Vikan


Vikan - 21.04.1993, Page 28

Vikan - 21.04.1993, Page 28
VIÐTAL VIÐ FRIÐRIK SOPHUSSON FJÁRAAÁLARÁÐHERRA SPARNAÐUR MINNI HÉR EN f GRANNRÍKJUM „Ef litið er á erlendu skuldirnar er mikilvægt að átta sig á því að þótt við skuldum enn sem komið er ekki miklu meira en gengur og gerist í öðrum löndum er samsetning skuldanna öðruvísi því að erlendur hluti skuldanna er mun stærri hér. Þetta þýðir að við getum ekki gert ráð fyrir að við njótum sama skilnings eins og ef lánardrottnarnir væru innlendir. Hér er komið að kjarna málsins. Ástæðan fyrir þessu er sú að sparnaður hér á landi er og hefur ver- ið mun minni en í nágrannalöndunum. Það er tiltölulega stutt síðan fjármálakerfi þjóðarinnar varð þannig að þeir sem lögðu peninga til hlið- ar fengu jafnmargar krónur út og þeir lögðu inn. Það var ekki fyrr en upp úr 1980 sem menn fóru að hafa eitthvað upp úr peningaleg- um sparnaði. Þeir sem lögðu til hliðar á verð- bólguárunum frá 1940 til 1980 fengu lítið sem ekkert í sinn hlut. Aðeins þeir sem lögðu til hliðar eftir 1980 eiga möguleika á að fá sitt fjármagn til baka.“ - Er ekki sparnaður of lítill vegna þess að laun eru almennt of lág? „Ég held að það sé alrangt. Það kemur nefnilega í Ijós að þó að möguleikar þeirra sem hafa há laun séu miklu meiri til að spara er það svo að margir þeirra sem hafa lág laun leggja peninga til hliðar. Ef menn gaumgæfa sparifjáreigendur hér á landi kemur ávallt á óvart hvaða fólk það er sem á peninga f bönk- um og verðbréfum. Fólk sem hefur ekki allt of mikið handa á milli hefur oft á tíðum meiri skilning á því að leggja fjármagn til hliðar til ör- yggisþarfa heldur en hinir sem hafa miklar tekjur og nota þær fyrst og fremst í dýran rekstur heimila sinna. Svo að ég víki að spurningu þinni um er- lendu lántökurnar þá er ekkert sem bannar einstaklingum og fyrirtækjum að taka erlend lán. Spurningin snýst um hvort rfkið eigi að taka erlend lán. Við erum auðvitað dæmdir til að taka erlend lán á næstu árum vegna þess að innlendur sparnaður nægir því miður ekki til að standa undir þeim lánum sem við þurfum á að halda. En við eigum að fara okkur mjög hægt og takmarka erlendar lántökur við að fjármagnið sé sett í eitthvað sem við sjáum fyr- ir að getur skilað okkur arði á næstu árum. Þess vegna lagði ég svo ríka áherslu á það þegar við settum viðbótarfjármagn í vegagerð að þetta væri tilfærsla í tfma, þessir fjármunir yrðu greiddir af vegafé framtíðarinnar. Með því var ég að undirstrika að sá halli upp á 1500 milljónir sem myndast vegna framkvæmda f vegagerð, umfram það sem við ætluðum okk- ur á þessu ári, á að greiðast til baka eftir nokk- ur ár, þegar betur gengur. Framkvæmdir drag- ist þá saman á móti enda má ætla að þá verði hægt fyrir verktakafyrirtæki og almenning að njóta starfa annars staðar en í vegagerð. Þetta er því flýting á framkvæmdum." - Atvinnuleysi hefur aldrei verið meira en í byrjun þessa árs. Mörgum finnst stjórnin ekki gera neitt til stuðnings og uppbyggingar at- vinnulífinu, stefnan sé bara afskiptaleysi og látið gott heita þótt stórfyrirtæki verði gjald- þrota. Á ekkert aö gera eöa er verið að gera eitthvað og þá hvað? „Það