Vikan - 01.05.1996, Page 44
Stúlkurnar eru í O'Neill sundbolum frá Sportís. Silkiö er frá Vogue.
Vigdís Jóhannsdóttir er
18 ára Keflvíkingur, fædd 6.
júlí 1977 og er því í Krabba-
merkinu.
Hún er á eðlisfræðibraut
við Fjölbrautaskóla Suður-
nesja og lýkur þaðan stúd-
entsprófi um næstu jól.
Hún hefur unnið í sumar-
leyfum og með skólanum en
reynt að svala ferðagleði
sinni eftir því sem kostur er,
og þá m.a. með sumarvinnu
erlendis. Hún hefur ferðast
mikið og lengst dvalið í Dan-
mörku og Noregi. Hún segist
hafa gaman af að skoða
nýja staði og kynnast ólíkri
menningu mismunandi
landa. I framtíðinni vill hún
geta ferðast sem mest og
lært ný tungumál. Það kem-
ur því ekki á óvart þegar hún
segir að helst kjósi hún að
gera flugfreyjustarfið að
framtíðarstarfi sínu.
Foreldrar hennar eru Guð-
ný Gunnarsdóttir og Jóhann
Einvarðsson. Hún átvö syst-
kini.
Vigdís er 168 sm á hæð.
Hjördís Sigurðardóttir
kemur frá Skaganum. Hún
er 19 ára gömul, fædd 3.
nóvember 1977 og er í
Sporðdrekamerkinu.
Hún er nemi í hárgreiðslu
á hárgreiðslustofunni Class-
ic á Akranesi og stefnir að
því að verða meistari I fag-
inu. Hún hefur lokið þrem
önnum í Fjölbrautaskóla
Vesturlands.
Síðastliðin sumur hefur
hún starfað á dvalarheimil-
inu Höfða á Akranesi, í
Botnsskála, þeim kunna
veitingaskála, og einnig hef-
ur hún unnið við garðyrkju-
störf.
Hestamennska er í miklu
uppáhaldi hjá Hjördísi og
stundar hún hestamennsku
af kappi. Einnig hefur hún
haft gaman af að fara á
skíði. Segist hún vera mikil
„útivera".
Foreldrar Hjördísar eru
María Luisa Kristjánsdóttir
og Sigurður Sverrir Jónsson.
Systkinin eru þrjú talsins.
Hjördís er 172 sm á hæð.
44 VIKAN 2. TBL. 1996