Vikan


Vikan - 21.04.1993, Side 33

Vikan - 21.04.1993, Side 33
sem gísl og hefst sfðan mikill bílaeltingaleikur. Lögreglukonan Rita reynir oft- sinnis að strjúka frá Santee en mistekst alltaf. Svo fer að hún verður hænd að mannræningjan- um og í lokin er það hún sem að- stoðar hann við að komast undan réttvísinni. George Segal leikur lögregluforingja sem stýrir að- gerðum lögreglunnar þegar verið er að reyna að hafa hendur f hári Santees. Eltingaleikurinn fer fram í eyðimörkum Suður-Kalifornfu og endar á breiðstræti Los Angeles þar sem kemur til blóðugs enda- tafls. Hór er það spennan og hraðinn sem ráða ferðinni. Berkely og Vanessa Williams. Myndin er byggð á smásögu eftir breska hrollvekjuhöfundinn Clive Barker sem átti hugmyndina að Hellraisermyndunum. Greint er frá tveimur háskólastúdentum sem eru á kafi f goðafræði. Með rannsókn sinni komast þeir að fornri goðsögn um sætindamann- inn eða Candyman. Samkvæmt goðsögninni nægir að endurtaka nafn sætindamannsins fimm sinnum fyrir framan spegil til að kalla hann fram úr goðsagna- heiminum. Þetta gera stúdent- arnir en hefðu betur látið það ó- gert. Mynd þessi er blanda af Freddy Kruger og Föstudeginum ÞETTA STRÁKALÍF, ÞETTA STRÁKALÍF Skoski leikstjórinn Michael Caton-Jones (Doc Hollywood, Scandal, Memþhis Belle) hefur nú leikstýrt nýrri mynd, This Boys Life, og (henni leikur sann- kallað stjörnulið á borð við Robert De Niro, Ellen Barkin (Man Trou- ble, Sea of Love) og Leonardo DiCapro. Myndin er byggð á verðlaunasjálfsævisögu Tobias Wolff og segir sögu af strák á sjötta áratugnum. Hann flyst ásamt einstæðri móður sinni til Seattle þar sem hún hittir mann sem hún vill binda trúss sitt við. Pilturinn eignast þar með stjúp- Ungir uppreisnarmenn í Þýskalandi nasista. Svipmynd úr Swing Kids. KRAKKAR I LÉTTRI DJASSSVEIFLU Myndin Swing Kids býður upp á forvitnilegan söguþráð. Hún fjallar nefnilega um það hvernig var að vera ungur í Þýskalandi nasista, rétt áður en síðari heimsstyrjöldin skall á. Því miður sofnuðu þýskir kvikmyndagerðarmenn á verðin- um. Þeir hefðu átt að taka sér tak og gera þessu efni skil því það voru ekki allir þegnar þriðja rfkis- ins nasistar. Myndin greinir frá fjórum upp- reisnargjörnum ungmennum sem segja þriðja ríkinu strfð á hendur, þó ekki með vopnavaldi heldur léttri djasssveiflu Bennys Good- man. Dansinn dunar hjá þessu unga fólki og það virðir kenni- setningar nasista að vettugi, ætl- ar sér að lifa lifinu án nokkurra hafta. í aðalhlutverkum er úr- valslið leikara. Má nefna Barbara Hershey (Defenseless), Kenn- eth Branagh (Henry V, Dead Again, Peters Friends) sem leikur nasista, Robert Sean og Frank Whaley. SÆLGÆTISMAÐURINN Candyman er ekki beinlfnis sæt mynd. Þetta er hrollvekja úr smiðju Propaganda Films, kvik- myndasmiðju Sigurjóns Slg- hvatssonar. Hún var vinsæl á haustmánuðum í Bandarfkjunum og reyndist söluhæsta mynd fyr- irtækisins ( fyrra. I Candyman leika Virginia Madsen (High- lander 3), Tom Todd, Xander 13. Hún verður bráðlega sýnd í Regnboganum. Sfgildur töffari. Dennis Hopp- er í Red Rock West. SÁ SVALI DENNIS HOPPER Dennis Hopper leikur svalan ná- unga f mynd sem heitir Red Rock West. Ásamt honum leika Nicolas Cage (Honeymoon in Vegas), Lara Flynn Boyle (Mob- sters) og J.T. Walsh (Narrow Margin). Nicolas Cage leikur fyrr- um landgönguliða sem á leið um smábæinn Red Rock. J.T. Walsh leikur reiðan og bitran eiginmann sem vill eiginkonu sfna, sem Lara Flynn Boyle leikur, feiga. Hann telur að landgönguliðinn sé leigu- morðinginn sem hann hafði kall- að til f þvf skyni að láta hann fremja ódæðið en þar fer hann mannavillt. Sfðan kemur ósvikinn leigumorðingi, sem leikinn er af Dennis Hopper, og þá fer að sjóða duglega upp úr og harðsoöin spenna verður til. Blóðug og kraftmikil átök ein- kenna myndina. föður sem leggur mikla áherslu á aga og dyggðir. Myndin þykir stjörnufín og telja kvikmyndagagn- rýnendur að Robert De Niro hafi unnið þar mikilvægan leiksigur. Karlhetjan í Interceptor. HÁSPENNA í HÁLOFTUNUM Kvikmyndin Interceptor er hröð og spennandi. Hún fjallar um hryðjuverkamenn sem ræna stolti bandarfska flughersins, nefnilega þeirri torséðu og hljóðu Stealt- sprengjuflugvéi eða F-117A sem gerði mikinn usla f Persaflóastríðinu 1991. Við fáum ekki aðeins að sjá þetta fljúgandi tækniundur heldur Ifka eina stærstu flutningavél heims, C5 flugvélina. Þýski leikstjórinn Jurgen Prochnow (Das Boot, Seventh Sign, Beverly Hills Cop 2) leikur aðalhryðjuverkamann- inn. Hetjurnar eru þó leiknar af Iftt þekktari leikurum, þeim Eliza- beth Monehead og Andrew Divoff. □ SPENNANDI FRÓÐLEGT HROLLVEKJANDI LEYNDARDÓMSFULLT OG UMFRAM ALLT SANNAR SÖGUR ERT ÞÚ ORÐINN ÁSKRIFANDI? ASKRIFTARSÍMI 813122 8.TBL. 1993 VIKAN 33

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.