er alrangt að ekkert hafi verið gert. Ég minni til dæmis á aðgerðirnar sfðastliðið haust, sem gerðar voru til þess að styrkja atvinnulífið. Þær aðgerðir gengu allar út á að færa kostnað af fyrirtækjum yfir á þá einstaklinga sem hafa vinnu. Þetta var gert til að koma í veg fyrir að atvinnulífið hryndi og atvinnuleysi yrði óviðráð- anlegt. Þá má spyrja hvort það sé ekki bara vitleysa að atvinnuleysið hefði orðið svo mikið. ASÍ lét fara frá sér skýrslu í haust þar sem sagt var berum orðum að ef ríkisstjórnin gripi ekki til aðgerða gæti farið svo að atvinnuleysi yrði tuttugu til tuttugu og fimm prósent hér á landi. Því verða menn að líta á þetta með hlið- sjón af því hvað hefði gerst ef ríkisstjórnin hefði ekki gripið til þessara aðgerða. En það breytir ekki því að atvinnuleysi er of mikið." SVARTI-PÉTUR - Talað er um tilfærslur í ríkisstjórninni í vor. Hvaða ráðuneyti væri efst á óskalista þínum ef til þess kæmi? „Ég hef nú í fyrsta lagi ekki leyft mér þann munað að hugsa til þess að mér byðist að fara í annað ráðuneyti. - Fjármálaráðuneytið er ekki vinsælasta ráðuneytið... „Nei, ég held að menn hafi ekki keppst við að komast í þetta ráðuneyti. Þegar ríkisstjórnin var mynduð 1983 sögðu sumir að íhaldsráð- herrarnir hefðu farið í Svarta-Þétur og Albert Guðmundsson hefði setið uppi með Svarta- Péturinn. Enginn hinna vildi fara í fjármála- ráðuneytið. Ég gæti hins vegar, ef í það færi, vel hugsað mér að starfa í öðrum ráðuneytum. Þá hefði ég sjálfsagt mest gaman af að fást við atvinnuvegaráðuneyti. Ég þekki iðnaðar- ráðuneytið frá fyrri tíð og ég hef unnið við sjáv- arútveg. Þetta eru því kannski þau málefni sem ég þekki frekar öðru og hefði gaman af að fást við. Varðandi stólaskiptin almennt þá vita menn að þegar ríkisstjórnin var mynduð var það ekki útilokað að um uppstokkun yrði að ræða á kjörtímabilinu. Það er auðvitað skiljanlegra að Alþýðuflokkurinn horfi frekar til þessa máls en Sjálfstæðisflokkurinn vegna þess að hann er búinn að sitja lengur í ríkisstjórn samfleytt og þess vegna er eðlilegt að þar geti orðið ein- hverjar breytingar. Eins og sakir standa sé ég ekki að breytingarnar verði aðrar en hjá Al- þýðuflokknum.“ ÁSTIR SAMLYNDRA HJÓNA - Hvernig gengur samstarfið við Alþýðuflokk- inn? „Ég hef átt sæti í tveimur ríkisstjórnum. Það er afar mikill munur á samstarfinu í þessari rík- isstjórn og hinni fyrri. Ég held að þar skipti ekki meginmáli hvaða flokkar eru saman í ríkis- stjórn heldur hve margir þeir eru. í þessari rík- isstjórn eru tveir flokkar og það er auðveldara að mynda ástarsamband tveggja en þriggja, eins og allir vita. Það er alltaf mikil hætta á því í samskiptum þriggja flokka að einn verði út- undan. Samstarfið i núverandi ríkisstjórn hefur verið afar gott og mér hefur líkað það mjög vel. Og það hefur ekkert komið upp sem bend- ir til þess að þetta stjórnarsamstarf endist ekki út kjörtímabilið. Á fyrstu mánuðum þessa árs, þegar ríkis- stjórnin var veik í skoðanakönnunum eftir að- gerðir haustsins, á meðan verðbólgan skaust i gegnum þjóðfélagið að aflokinni gengisfellingu og hækkuðum sköttum á almenning í landinu, þá eðlilega hugsuðu andstæðingarnir