Vikan - 01.07.1993, Side 58
lyapo - indíánar vinna Brasilíuhnetur fyrir Body
ita meö kayapo - indíánum.
ita meö masaí-fólkinu í Afríku.
Ameríku. Á ferðalögum mín-
um í þriðja heiminum hafði ég
kynnst því að konur notuðu
ýmis náttúruleg efni fyrir ilm-
krem, andlitsfarða, sápu og
hárþvottaefni. Ég notaði
þessa þekkingu sem ég hafði
óafvitandi aflað mér. Ég vildi
setja upp lítið fyrirtæki sem ég
gæti rekið sjálf og séð fyrir
dætrum mínum og líka haft
tíma til að sinna þeim.
Við tókum bankalán og ég
opnaði fyrstu Body Shop
verslunina. Gordon er ein-
stakur maður, það sem mig
vantar í fyrirtækjarekstri hefur
hann og það sem hann vantar
hef ég. Þannig vinnum við
einstaklega vel saman. Fyrir
ferðina reiknaöi Gordon út að
ég þyrfti að hafa þrjú hundruð
pund í umsetningu í veltu á
viku til að fyrirtækið gæti
gengið. Gangi það ekki upp
skaltu hætta við búðina,
pakka saman öllum okkar eig-
um og koma til mín í Perú,
sagði hann. Til þess kom þó
ekki.
Frá upphafi rak ég verslun-
ina af eins mikilli hagsýni og
móðir mín haföi rekið heimili
okkar í síðari heimsstyrjöld-
inni. Ég notaði náttúruleg efni
í kremin og endurnýtti allar
umbúðir. Ég hvatti viðskipta-
vinina til að koma með gömlu
umbúðirnar og fá áfyllingu. Til
þess að fá fólk til að koma inn
í búðina sprautaði ég verslun-
ina að utan og gangstéttina
með ilmefnum. Þannig spar-
aði ég auglýsingakostnað.
Verslunin gekk vel frá fyrsta
degi og ég opnaði fljótlega
næstu búð í Chichester. Ég er
sannfærð um að mér hefði
ekki tekist að reka verslanirn-
ar hefði ég haft einhverja
þekkingu á verslun eða fyrir-
tækjarekstri. Mín einfalda
grundvallarregla
var og er heiöar-
leiki, vinnusemi
og skapandi
hugsun. Eftir
fimmtán ár í
verslunar-
bransanum
veit ég meira
um það hvað
verslunar-
bransinn
er ekki en Ge9n
hvaðhann ti,raunum á dýrum
er. Verslunarbransinn snýst
einfaldlega um kaup og sölu
og um að bjóða vöru sem ein-
hver vill kaupa. Lykillinn að
velgengni er aö vita nákvæm-
lega hvernig maður aðgreinir
sig frá samkeppnisaðilanum.
Sá sem vill setja upp fyrirtæki
veröur að gera sér Ijósa mynd
í huganum af því í hverju
hann er afburða góður. Það
er nauðsynlegt að þykja vænt
um framleiðsluna og vinnuna í
kringum fyrirtækið og sækjast
eftir að vera alltaf öðruvísi en
aðrir og bjóða upp á annað en
samkeppnisaðilarnir hafa.
Ég setti upp verslunina
vegna þess að ég var oröin
hundleið og pirruð á því að
geta ekki keypt krem eöa
sjampó í hentugum, ódýrum
og litlum umbúðum. Ég var
pirruð á því að sjá auglýsingar
um andlitsfarða þar sem lofað
var einhverju sem ekki er
hægt aö standa við. Þegar ég
verð pirruð út af einhverju í
umhverfinu veit ég að níutíu
prósent af öðrum konum eru
það líka. Það var minn grund-
völlur til að setja upp fyrir-
tæki.“
mm
j
/reuseV
Wlion you rouso n bottlo,
you roduco wnsto by ollnilnntlii|<
tlio nood tor now pnckni'lnr!-
REFILL
You snvo 20|i on ovory bottlo
you rotlll nt Tho Body Shop
Rofill Bnr.
RECYCLE
Roturn nny clonn, ompty contnlnors
from Tlio Body Shop to us nnd
wo wlll rceyclo thom.
AÐ VERA ÖÐRUVÍSI
„Ég fæ mikið út úr því að gera
hlutina öðruvísi en aðrir. Það
var til dæmis eins og aö brjóta
einhverjar reglur að nota ekki
útstillingarglugga verslunar-
innar til að sýna framleiðsluna
en kynna þess f stað stað-
reyndir úr þjóðfélaginu og um-
hverfinu, eitthvað sem við
fundum verulega til
með.
Ég er sannfærð
um að meö því að nota
útstillingargluggana í verslun-
um okkar um allan heim hafa
milljónir manna og kvenna,
sem framhjá hafa farið, farið
aö hugsa á annan hátt. í þjóð-
félagi þar sem stjórnmála-
menn eru ekki lengur til fyrir-
myndar og fjölmiðlar gefa ekki
rétta mynd af því sem er að
gerast í heiminum heillar það
mig að geta nýtt verslanirnar
til menntunar, fræðslu og upp-
lýsinga um umhverfismál og
þjóðfélagsleg málefni.
Til þess að halda mér niðri
á jörðinni og til að kynnast að-
stæðum þjóöflokkanna vel
ferðast ég meðal frumbyggja í
Brasilíu, Nepal og fleiri staða
að meðaltali sex mánuði á ári.
Fólkið sem ég kynnist á þess-
58 VIKAN 13.TBL. 1993