Vikan - 05.03.1994, Side 37
Æfingatuðran kastast til undan þungum höggum Hjalta og synirnir ungu rjúka næstum
um koll. Veröur loftslagiö í Nevada til aö lina asma drengjanna?
ég gæti þetta væri um að
gera að sækja, það væri í
það minnsta betra en verða
„buffaður".
Sem betur fer fyrir mig var
ákveðið að hafa loturnar ein-
ungis tveggja mínútna lang-
ar því eftir fyrstu tvær minút-
urnar var ég alveg búinn,
kominn í þrot með súrefni og
þurfti því meira en eina mín-
útu til þess að jafna mig. En
það var í lagi, milli lota voru
tvær til þrjár mínútur. Því
eins og John sagði, þá var
bardaginn haldinn til þess að
finna út hvað ég gæti en ekki
til að komast að því hvað ég
gæti ekki gert.
Snemma í annarri lotu
fékk ég öflugt hægri handar
högg beint á nefið og ennið.
Höggið var frekar sársauka-
fullt og ég man að ég hugs-
að með sjálfum mér: „Já,
þetta er þá svona.“ En sem
betur fer hélt ég fullri rænu
og sótti eins mikið og ég gat.
Ég náði að koma á hann röð
af vinstri og hægri handar
höggum og endaði með
góðu hæri handar hliðar-
höggi. Og náunginn lá á
gólfinu og þá létti mér. Hann
rotaðist ekki en var lítt til
stórræðanna það sem eftir
var lotunnar.
í þriðju og síðustu lotunni
gerði ég lítið annað en verj-
ast. Hann ætlað svo sannar-
lega að koma mér í gólfið.
Eg heyrði vel hvæsið í hon-
um og hugsaði um það eitt
að halda mér innan hrings-
ins og á fótunum. Einhvern
veginn tókst mér það og
þessum fyrsta bardaga mín-
um lauk því án þess að ég
færi nokkru sinni í gólfið. Ég
tel það lofa nokkuð góðu.“
PENINGARNIR KOMA
EF VEL GENGUR
Og innan tíðar pakkar fjöl-
skyldan pjönkum sínum nið-
ur og heldur til Las Vegas
þar sem alvaran bíður box-
arans. En hvað með eigin-
konuna, er ekki erfitt að rífa
sig upp með rótum og stofna
nýtt heimili á nýjum stað?
Ekki segir hún. „Ég er á
margan hátt fegin þótt alltaf
sé erfitt að kveðja vini og
kunningja en síðustu ár hafa
verið erfið fyrir okkur. Báðir
synir okkar, Greypur og Árni,
hafa verið miklir asmasjúkl-
ingar. Það miklir að ég hef
oft sagt í gamni að ég sjái
meira af heimilislækninum
okkar en Hjalta!
Asmi strákanna hefur ver-
ið verulega erfiður og lyfin
dýr. Veikindi þeirra hafa
einnig orðið til þess að ég
hef lítið sem ekkert getað
unnið úti síðustu árin. Ég
hlakka því til að komast út
því loftslagið í Las Vegas er
mun betra fyrir asmasjúkl-
inga en hér heirna."
Hjalti segir að hann verði
enginn auðkýfingur á því að
flytja út. „Okkur verður séð
fyrir helstu nauðsynjum, þ.e.
þokkalegu einbýlishúsi og
peningum sem eiga að
nægja fyrir uppihaldi en ef
vel gengur þá ætti ég að
geta haft eitthvað upp úr
þessu.“
En Ethel segir að það sé
ekki peningavonin sem dragi
þau út, „því ég hef oft sagt
að ég vilji frekar hafa Hjalta
snauðan en dauðan!
Þetta er hins vegar kjörið
tækifæri til þess að skipta
um umhverfi og hugsanlega
losna undan skuldum hér
heima og best væri ef dreng-
irnir hefðu það betra í lofts-
laginu ytra.
Margir eru hneykslaðir á
okkur og spyrja um það í
vandlætingartóni hvað við
ætlum að gera ef Hjalti nái
engum árangri. Fólk spyr
jafnvel hvort við ætlum að
koma heim með skottið á
milli fótanna?
Mér finnst þessi hugsun
óþroskuð, barnaleg og
reyndar sorgleg. Því skárra
er það nú stoltið hjá fólki ef
það getur ekki flutt heim ef
hlutirnir ganga ekki fullkom-
lega upp í útlöndun.
Við erum sátt við að gera
tilraunina og ef hún mistekst
þá komum við heim, reynsl-
unni ríkari.“ □
KEÐJUBRÉFIN
FRH. AF BLS. 33
Hefur þetta ýtt undir
áhuga þinn á að taka þátt í
fleiri peningakeðjum?
Ég er nú ekkert mjög æst.
Viðhorf mitt hefur þó aðeins
breyst. Ég er jákvæðari
gagnvart þessu. Ég bara
samgleðst öðrum sem fá
eitthvað út úr svona hlutum.
Ég fann fyrir öfund í minn
garð fyrst þegar ég fór að fá
einhverja peninga. Það fólk
hafði í byrjun haft alveg jafn
mikla möguleika og ég. Þá
vildi það ekki vera með. En
þegar ég fór að fá einhvern
pening þá urðu allir brjálaðir
í þetta. Það rann æði á fólk.
Þeir sem ekki hafa fengið
neitt fóru að tala um að það
væri hægt að svindla í
þessu. En þegar ég spurði
hvort einhver vissi til þess
að það hefði verið svindlað
þá sögðu allir nei. En núna
þegar margir aðrir hafa líka
fengið pening þá finn ég
ekki eins fyrir þessu.
Kemur þú til með að
nota þessa peninga eitt-
hvað öðruvísi en launin
þín?
Fólk hefur verið að segja
við mig að eyða þessu bara
í mig, gera eitthvað óskyn-
samlegt við peningana en
raunin hefur verið sú að
þetta hefur bara farið í heim-
ilishaldið. Þessu hefur verið
skynsamlega eytt.
Ég hef samt fengið alveg
ótrúlegustu viðbrögð frá
fólki. Sumir hafa sagt að
þetta sé illa fengið fé, að
svona peningar geti aldrei
leitt neitt gott af sér. En ég lít
bara á þetta eins og hvern
annan happadrættisvinning.
Ég ætla nú samt ekki að
gera eins og fólkið sem
vann hálfa milljón i happa-
drætti. Það ákvað að nota
þessa peninga í eitthvað
annað en skuldir og dreif sig
í að endurnýja gömlu drusl-
una. Borgaði með peningun-
um og fékk afganginn á
bréfi. Þegar heim var komið
höfðu þau ekki grynnt á
neinu heldur aukið skuldir
sínar um hálfa milljón. □
2. TBL. 1994 VIKAN 37