Vikan - 05.03.1994, Qupperneq 27
VÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR:
„Menn verða að bera
ábyrgð á sínum gerðum,
vera sjálfum sér samkvæm-
ir, vinir vina sinna og koma
fram við náttúruna af virð-
ingu. Á íslandi er mjög lítill
munur á kristnum og þeim
sem aðhyllast ásatrú. Það er
því erfitt að tiltaka eitthvað
sem við ástundum og kristnir
menn myndu ekki ástunda
og öfugt. Hugsanlega er að-
almunurinn á kristni og ása-
trú sá, án þess að farið sé í
smáatriði, að kristni og önn-
ur opinberuð trúarbrögð eru
orðin svo skipulögð að ekki
er hægt að ræða um þau
sem lifandi trúarbrögð, eins
og við skiljum það hugtak.
Þau geta því ekki fylgt með
tímanum. Þau eru orðin lag-
skipt og geta ekki aðiagað
sig að breytingum jafnhratt
og trúarbrögð sem ekki eru
eins skipulögð. Hitt er svo
annað mál að ásatrúarmenn
eru trúlega allt of illa skipu-
lagðir.“
Hvaða lestrarefni er til fyrir
þá sem vilja læra undir-
stöðuatriði ásatrúar?
„Það er alltaf best að fara
beint í uppsprettuna og
bæði Sæmundar og Snorra
Edda eru aðaluppspretta
þess hvernig forfeður okkar
tóku við guðunum og náttúr-
unni. Einnig er hægt að lesa
sér til í íslendingasögunum
um hvaða áhrif ásatrú hafði
á þá sem játuðu hana. Fólk
fær meira út úr því að lesa
þær með opnum huga en að
lesa vísindalega eða sögu-
lega úttekt á þessum fræð-
um.“
Hvað getum við lært af
guðunum?
„Maðurinn hefur skapað
guðina í sinni mynd og Þór
er sá guð sem flestir íslensk-
ir karlmenn vildu líkjast. Þór
var sá guð sem mest var
dýrkaður á íslandi. í dag lít-
um við á Þór sem stóran,
sterkan, tryggan, fámálan
verndara sem lætur verkin
tala; hreinan og beinan og
flækjulausan. Þór er líka að
finna í um helmingi íslenskra
karlmannsnafna.
Óðinn er hins vegar mjög
margræður guð. Hann er
shaman (seiðmaður), en líka
viskuguðinn og á vissan hátt
guð klækja og brellna. Hann
er vitanlega einnig stríðs-
guðinn, ásamt Freyju, sem
er þvert á það að upphaflega
var hann guð visku og skáld-
skapar. Óðinn varð guð kon-
unga og víkinga og allra sem
ætluðu sér að ná langt og ná
miklum andlegum völdum.
Óðinn getur breytt sér í allra
kvikinda líki og jafnvel
áhangendur hans sögðu:
„Valt er Óðni einum að
treysta."
í Frey og Freyju er að
finna frjósemina sjálfa. Þau
tákna frjósemi jarðar og við-
hald stofnsins. Áður fyrr
valdi fólk sér guð að fyrir-
mynd og til forna tóku menn
sér nafn guðsins með því að
bæta nafni hans inn í nafn
sitt. Þannig tengdist fólk
þeim guði og hegðaði sér
samkvæmt því.“
GLEÐI ER KJARNI
ÁSATRÚAR
Það, sem helst greinir ásatrú
frá kristni, er að ásatrúarfólk
trúir ekki á erfðasyndina -
en hver er kjarni ásatrúar?
„Gleði er kjarni ásatrúar-
innar. Að njóta lífsins. Að
flækja ekki málin. Að fylgja
straumnum. Hugmyndin er
ekki sú að fylgja honum
gagnrýnislaust, heldur að
vera ekki í andstöðu, búa
ekki til vandamál.
Ef til væri synd í ásatrú þá
væri ekki til fyrirgefning
synda. Allt hangir saman og
brjóti fólk af sér er refsingin
innifalin í þeirri gjörð. Ef þú
veiðir of mikinn þorsk, kem-
ur enginn reiður guð og refs-
ar þér, þú bara færð ekki
fisk á næsta ári. Sama er ef
of mikið er beitt á hálendið
þá er ekki hægt að beita þar
á næsta ári því gróðurinn er
búinn. Þetta er semsé ekki
hægt að fyrirgefa því hvorki
fiskurinn né gróðurinn kem-
ur til baka og það er það
sem maðurinn verður að
skilja.
Ég lít svo á að orðið heið-
inn þýði það sama og heiður
himinn eða: „Þar sem engan
skugga ber á“ og þannig
eiga menn að vera ásatrúar.
Þeir eiga að vera opnir og ef
við viljum vera eins og Þór,
þá eigum við að vera heið-
ríkir, flækjulausir, ekki svikul-
ir og fólk á að vita hvar það
hefur okkur. Svo þýðir heið-
inn líka að vera í tenglsum
við landið og náttúruna og
það eru íslendingar, þrátt
fyrir að við séum orðnir ótta-
lega mikil borgarbörn að
mörgu leyti,“ segir Jörmund-
ur Ingi, tilvonandi allsherjar-
goði. □
hársnyTtistofan
ART
Í1Í I
Gnoðarvogi 44-46 • 104 Reykjavík
sími: 39990
Elín Jónsdóttir, hárgreiðslumeistari,
Ásta K. Árnadóttir. Elva B. Ævarsdóttir,
Halla R. Ólafsdóttir.
Þjáist þú af —
vöðvabólgu, bakverk, brjósklosi, þvagleka,
gigt, tognun eða viltu bara grennast.
Trimm-form getur hjálpað.
Bjóðum einn prufutíma.
VERD FRÁ 6000 KR.
f5% stgr. afsl. til fO. mars
SNYRTISTOFU ÁRBÆJAR
HRAUNBÆ 102 - SÍMI 68-93-10
HULDA
HARSNYRTISTOFAN
GRANDAVEGI 47 <p 62 61 62
Hárgreiðslustofa
U
1
Bleikjukvísl 8, Sími 673722
OPIÐ MANUD. - FOSTUD. KL. 9 - 18.
LAUGARD. KL. 10-14.
\SfMf 13314
kunsl
RAKARA- ct HARqREfÐSCOfSTDRA
HVERFISGÖTU 62-101 REYKJAVÍK
BRIDDS