Vikan - 21.04.1993, Qupperneq 35
TEXTI: JÓHANN GUÐNIREYNISSON / UÓSM.: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON OG JGR
Stúlkurnar sækja námskeiö í öllu mögulegu, meöal annars í framkomu, siövenjum og háttvisi
hjá Unni Arngrímsdóttur. Hér eru þær hins vegar á námskeiöi í snyrtingu hjá Ágústu Krist-
jánsdóttur.
Esther Finnbogadóttir framkvæmdastjóri
samkeppninnar er keppendum innan hand-
ar meö þjálfun og aöstoö.
FEGURÐARSAMKEPPNIÍSIANDS í UPPSIGLINGU:
Fegurðarsamkeppni. Orð-
ið eitl hefur mjög sterka
merkingu. Það merkir
tækifæri til frægðar og frama.
Það merkir tækifæri til starfa
við fyrirsætu- og sýningar-
störf. Það hefur ekki lengur
neikvæðan stimpil fordóma-
kenndrar umræðu. Núna líta
velflestir slíkar samkeppnir já-
kvæðum augum því þær leiða
gott af sér. Hvort tveggja gildir
þetta um þá sem að sam-
keppninni standa sem og þær
stúlkur sem taka þátt í henni.
Fyrir stúlkurnar er um veruleg
uppgrip að ræða eins og hér
kemur fram á eftir.
ÞÉTT OG ÁKVEÐIÐ
Undirbúningur fyrir sam-
keppnina stendur nú sem
hæst. Undanfarnar vikur hafa
verið undirlagðar sleitulausri
vinnu af hálfu stúlknanna
átján. Þær hafa sótt námskeið
hjá Unni Arngrímsdóttur þar
sem farið er í framkomu, kurt-
eisi og siðvenjur, svo eitthvað
sé nefnt. Þar kennir Unnur
stúlkunum til dæmis að heilsa
með handabandi en oft vill
brenna við hjá fólki að það láti
þann sem heilsað er um að
halda á hendinni fyrir sig.
Stúlkunum er kennt að gera
þetta ekki heldur taka þétt og
ákveðið í hönd þess eða
þeirrar sem heilsað er og
horfa í augu hans eða hennar
um leið. Þá er lagt kapp á að
draga fram það besta í fari
hverrar stúlku og um leið að
draga úr vanköntum ef ein-
hverjir eru, til dæmis í göngu-
lagi eða hreyfingum öðrum.
Þarna er þeim einnig kennt
að taka á móti fólki en við slík
tækifæri ber að hafa ýmislegt
í huga. Stúlkunum er kennt að
þær eigi að kynna sig um-
svifalaust fyrir aðvífandi gest-
um því það er klaufalegt að
kynna sig eftir að samræður
eru hafnar. Og vel á minnst;
samræður. Það getur verið til
lítilla heilla að hefja samtal á
því að tala um stjórnmál.
Veðrið er þá skárra því um
það getur varla verið auðvelt
að stofna til heitra umræðna
eða einarðra skoðanaskipta.
Nóg um það. Bros eru líka
kennd og skringileg bros lög-
uð. Sem dæmi má nefna að
tanngarðurinn má ekki sjást
eins og hann leggur sig.
MUSTERI -
HÁR - FÖRÐUN
Jæja. Stúlkurnar fara líka á
námskeið hjá Ágústu Krist-
jánsdóttur snyrtifræðingi. Þar
er þeim kennd öll umhirða
húðarinnar. Hver og ein fær
tilsögn eftir sinni eigin húð og
hvernig hún getur varðveitt
hana, hreinsað og meðhöndl-
að á annan hátt þannig að vel
fari um ókomna tíð. Um auð-
ugan garð snyrtivara er að
gresja og Ágústa leiðbeinir
stúlkunum sérstaklega með
Clarins og Chanel snyrtivörur.
Líkaminn, gjarnan nefndur
musteri sálarinnar, er annar
helmingurinn af fallegri konu.
Hinn er náttúrlega sálin sjálf.
Viö krýningu Brynju Vífilsdóttur sem feguröardrottingar Reykjavíkur. Meö
henni eru Nanna Guöbergs og Andrea Jónsdóttir.