Vikan


Vikan - 20.03.1995, Qupperneq 58

Vikan - 20.03.1995, Qupperneq 58
SPURNINGARLEIKUR 12. Hver af eftirfarandi heldur þú að maki þinn vildi helst vera? Útskýrið einnig hvers vegna. A. Davíð Oddsson B. Stefán Jón Hafstein C. Sigmundur Ernir D. Bubbi Morthens E. Jón Baldvin Hannibalsson F. Kristján Jóhannsson G. Baltasar Kormákur H. Sigurður Sveinsson I. Róbert Arnfinnsson A. Vigdís Fimmbogadóttir B. Elín Hirst C. Ólöf Rún Skúladóttir D. Björk Guðmundsdóttir E. Jóhanna Sigurðardóttir F. Sigrún Hjálmtýsdóttir G. Steinunn Ólína Þorsteins- dóttir H. Ragnheiður Runónfsdóttir I. Herdís Þorvaldsdóttir 13. Hvað heldur þú að maki þinn vilji helst að þið eigið sameiginlegt? A. Gott kynlíf B. Góða kímnigáfu C. Góðar gáfur D. Skemmtileg „hobbý" E. Mikla virðingu hvort fyrir öðru F. Hver veit? G. Mikla peninga 14. Nú skaltu látast vera maki þinn og Ijúka eftirtöldum setningum eins og þú álítur að hann/hún myndi gera A. Ef ég ætti hálfa mílljón þá myndi ég kaupa mér_________ B. Viðkvæmasti bletturinn í sambandi okkar er/eru_________ C. Mesti vitleysingurinn í fjölskyldunni er_______________ D. Heitast af öllu þrái ég _______________________________ E. Ég er langhreyknust/ -hreyknastur af___________________ F. Það sem þú dáir mest í fari mínu er_____________________ G. Það sem þér fellur verst í fari mínu er________________ H. Ef ég væri forsetinn þá myndi ég_______________________ SEGJUM SVO AÐ ÞÚ HÉLDIR FRAMHJÁ. HVAÐ MYNDI MAKI ÞINN GERA í MÁLINU? A. KOMA SÉR í BURTU HIÐ SNARASTA B. VIUA VITA ALLT UM MÁLIÐ C. VILJA ALLS EKKERT VITA D. REYNA AÐ SKILJA DÆMIÐ E. LÁTA ÞIG FÁ ÞAÐ ÓÞVEGIÐ Spurning 7: Þið fáið 5 stig í hvert skipti sem þið samþykkið álit hvors annars á því hvort fullyrðingarnar frá A - L séu sannar/ekki sannar. Spurningar 8 - 11: Þið fáið 10 stig fyrir hvert svar sem þið eruð sammála um. Spurning 12: Ef þið hafið getið ykkur rétt til um það hver hinn makinn vildi helst vera þá fáið þið 20 stig. Og ef þið eruð einnig sammála um hvers vegna þá fáið þið 5 stig í viðbót. Spurning 13: Þið fáið 10 stig fyrir hvert svar sem þið eruð sammála um. Spurning 14: Þið fáið 10 stig fyrir hvert svar sem þið eruð sammála um. Svörin þurfa skiljanlega ekki að vera mákvæm- lega orðrétt frá ykkar hálfu, aðeins innihalda sömu merkingu. Ef þið eruð svo óheppin að hafa svarað F lið í spurningum 1,2,4,7,8,9,10 og 13 verðið þið að draga frá ykkur 5 stig í hvert skipti. Ef þið eruð svo óheppin að hafa ekki getað ákveðið hverju þið ættuð að svara verðið þið að draga frá ykkur 10 stig í hvert skipti. í þriðja iagi: Nú skaltu fara yfir svör maka þíns. Þið verðið síðan að vega og meta hvort ykkur finnst þið hafa haft rétt fyr- ir ykkur eða ekki varðandi svör ykkar (þið verðið að sjálfsögðu hrikalega heiðarleg í mati ykkar, engin spuning). Eftir að hafa skipst á svörum gefið þið hvort öðru stig nákvæmlega á sama hátt og þið gáfuð ykkur sjálf. Fékk annaðhvort ykkar 175-300 stig? Til hamingju! Það er alveg gefið að þú þekkir maka þinn vel. Hann er svo sannarlega heppinn að eiga einhvern að sem er svona vel inni í hans málum i lífinu. Það er heldur engin spurning að þú hefur