel hvað aðbúnað snertir þó menn þurfi að skjótast á sloppnum, sem fylgir herbergjunum, í sturtu eða horfa á sjónvarpið með fleirum en sjálfum sér. Ýmislegt fleira er að finna í Bolungarvík, til dæmis er þar í uppbyggingu golfvöllur, búiö er að leggja veg upp á Bolafjall hvaðan útsýni er stórkostlegt og gönguleiðir í nágrenninu eru fjölmargar. Og þrátt fyrir að svo hafi virst sem vart heyröist mannsins mál í Bolungarvík fyrir væli, gráti og gnístran tanna samkvæmt fréttaflutn- ingi var engan bilbug á þeim að finna sem erindreki Vikunn- ar hitti á ferð sinni til Bolungar- víkur. EKKI BARA GARPAR Örstutt er milli ísafjaröar og Bolungarvíkur og þegar til ísa- fjarðar er komið er málsverður á Hótel ísafirði þar sem mat- sölustaður er opinn alla daga. Hótelið er með 32 herbergj- um, öllum tveggja manna og með sturtu, útvarpi, síma, sjónvarpi og smábar. Hótelið er í miðbænum eins og raun- ar flestallt sem ferðamaður þarfnast. Annar gistimöguleiki þar er Gistiheimili Áslaugar Jensdóttur sem leggur mikiö upp úr heimilislegu umhverfi. Síðan eru ótalin ýmis tækifæri til gleði og glaums í bænum en þar er allt til alls og þarf vart að tiltaka sérstaklega. Að því er þeir sem starfa að ferðaþjónustu á Vestfjörðum segja þá fer þeim sífellt fjölg- andi sem skjótast vestur til aö fara á skíöi eða ef svo ber undir slá golfbolta. Þá er ráð- gert með sumrinu að hefja daglangar gönguferðir frá Að- alvík yfir á Hesteyri í fylgd leiðsögumanns og veröur tek- ið tillit til þess að ekki eru allir þrautþjálfaðir göngugarpar sem fýsir í slíkar ferðir. Þessi gönguleið er víst með afbrigð- um falleg og skemmtileg. Og meðan það er ekki nema einn steinn sem náttúr- an hefur lagt í götu ferðafólks á kviðlágum farartækjum er ekkert að óttast, hvaö þá fyrir þá sem ferðast með stálfugl- um. Vestfirðir eru hrífandi nátt- úruundur sem rís fyllilega und- ir kröfum heimsvanra ferða- langa. Vikan hvetur íslendinga til þess aö efla eigin atvinnu- vegi og ferðast innanlands - ef ekki einungis þá einnig. □ 22 VIKAN 8. TBL. 1993
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.