Vikan - 20.03.1995, Qupperneq 60
ÍSLENDINGAR ERLENDIS
Vegfarendur, sem
fylgdust með þess-
um trúðsleik hlógu
og klöppuðu. Þetta var á
götu í Genf og trúðurinn,
sem var þarna að leika listir
með nokkrum öðrum hæfi-
leikamönnum, sannaði að
ekki er nóg að haga sér eins
og trúður til að vera trúður.
Það þarf lipurð dansmeyj-
arinnar, styrk skrímslisins,
látbragð leikarans og hug-
myndaflug barnsins. Sá,
sem sameinaði þetta allt,
reyndist vera Svisslendingur
og heita Yves Deferne. Þeg-
ar hann var staðinn á fætur
og orðinn ballerína á ný kom
óvænt í Ijós að hann gat
kryddað sýningu sína með
nokkrum íslenskum upp-
hrópunum.
Skýringin reyndist felast í
konunni hans, sem er ís-
lensk, nánar tiltekið af Skag-
anum. Kristín Reynisdóttir
heitir hún, læröur kírópraktor
eða hnykkir, heimavinnandi
með tvo litla trúða, Söndru
þriggja ára og Gísla eins árs.
Kristín er þrítug. Hún fædd-
ist í Vík en flutti ung til Akra-
ness.
Yves, sem er þrjátíu og
tveggja ára, er lærður trúður.
Hann var í tvö ár við nám í
sirkusskólanum Ecole sans
Filet, í Brussel í Belgíu. í
skólanum er lögð sérstök
áhersla á leikhús og dans.
En hvaða eiginleika verða
menn að hafa til að fara í
sirkusskóla?
„Menn þurfa að vera svo-
lítið léttir á fæti, hafa húmor-
inn í lagi og hafa gaman af
að hreyfa sig og vera í alls-
konar stellingum," segir
Yves þegar hann er kominn
úr trúðsgervinu og orðinn
hefðbundinn tveggja barna
faðir á ný.
„Menn verða líka að hafa
góða tilfinningu fyrir því að
leika með hluti eins og
bolta og keilur og vera
^ færir um að leika hefð-
B bundnar kúnstir eins
■ og þá að ganga á stult-
■ um.
H Áður en ég fór í
skólann var ég hálf-
gerður trúður. Ég lærði ung-
ur á einhjól og var alltaf að
leika alls kyns kúnstir. Þetta
var einhvern veginn í blóð-
inu. Svo heyrði ég af þess-
um skóla og var ekki lengi
að hugsa mig um. Mér
fannst frábært að geta gert
það, sem mér fannst
MYNDIR
OG TEXTI:
BRYNDÍS
HÓLM
Truóurinn
lappalangi,
Yves, situr
uppi á arn-
inum.
I faömi
fjölskyld-
unnar í
Genf:
Kristínu og
börnum
þeirra
tveim.
Hann kom dansandi eftir götunni
eins og ballerína. Skyndilega tók
hann undir sig stökk og stóö á
höndum. Pilsiö féll niöur og
opinberaöi það sem þaö haföi huliö
áöur. Höfuö á skrímsli. Dansmærin
var oröin aö ófreskju.
60 VIKAN 3. TBL. 1995