Vikan - 21.04.1993, Qupperneq 30
JÓNA RÚNA KVARAN MIÐILL SKRIFAR UM SÁLRÆN SJÓNARMIÐ
KÆRASTAN MÍN
ER MED BRÓKARSÓTT
SVEKKTUR OG RÁÐÞROTA
Vinsamlegast hand-
skrifiö bréf til Jónu
Rúnu og látið fylgja
fullt nafn og kennitölu,
ásamt dulnefni.
Svörin byggjast á
innsæi Jónu Rúnu og
rithandarlestri og því
miður er alls ekki hægt
að fá þau i einkabréfi.
Utanáskrift er:
Jóna Rúna Kvaran,
Kambsvegi 25,
104 Reykjavík
NIDURLÆGDUR
OG SPÆLDUR
„Ég tel mig elska hana en finn samt
að ég verö alltaf niöurlægöari og
spældari út I hana, ekkert síöur en
út í sjálfan mig. Hún þrætir fyrir allt
og getur veriö ótrúlega ósvifin í af-
stööu sinni til þess hvaö má og
ekki má í þessum efnum," segir Óö-
inn í verulega viðkvæmum kafla bréfs-
Það mál sem verður til umfjöllun-
ar núna er býsna viökvæmt og
óþægilegt og varðar ungan
strák og sambýlisstúlku hans. Þau eru
bæði rétt um tvítugt, hafa búið saman
á annað ár og eiga reyndar von á
barni í sumar. Við notumst við frásögn
hans sem er örvæntingarfull um leið
og hún er tæpitungulaus enda er
hann mjög svekktur og ráðþrota, verð
ég aö segja. Hann kýs að kalla sig
Óðin og við skulum íhuga þaö sem
veldur honum vandræðum.
ÓTÆPILEGUR KYNLÍFSÁHUGI
OG ÓSÆMILEGT DAÐUR
„Þaö er öruggt mál, Jóna Rúna, að
ég verö aö gera eitthvað í mjög
óþægilegum málum sem hafa kom-
iö upp í sambúöinni hjá mér og
kærustunni minni frá upphafi. Ég
held aö hún sé bara alls ekki hrifin
af mér því hún notar hvert tækifæri
sem gefst til aö daöra viö bæöi vini
mína og hina og þessa. Ég hef
staöiö hana að því að sofa hjá öðr-
um og þaö oftar en einu sinni,“
segir Óðinn og pirringurinn leynir sér
ekki í skrifum hans. Honum verður tíð-
rætt um framhjáhald hennar og bendir
á að þegar hann byrjaði að vera með
henni hafi hún verið í föstu sambandi
við annan strák. Hann vill þó ekki
meina að honum hafi verið kunnugt
um það fyrr en eftir á. Óðinn telur að
kynlífsáhugi hennar sé með ólíkind-
um, hún sé hreinlega haldin brókar-
sótt og hann telur hana óseöjandi.
ÁSAKANIR UM
NÁTTÚRULEYSI
„Hún hugsar gífurlega mikiö um
kynlíf og viröist aldrei fá nóg. Ég
myndi halda aö áhugi minn á kynlífi
væri ósköp eölilegur miöaö viö ald-
ur en þaö nægir henni alls ekki. Ég
er í skóla og vinn líka meö honum.
Auövitaö er ég stundum þreyttur
og tel þaö ekkert óeölilegt. Hún aft-
ur á móti ásakar mig um náttúru-
leysi, jafnvel þó viö séum saman
tvisvar á dag.“
Enn kvartar Óðinn og heldur því fram
að stundum finnist sér að þegar hún
ásaki hann um kyndeyfð sé hún meö
sektarkennd af því að hún hafi verið
með einhverju öörum. Hann segist hafa
séö ummerki um slíkt bæði í svefnher-
bergi sínu og á baðinu, fyrir utan að
eins og áður sagði hefur hann bókstaf-
lega staðið hana að verki. Hann kveðst
vera viss um aö hún sé óseðjandi þarna
og veit hreint ekki hvernig hann getur
uppfyllt krefjandi þarfir hennar.
ins. Hann er nokkuð viss um að barn-
ið, sem er á leiðinni, sé sitt barn en
þrætir ekki fyrir að sú hugsun hafi læðst
að sér aö jafnvel komi einhverjir aðrir
til greina sem faðir þess. Hann er mjög
langt niðri og hefur ekki rætt þessar á-
hyggjur sínar við sína nánustu eða vini
enda mjög niðurlægður.
