Vikan - 01.07.1993, Síða 32
TEXTIOG UÓStó.: GUNNAR H. ÁRSÆLSSON
DR. GUNNI
í S.H. DRAUMI
SEM VAR EN ER NÚ
JH
i
Dr. Gunni, aftur kominn í Landsbankann, í sumarfríi frá
námi í prentsmiöi. Hann er ennþá tryggur gömlu smáskif-
unni og hyggst gefa út þrjár slíkar á þessu ári, eina í
Finnlandi og tvær í Bandaríkjunum.
Á SAFNDISK
VIÐTAL VIÐ GUNNAR LÁRUS
HJÁLMARSSON, HELSTA NEÐAN-
JARÐARROKKARA OG NEÐAN-
JARÐARGOÐ ROKKBRANSANS
Dr. Gunni var í róleg-
heitum að taka upp
póst þegar blaðamann
bar að á Hótel Borg. „Ég er
að útbúa „katalóg“ fyrir
Smekkleysu, þar sem allt
sem gefið hefur verið út á
vegum fyrirtækisins verður að
finna. Síðan verður hægt að
panta upp úr þessum lista,“
sagði Gunni, „það er hinir
Sykurmolasvöngu útlending-
ar.“
Ánægður með að vera
kominn á disk? „Já, já. Allt
heila klabbið er fyrsti diskur-
inn sem Erðanúmúsík gefur
út. Það passaði vel að gefa
þetta út núna, bæði fyrir okk-
ur til að eiga og aðra til að
kaupa. Plöturnar (Bensín-
skrímslið skríður, Drap mann
með skóflu, Goð og Bless,
innskot GHÁ) hafa ekki verið
til á síðustu árum og því gott
tækifæri til að koma sögu
S.H. Draums á hreint."
S.H. Draumur spilaði á tón-
leikum í Tunglinu í tilefni af
útkomu Alls heila klabbsins.
Þar var fjöldi manns og stuð
mikið. Steingrímur Birgisson.
gítarleikari hafði ekki snert á
rokkhlið gítarsins undanfarin
fimm ár eða frá því að
Draumurinn hætti árið 1988,
vegna áhuga hans á að ein-
beita sér að fjölskyldumálum
og klassiskum gítarleik sem
hann kennir reyndar núna.
Dr. Gunni og Birgir Baldurs-
son trommari héldu ótrauðir
áfram í Bless, að vísu með
Gunna á gftar og Ara Eldon á
bassa. En að því kom að
Birgir hóf einnig að spila með
Mannakornum og síðar Sál-
inni hans Jóns míns, Bless
skipti svo um mannskap og
hætti síðan seint á árinu
1991.
ENDURVAKNINGIN
BÚIN
Aðspurður sagði Dr. Gunni
að tónleikarnir um daginn
hefðu verið lokatónleikar
Draumsins og ekki væri stefnt
á að endurvekja sveitina.
„Endurvakningin er búin en
við Birgir eigum sjálfsagt eftir
að vinna meira saman í fram-
tíðinni."
Áhrifin í tónlist Draumsins
til að byrja með segir Gunni
hafa komið frá sveitum á borð
við Joy Division og The Cure
en umskipti hafi orðið þegar
hann keypti plötuna Prayers
on Fire með áströlsku sveit-
inni Birthday Party. „Þá tók
hljómsveitin meðvitaða og
villta stefnubreytingu. Þegar
að Goðinu kemur get ég nú
ekki séð neina sérstaka
áhrifavalda, bara svona úr
ýmsum áttum. Bless var svo
undir nokkrum áhrifum frá
The Pixies.“
Breiðskífunni Goð var dreift
í mjög takmörkuðu magni
(um 500 eintök) í Bretlandi og
fékk mjög góða dóma í
bresku popppressunni. S.H.
Draumur fór með Sykurmol-
unum 1988 til Englands, hit-
aði upp fyrir þá en ekkert
stórkostlegt gerðist og menn
höfðu takmarkaðan áhuga á
að gera eitthvað í málunum,
32 VIKAN 13. TBL.1993