Vikan


Vikan - 01.07.1993, Síða 14

Vikan - 01.07.1993, Síða 14
14VIKAN 13.TBL.1993 „Það má segja að ég vinni úr efni sem í flestum tilvikum fellur til hér á staðnum og í nágrenninu,” segir Edda. Það gerir Hlynur einnig og sækir við- inn oftar en ekki í Hall- ormsstaðar- skóg, einkum furu og lerki, jafnvel víði. Svo virðist reyndar sem listmunasmíði hafi verið stunduð í Miðhúsum frá aldaöðli. Þeg- ar verið var að taka grunninn fyrir íbúðarhúsi þeirra Eddu og Hlyns árið 1980 fannst silf- ursjóður með forkunnarfögr- um skrautgripum, sem talinn er vera frá því á 9. öld. Sér- fræðingar telja þó sjóðinn hafa verið gjaldmiðil, samtín- ing skartgripa úr silfri sem gætu hafa verið ránsfengur úr strandhöggi íslenskra pilta útlöndum. Margir þeir hlutir sem Hlyn- ur sker út eru gerðir jafnharð- an handa viðskiptavinum sem panta þá sérstaklega. I því sambandi má nefna forkunnarfagra gripi á borð við skírnar- fonta í kirkj- ur og mold- u n a r ke r, gestabækur, hússkildi, þorratrog og yfirleitt hvað sem er. Hlynur er gjarnan kall- aður til þeg- ar gefa þarf eftirminni- legar og táknrænar gjafir á stórafmæl- um til dæmis - eða þjóð- höfðingjum af ýmsu tilefni. Út- skorið tréð skreytir hann svo jafnvel með útsöguðum málmhlutum. Þegar félagar Fornbílaklúbbsins eða aðrir bílaáhugamenn, sem eru að gera upp gamla bíla, fá ekki einhverja þá hluti sem á vant- ar til að fullkomna verkið er oft haft samband við Hlyn sem smíðar þá einfaldlega á verk- stæðinu. Upphaflega ætlaði hann að læra gullsmíði en komst ekki að sem lærlingur. Ekki má gleyma því að Edda safnar íslenskum plönt- um og ilmjurtum sem hún set- ur í litla strigapoka sem hún síðan selur útlendingum. Hún málar líka íslenskar plöntur og skreytir muni þeirra hjóna með þegar því er að skipta. versluninni selja þau alls konar smámuni úr smiðju sinni. Þangað koma rúturnar í röðum á sumrin, fullar af ferðamönnum. Þau segjast selja allt sem þau framleiði og þurfi yfirleitt ekki að liggja með neitt. □ ▲ Númeratafla.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.