Vikan - 20.03.1995, Page 7
■ V'í^
nú Ijóst hvernig á fötlun
hennar stendur og þónokkr-
ar rannsóknir voru geröar á
Aðalbjörgu í móöurkviði,
m.a. meö legvatnsprófun og
könnun á fóstrinu 16 vikna
gömlu.
Engin fleiri slík tilfelli hafa
komiö upp hér á landi síðan
Aðalbjörg leit augum Ijós
heimsins áriö 1984. Og varla
í öllum heiminum því aöeins
er vitaö um svipaða fötlun á
einum stað annars staðar í
veröldinni. Hún hefur skotið
upp kollinum í Puerto Rico
og fræöilega er jafnvel unnt
að rekja þá fötlun til ís-
lenskra forfeðra.
GLÁP OG UPPNEFNI
ERFID
Aðalbjörg, þetta bros-
hýra kraftaverk, hefur
fylgst með samtalinu án
þess að leggja orð í
belg. Hvað
þyk-
ir henni um að hlusta á
svona umræðu um hana
sjálfa og fötlunina?
„Mér finnst það allt í
lagi.“
Finnurðu fyrir því að þú
sért öðruvísi en annað
fólk?
„Bara þegar verið er að
glápa á mig. Þá reyni ég að
koma mér í burtu. Mér
finnst þetta þó ekki eins
óþægilegt núna og þegar
ég var yngri því ég er orðin
vön þessu.
Og stundum segja krakk-
ar við mig að ég sé padda
af því ég sé svo lítil."
Segirðu þá eitthvað á
móti?
„Já, til dæmis við strák í
bekknum mínum, sem upp-
nefnir mig svona, segi ég
að hann sé risi af því hann
sé svo stór,“ svarar Aðal-
björg og kímir.
Hún gengur í Setbergs-
skóla í Hafnarfirði og segir
Bogga það einkum vera
vegna þess að þar sé góð
aðstaða fyrir fatlaða.
Skólasvæðið slétt og lyfta
milli hæða. Og ekki þarf að
sjá eftir þeirri ákvörðun því
vel er farið með hana.
Hvað er skemmtilegast
að læra í skólanum?
„Um landnámið, ís-
landssöguna," svarar
Aðalbjörg án þess að
hika og það kemur á
daginn að henni
gengur vel í skólan-
um og hún fær góðar
einkunnir. En hvað
skyldi henni leiðast?
Nú hikar hún
þangað til mamma
hennar segir hlæj-
andi að margt þyki
Aðalbjörgu
skemmtilegra en
prjónaskapur.
„Það er bara erf-
itt og ég er miklu
lengur með alla
handavinnu, bæði í
saumum og smíði,
heldur en aðrir," segir Að-
albjörg þá án þess að
bregða svip. í handavinn-
unni fær hún stuðning til
þess að halda í við bekkjar-
félaga sína.
Hvað með frímínúturnar?
„Þær eru skemmtilegar
nema þegar er hálka. Þá
get ég ekki farið út.“
Líður þér vel í skólanum?
„Já, já. Og bekkurinn
minn er fínn.“
Áttu marga vini?
„Já, nokkra," svarar Að-
albjörg en þar er á ferðinni
dálítið vandamál því flestir
bekkjarfélagarnir búa f
öðru hverfi í Hafnarfirði og
langt er að fara. Skutlið er
því ríkur þáttur í móðurhlut-
verkinu. En Aðalbjörg seg-
ist eiga tvær vinkonur í
næstu húsum sem hún geti
leikið sér við.“
Hvernig hefur þér gengið/ >
að eignast vini? / O
Aðalbjörg dregur seiminn Z
í svarinu. „Ég veit ekki
hvað skal segja. Það héfur
að minnsta kosti ekki verið ct
vandamál í skólanum." 0:
Hvað finnst þér gaman ^
að gera annað en vera í !Z!
skólanum?
„Hjóla, fara með krökkun- c/>
um í leiki og þegár við leik- O
um okkur niðri í',fjöru.“ Z
Er ekkert erfitt fyrir þig að
leika þér í fjö/unni?
„Nei,“ svarar hún svo
ákveðiö að ekki þarf frekar
að spyrja.
O'
ZL
>
Q
70
m
-<
Z
co
oo
O
O'
CO
3.TBL.1995 VIKAN 7
Im&mmmm,