Vikan


Vikan - 01.07.1993, Side 59

Vikan - 01.07.1993, Side 59
VIÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR: um feröalögum mínum gefur mér mikla sálarró. Mesta gleði mín í lífinu er aö gefa. Maður á ekki aö halda í peningana sína og safna auði til að liggja á hon- um. Dætur mínar vita að það er mikil ábyrgð fólgin í því að eiga mikið af peningum. Þær vita líka að þær munu ekki erfa eina einustu krónu úr fyrirtækinu. Ég hef kennt þeim að þær eigi ekki að meta sig eftir tekjum sínum. Allur minn auður verður gefinn til skóla og heimila fyrir hjálparlausa og munaðarlausa. Ég hef alltaf vitað að aðgangur að miklum peningum getur auð- veldlega eyðilegt líf mann- eskjunnar. Það er hættulegt að vera ríkur því maður getur keypt allt og selt sálu sína. Ég var á fertugsaldri þegar ég eignaðist mikla peninga en ég hélt áfram að lifa einföldu lífi. Ég fékk stundum samviskubit yfir öllum þessum peningum þar til ég áttaði mig á því að ég hafði þrælað mér út fyrir fyrirtækið. Ég hafði skapað at- vinnu fyrir fjölda fólks og alltaf greitt því góð laun. Það getur virst einkennilegt að við skyldum opna Body Shop verslanir í Mussat_ í Oman áður en við opnuðum verslun í New York og við opnuðum verslun í Reykjavík mörgum árum áður en við opnuðum verslun í San Diego. Við höfö- um opnað um þrjú hundruð verslanir um allan heim áður en við fórum með verslun til Ameríku. Okkur var sagt að við yrð- um að haga viðskiptum okkar að hefðbundnum amerískum verslunarmáta, sem sagt þeim sem tíðkast í Ameríku, öðruvísi gæti verslunin ekki gengið þar. Þrátt fyrir að allir sem viö töluðum við ráðlegöu okkur að auglýsa kom mér ekki til hugar að borga fyrir eina einustu auglýsingu til að kynna verslanirnar í Ameríku. Það hefur verið markmið hjá mér að nota ekki eina einustu krónu í beinar auglýsingar. Viðskiptablaðið The Wall Street Journal hafði það eftir prófessor úr Harvard Busi- ness School að það þyrfti meiri háttar auglýsingaherferð til að kynna Body Shop versl- anirnar á Ameríkumarkaði. Ég lék þann mótleik að gefa út póstkort sem á stóð: „Eg mun aldrei ráða til mín í vinnu neinn sem hefur gráðu frá Harvard Business School.“ Fyrsta Body Shop verslunin var opnuð í New York í júlí 1988. Þrátt fyrir hrakspár sér- fræðinga tóku Bandaríkja- menn betur á móti okkur en við áttum von á. Fjölmiðlar og blöð gerðu mun meira fyrir okkur en nokkur auglýsing hefði nokkurn tíma getað gert." Hvað almenningstengsl varðar er Anita Rodd- ick ákveðin í að láta sig þjóðfélags- og umhverfismál skipta. Meðan yfirmenn annarra stórfyrir- tækja tala um frama eða mistök talar hún um end- urmenntun, um- hverfis- og þjóð- félagsleg tæki- færi og mann- legri viðskipta- hætti. Hún segir að það sem allir vilji vita en enginn virðist geta fundið út sé hvort bein lína sé milli verðleika fyrirtækis og frama. Þegar hún er spurð hvernig hún fari að segir hún: * í fyrsta lagi verður að vera cjaman. * I öðru lagi verður að miðla ást og umhyggju til starfs- mannanna. * í þriðja lagi þarf að fara í öf- uga átt við alla hina. □ Amnesty International. ANDLITSBÖÐ, HÚÐHREINSUN, LITUN, FÓTSN YRTIN G, HANDSNYRTING, DAG- OG KVÖLDSN YRTIN G, VAXMEÐFERÐ. Opið alla virka daga frá kl. 9-6 nema fimmtudaga til kl. 7. nr) hái'sinrtistoían ART Gnoðarvogi 44-46 • 104 Reykjavík sími: 39990 Elín Jónsdóttir, hárgreiðslumeistari, Ásta K. Árnadóttir. Elva B. Ævarsdóttir, Halla R. Ólafsdóttir. HÁRSNYRTIÞJÓNUSTA FYRIR DÖMUR, HERRA OG BÖRN FÁKAFENI 11 108 REYKJAVÍK SÍMI 688805 HÁRSNYRTISTOFAN GRANDAVEGI 47 <p 62 61 62 RAKARA- <t HÁRqRE/ÐSMSTVFA HVERFISGÖTU 62 -101 REYKJAVlK 13. TBL. 1993 VIKAN 59

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.