Vikan - 01.07.1993, Qupperneq 20
MEÐBIA-GRA
GRÆN-BRÚN AUGU
J
ELMA LÍSA GUNNARSDOTTIR
ER FJÓRÐI KEPPANDINN
í FYRIRSÆTUKEPPNI
VIKUNNAR OG WILD
Elma Lísa Gunnarsdóttir er
fjórða stúlkan sem við
kynnum í fyrirsætukeppni
Vikunnar og Wild. Hún verður
tvítug í september. „Ég myndi
þó ekki segja að ég sé dæmi-
gerð meyja,“ svarar hún bros-
andi þegar hún er spurð hvort
saman fari stjömumerki og
persónuleiki. „Kannski má
segja að ég sé dálítið við-
kvæm,“ bætir hún við. Og áður
en lengra er haldið skulum við
grennslast fyrir um nafn Elmu
enda er það frekar óalgengt.
„Ég er skírð í höfuð ömmu
minnar sem heitir Axelma,
Svanrún Axelma, en hún er
alltaf kölluð Elma,“ segir nafn-
an unga.
Talið berst nánar að Elmu
sjálfri, kostum hennar og göll-
um. „Ég er eiginlega alltaf í
góðu skapi," svarar hún
hressilega en lítur brátt í
gaupnir sér. Henni finnst svo-
lítið erfitt að tala svona um
sjálfa sig. En hún harkar af sér
þegar kemur að göllunum.
„Stjómsöm," svarar hún á-
kveðið. „En samt ekkert yfir-
máta stjómsöm," segir Elma
síðan. „Frekja, neeei, ekkert
voðaleg en ég er hreinskilin,"
bætir hún við en frekar eins og
hún sé að tala við sjálfa sig.
Elma er 172 sentímetra há,
með blágrágrænbrún augu.
Jú, mikið rétt, en það er ekki
þar með sagt að allir þessir litir
vaxi henni neitt í augum.
Nema kannski þegar brúni lit-
urinn verður áberandi en það
segir Elma gerast stundum en
að öllu jöfnu má lýsa augum
hennar sem blágráum. For-
eldrar hennar eru þau Elín
Sverrisdóttir afgreiðslustúlka
og Gunnar Þór Indriðason
prentari. Elma er ein fimm
systkina, hún er elst en hefur
misst eldri bróður. Næstelsta
systirin heitir Nína Björk og er
Ijósmyndafyrirsæta Elite, Nýs
lífs og lcelandic Models þannig
að það má segja að fyrirsætu-
hæfileikinn sé í ættinni.
Vesturbærinn og Hagaskóli
eru æskustöðvamar. Elma er
reyndar nýflutt að heiman, fór
að leigja með tveimur strákum,
risíbúð í gömlu hverfi í mið-
borginni. „Með yndislegu út-
sýni,“ segir hún dreymin og vill
greinilega á engu skipta fyrir
stöðuna eins og hún er í dag.
Og svo vel kann hún við sig á
þessum sjálfstæðu nótum að
annar sambýlingurinn er orð-
inn virkilega góður vinur Elmu
Lísu. Förum ekki nánar út í
það.
Við vendum kvæði okkar í
kross með spumingu um
menntun og starf. Störf væri
raunar rétta orðið því einn
vinnustaður er ekki nóg.
Komum að því örlítið síðar
því fyrst skal frægan telja
Kvennaskólann en þar stund-
aði Elma Lísa nám í eitt ár.
Núna er hún að spá í öldunga-
deild til stúdentsprófs þó enn
hafi ekki komið til innritunar.
Hún náði sér líka í umsóknar-
eyðublöð inn í leiklistarskólann
því það hefur lengi blundað í
henni að læra leiklist. Úr því
varð hins vegar ekki að svo
komnu máli en það er aldrei
að vita hvað verður í náinni
framtíð. Og nudd er einhvers
20 VIKAN 13. TBL. 1993