Vikan - 02.12.1993, Blaðsíða 41
- Hvernig líst þér á þessa Ijós-
mynd af konunni minni?
- Ágætlega. Paö mun vera
augnabliksmynd?
- Hvers vegna heldurðu
þaö?
- Munnurinn á henni er lok-
aöur.
í Þingeyjarsýslu var það orðatil-
tæki að „bjóða klofiö" þegar hús-
freyjan drýgði sykurinn með því
að klippa molana í tvennt.
Því orti hagyrðingur á Húsavík
eftirfarandi vísu:
Sárt þótt vanti sykurinn
síst mun skorta lofiö,
brosir hún framan í bónda sinn
og býður gestum klofiö.
Kennarinn: Þetta er nú í
fimmta skipti sem þú hefur
oröiö að sitja eftir þessa viku,
Finnur. Hvaö segir þú viö því?
Finnur andvarpar: Æi, ég er
svo feginn aö það skuli vera
föstudagur í dag.
- Ég ætla að giftast í næstu
viku, Stína.
- Nei, nú þykir mér týra. Og
hverjum?
- Honum Pétri sem ég kynnt-
ist við Hvítárvatn í sumar.
- Jæja, ég hélt að það hefði
ekki veriö annað en saklausar
sumargælur.
- Já, þú hélst það. Og það
hélt hann Pétur líka.
- Jæja, Halli minn, helduröu
aö henni systur þinni þyki
vænt um trúlofunarhringinn
sem ég gaf henni?
- Sei-sei-já. En henni finnst
hann víst heldur lítili því aö
hún er alltaf í vandræðum meö
aö ná honum af sér þegar
hann Jóhann kemur.
- í morgun gaf matseljan okkur
fúlegg með morgunkaffinu. Og
hvort sem þú trúir því eða ekki
þá fengum við vatnið, sem hún
haföi soðið þau í, í dag. Hún kall-
aði það kjúklingasúþu.
- Hvers vegna situr þú og
drekkur frá morgni til kvölds?
- Hvenær ætti ég aö gera
þaö annars. Helduröu aö ég
veröi ekki aö fá nætursvefn?
FINNDU 6 VILLUR
Finniö sex villur eöa fleiri á milli mynda
•9 |iq ? qj8a qbuuv '9 uujpon jnjn|>jese/\ 'p ede>| ubqjs '6 uujjjoij ||jg z 'Q|a wæq !j|i>js ' \
STJÖRNUSPÁ
HRÚTURINN
21. mars-20. apríl
v Þú ert opinn fyrir nýjungum
um þessar mundir og aukinn kraft-
ur knýr þig áfram. Forvitni og löng-
un til nýrrar lífsreynslu setur mark
sitt á annars gráan hversdagsleik-
ann. Nýtt ástarsamband gæti leitt
þig á rétta braut.
M nautið
y j 21. apríl - 21. maí
Þér finnst sem sótt sé að
þér á veraldlega sviðinu og reynir
að halda fengnum hlut. Þú hefur
samt óþarflega miklar áhyggjur og í
raun hefurðu ekkert að óttast.
Stattu einfaldlega fast á þínu og
vertu samkvæmur sjálfum þér, það
er allt og sumt.
TVÍBURARNIR
22. maí - 21. júní
Upp á síökastið hafa
árekstrar við þína nánustu eða
samstarfsfólk sett strik í reikninginn
hjá þér. Nú virðist vera að birta til í
þessum efnum og þú átt eftir að
eiga góða samvinnu við aðra, jafn-
vel þann sem þú hélst að þú gætir
alls ekki komist að samkomulagi
við.
KRABBINN
22. júní - 23. júlí
Ákveðinn atburður verður
til þess að leitað verður til þín með
mál sem þú skalt leggja þig fram
um að leysa. Þetta mun verða til
þess að treysta þig í sessi og auka
sjálfstraustið. Þér mun líða illa ef
þú víkur þér undan.
UÓNID
24. júlí - 23. ágúst
Það hefur ýmislegt gengið
á að undanförnu og mikið verið að
gera. Margt bendir til þess að um
sé að hægjast og þú eigir eftir að
njóta þess tíma betur en áður sem
þú verð heima hjá þér. Það þýöir
samt ekki að þú sitjir heima og
hreyfir þig hvergi því að spenna er í
loftinu og hún dregur þig á ákveö-
inn stað áður en langt um líður.
MEYJAN
24. ágúst - 23. sept.
Ýmsar breytingar og fram-
kvæmdir á heimiii eða vinnustað
gætu valdið nokkrum óróleika um
stundarsakir. Þetta reynist samt
ómaksins vert því ýmislegt mun
breytast til batnaðar. Þú þarft að
líkindum á þvi að halda að verja
gerðir þínar á vissu sviöi.
VOGIN
24. september - 23. okt.
Það er ekki alltaf nauðsyn-
legt að sækja vatnið yfir lækinn og
margt i næsta nágrenni við þig á
eftir að koma þér á óvart ef þú
skoðar grannt ákveðna hluti. Því
skaltu endurskoða áætlanir þínar ef
þú hefur ætlað að leggja land undir
fót.
SPORÐDREKINN
24. október - 22. nóv.
Gættu þess að eyða ekki
um efni fram í hluti sem þú kannt
að sjá eftir. Láttu peningana koma
að gagni, sjálfum þér eða öðrum.
Þeir kæmu í góðar þarfir hjá þeim
eða þeirri sem þú elskar.
BOGMAÐURINN
23. nóvember - 22. des.
Eitthvað verður til þess að
sumir veita þér mikla athygli. Því er
ábyrgð þín mikil vegna þess að
þetta fólk reynir að taka þig sér til
fyrirmyndar. Vertu því góð fyrir-
mynd, það getur þú með því að
láta kærleikann ráða gjöröum þín-
um í samskiptum þínum við þetta
fólk.
STEINGEITIN
23. desember - 20. jan.
Þaö er mikilvægt að þú
sért vandlátur og látir þér ekki allt
gott þykja. Gerðu þér grein fyrir að
þú getur ekki gert alla jafnánægða.
Reyndu að komast að því á meðal
hverra þér hefur tekist best upp.
VATNSBERINN
21. janúar -19. febrúar
Þú hefur mikla þörf fyrir að
vera úti á meðal fólks um þessar
mundir. Tilefnin eru mörg sem gef-
ast og þér þykir gott að hafa sam-
bönd þín sem fjölbreytilegust. Þetta
getur valdið árekstrum á sviði ást-
arinnar en ef þú ferð varlega mun
jafnvægið haldast.
FISKARNIR
20. febrúar - 20. mars
Ýmis einkamál hverfa brátt
í skuggann fyrir ýmsu sem upp
kemur á sviði atvinnu þinnar eöa
náms. Þetta gerist um leið og
metnaður þinn á því sviði verður
meiri. Þér er i mun að hljóta viður-
kenningu fyrir það sem þú hefur
verið aö gera.
24. TBL. 1993 VIKAN 41