sér að það gæti verið heppilegt að losa sig við ríkis- stjórnina og hugsanlega væri hægt að nota launþegasamtökin til slíkra verka. Þetta er afar mikill misskilningur. Ríkisstjórnir verða ekki af- lífaðar með slíkum hætti. Það sem fellir rfkis- stjórnir er fyrst og fremst innri veikleiki þeirra. Það hefur ekkert komið fram, hvorki innan rík- isstjórnarinnar né milli stjórnarflokkanna, sem bendir til þess að svo geti farið að stjórnar- samstarfið endist ekki út kjörtímabilið. Sjálf- sagt eru oft meiri erfiðleikar innan stjórnar- flokkanna hvors um sig heldur en á milli þeirra." - Allirþekkja deilurþeirra Davíðs Oddsson- ar og Þorsteins Pálssonar, sem kalla má leið- toga hinna tveggja arma Sjálfstæðisflokksins. Setja þessir flokkadrættir ekki nokkurt mark á Sjálfstæðisflokkinn og starf hans um þessar mundir - og hvar stendur þú í þeim slag? „Þetta umtal um ágreining milli forystu- manna Sjálfstæðisflokksins hefur ugglaust meiri áhrif eftir því sem fjær dregur þessu fólki sjálfu. Ég held að þetta sé meira í ímyndun fólks en í samstarfinu sjálfu. Það er ekkert í samstarfi þessara tveggja manna né annarra forystumanna Sjálfstæðisflokksins sem gerir það að verkum að einhverjir erfiðleikar séu frá degi til dags. Hins vegar er Ijóst að það hlaut að verða mjög erfitt fyrir þá sem biðu lægri hlut í kosningum á síðasta landsfundi að taka upp þráðinn á ný. En ég hef ekki séð annað en að Þorsteinn Pálsson starfi af fullum heilindum í þessari ríkisstjórn. Og það er ekkert sem kall- ast getur stórkostlegt vandamál milli þessara tveggja manna í ríkisstjórninni. Það er hins vegar hefð í Sjálfstæðisflokkn- um, sjálfsagt vegna þess hve stór hann er, að menn skiptast gjarnan í fylkingar. Flokkurinn hefur oft verið byggður utan um ákveðnar per- sónur en ég held að þess hafi gætt miklu meira hér fyrr á árum. Þá er nú skemmst að minnast Geirs Hallgrímssonar og Gunnars Thoroddsens en það var alveg Ijóst að mjög á- kveðnir fylgishópar stóðu að þeim. Allt slíkt hefur mjög riðlast og engin vandamál eru uppi í daglegu starfi forystumanna flokksins." VARAFORMAÐUR HJÁ ÞREMUR FORMÖNNUM „Mín staða er kannski að nokkru leyti einstök því að ég hef verið varaformaður hjá þremur formönnum flokksins, Geir Hallgrímssyni, Þor- steini Pálssyni og Davíð Oddssyni. Ég hef litið á stöðu varaformannsins fyrst óg fremst þeim augum að hann eigi að standa við hlið for- mannsins, hver sem hann er, og reyna að gera sitt besta til þess að halda þessum stóra flokki saman. Það er eitt helsta verkefni vara- formannsins að sinna flokksstarfinu en því miður hefur tímaskortur aftrað mér frá því að undanförnu. Það er mér reyndar áhyggjuefni hve lítill tími hefur gefist til þess að sinna flokksstarfinu. Ég er alinn upp í þessum flokki frá unga aldri - ég er til dæmis búinn að vera í miðstjórn flokksins frá 1969 og er því að verða með elstu mönnum í forystunni. Ég varð fyrst varaformaður fyrir tólf árum og tel mig gjör- þekkja allt félagsstarf flokksins. Mér er því sjálfsagt Ijósara en mörgum hve mikilvæg fé- lagsstarfsemin í flokknum er. Ég hef nokkrar 28 VIKAN 8.TBL. 1993

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.