haft næmt eyra fyrir öllum væntingum hans og kröfum; þú hefur tekið tillit til óska hans og berð virð- ingu fyrir tilfinningum hans. VIÐVÖRUN! Ekki vera allt of ör- ugg/ur. Fólk breytist, eins og allir vita, svo það er þitt að halda sambandinu gangandi. Fékk annaðhvort ykkar 100-170 stig? Jafnvel þótt þú þekkir maka þinn þónokkuð vel þarftu að líta þér aðeins nær. Lokaðu bókinni, slökktu á sjónvarpinu og sjáðu bara til. Sambandsleysið verður úr sögunni og sam- bandið eflist. Byrjið á því að rifja upp bernskuárin saman og fikrið ykkur síðan upp árin smám saman. Stigafjöldinn, sem þið fenguð í spuningarleiknum, sýnir að þið þekkið hvort ann- að nokkuð vel svo grunnurinn, sem þið byggið samband ykk- ar á, er ansi sterkur. SVÖR OG ÚTKOMA Eins og þið hafið nú eflaust komist að þá gildir hér engin ein- hlít regla um rétt svör eða röng svör, leikurinn er til þess gerður að komast að því hversu vel þið þekkið hvort annað. í fyrsta lagi: Farðu vel yfir þín eigin svör með maka þínum. Ekki fyrtast þótt hann sé ekki alltaf á sama máli og þú. Þú verður að gera ráð fyrir því að hann sé hreinskilinn þegar hann tjáir þér hvort þú hafir rétt fyrir þér eða ekki. Ræðið hvert einstakt svar fyrir sig og virðið svör hvors annars því í þeim felst bæði tilfinningar og minningar. í öðru lagi: Þið fáið ákveðin stig fyrir hverja spurningu hvort fyrir sig: Spurningar 1- 4: Þið fáið 10 stig fyrir hverja spurningu sem þið eruð sammála um. Spurning 5: Þið fáið 15 stig ef svo skemmtilega vildi til að ykkur datt báðum í hug einhverjir þrír hlutir fyrir utan debet-/ kreditkort og ökuskírteini. Og ef þið eruð sammála um það að þið hafið verið sérlega skörp að vita um einhverja óvenju- lega hluti í seðlaveskinu/veskinu fáið þið 10 stig til viðbótar. Spurning 6: Þið fáið 10 stig ef þið vissuð fatastærð makans. Fékk annaðhvort ykkar 50-100 stig? Hér eru vandræði í uppsiglingu! Ef þú ert aftur á móti nýgift/ur þarft þú ekki að láta þér bregða en ef ekki þá eru lagfæringar nauðsynlegar á þessu stigi málsins. Það er augljóst að þú þekkir maka þinn ekki eins vel og þú kannski ættir að gera. Hér eru nokkur heilræði til að bjarga málunum. Lærðu að treysta maka þínum, brjóttu niður vegginn sem er á milli ykk- ar, trúðu makanum fyrir leyndarmálum þínum og vertu viss, hann mun trúa þér fyrir sínum. Hlustaðu betur, jafnvel á þögn- ina, sem segir oft meira en segja þarf. Vertu opinská/r og tjáðu tilfinningar þínar og hugsanir og ekki gera ráð fyrir þvi að makinn viti um þær. Hér eru svo góðu fréttirnar. Fyrst þið ákváðuð bæði að taka þátt í þessum merkilega spuningarleik er öll von aldeilis ekki úti. Stigið bæði skrefið til innilegra sam- bands. Fékk annaðhvort ykkar undir 50 stig? Þú þekkir maka þinn ofur lítið, harla lítið og ekki neitt! Sam- band ykkar er því miður ekkert til að hrópa húrra fyrir. Kannski ættuð þið að fara í „samtalsmeðferð"? Að öllu gamni slepptu þá er hægt að fá margskonar hjálp til þess að læra að þekkja hvort annað betur. Sé áhuginn fyrir hendi er auð- velt að stíga fyrsta skrefið. Gangi ykkur vel. 58 VIKAN 3.TBL. 1995
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.