KVEUANDI AFBRÝDISEMI
OG SÆRT STOLT
Hann spyr mig hvort hann eigi að
reyna aö yfirgefa hana eða hvort hann
eigi að vakta hana betur. Óðinn segist
illa geta einbeitt sér að náminu fyrir
óþægilegum vangaveltum um hana og
þá sem hún kunni að vera að dinglast
með eins og hann orðar það. Sýnilega
kvelst hann af alls kyns ófullnægju og
efasemdum. „Veistu þaö, Jóna
Rúna, aö ég er á mörkum þess aö
sturlast, held ég. Ég hugsa ekki um
annaö en þetta. Svefninn hjá mér er
mjög lítill og erfiöur." Það er mjög
eðlilegt miðað við viðkvæmt ástand
Óðins að flest fari úr böndunum hjá
honum í bili.
BILUN EDA
EÐLILEGT ÁSTAND?
„Mér líöur djöfullega og get ekki
séö hvernig ég get treyst manneskj-
unni eftir þaö sem sýnilega hefur
gerst. Hefur þú áöur heyrt um
svona lagaö? Getur veriö aö hún sé
biluö aö þessu leyti eöa eitthvaö?
Er ég hugsanlega svo mikil rola aö
hún beri enga virðingu fyrir mér?“
spyr Óðinn hryggur í bragði. Hann
treystir því að ég svari sér sem fyrst,
sem ég og geri auðvitaö. Ég nota á-
fram innsæi mitt, hyggjuvit og reynslu-
þekkingu til svaranna. Vegna þess
hve mikiö hefur borið á rangri afstöðu
til kynferðismála á liðnum árum má
kannski segja sem svo að ekki veiti af
ögn grandvarari og íhaldssamari af-
stöðu fólks til þessarar viðkvæmu og
vandmeöförnu mála.
KYNFERÐISLEGUR
LUBBAHÁTTUR
OG ÓÁBYRGT KYNLÍF
Það hefur komiö fram oftar en ekki í
seinni tíð aö bókstaflega er kynt undir
auknu frjálsræöi í kynferðismálum
meö alls kyns auglýsingaskrumi og fá-
ránlegu myndefni. Til dæmis er vísvit-
andi verið aö gylla fyrir fólki neikvætt
kynlífsatferli í kvikmyndum og blöðum
þar sem er kannski óþarflega frjáls-
lega fariö með staðreyndir og alls kyns
aflagaður kynferðislegur lubbaháttur er
undirstrikaöur gróflega. Meira að segja
er jafnvel reynt að réttlæta óeðli hvers
konar, svo sem nauðganir og fleira.
Kynlífsumfjöllun á ekki að hafa í flimt-
ingum og megininntak hennar ætti
ekki að ýta undir gróðahyggju eða af-
siðun hvers konar eins og því miður er
víða algengt í seinni tíð.
ALNÆMI VIDSJÁRVERD VÁ
Þetta er ömurleg staðreynd þrátt fyrir
aukna tíðni sjúkdóma af völdum laus-
lætis sem við veröum að vera fullkom-
lega meðvituð um. Með tilliti til þess aö
alnæmi er „vá“ sem viö veröum að
forðast er heppilegra að enginn á-
stundi lauslæti og ábyrgðarlaust kynlíf
eins og til dæmis Óöinn fullyrðir aö
kærastan hans hafi gert á bak við
hann oftar en einu sinni. Vissulega
tekur Óðinn ákveðna áhættu með því
að sofa hjá henni sjálfur, á sama tíma
og honum er fullkunnugt um aö hún
sefur hjá öðrum. Hann er þó í vanda
að þessu leyti vegna þess að hann er
að kljást við fleira en kynlíf, nefnilega
30 VIKAN 8. TBL. 1993