Vikan - 17.12.1998, Blaðsíða 2
Ráðgáta um rauðanótt
Ráðgáta um rauðanótt - verðlaunasaga eftir
björgu Möller. Þetta er önnur barnabók Ingi-
bjargar, en fyrri bók hennar, Grillaðir bananar,
hlaut afbragðsgóðar viðtökur. Þessi saga hlaut
fyrstu verðlaun í samkeppni um barnabókarhand-
rit sem Bandalag kvenna í Reykjavík efndi til í tilefni
80 ára afmælis síns. Aðalsögupersónurnar eru fjórar,
tvær stelpur og tveir strákar. Annar strákurinn er al-
varlega veikur og því nokkuð ofverndaður af foreldr-
um sínum. Hann fær leyfi til að fara með vinum sín-
um þremur út í Engey þar sem margt ævintýralegt
og óvænt ber við og dularfullir atburðir gerast í
neðanjarðarbyrgi frá stríðsárunum í eynni.
Snæfinnur snjókarl
Snæfinnur snjókarl eftir Jón Ármann Steinsson og Jón
Hámund Marinósson. Litskrúðug saga fyrir yngstu les-
endurna um hinn kunna Snæfinn snjókarl og þau ævin-
týri og raunir sem slíkir karlar rata tíðum í.
Digitus
Sapiens
Digitus Sapiens
eftir Þóri S. Guð-
bergsson, Kristin R.
Þórisson og Bjarna
Hinriksson. Þetta
er afar sérstæð bók
þar sem fléttað er saman frásögn og myndum. Hún
fjallar um ferðalag tveggja íslenskra ungmenna í hulda
neðansjávarhella. í hellunum hitta þau greindar verur
sem hafa þróast og þroskast í þúsundir ára - vitibornar
vélar, tækniundur með gervigreind. í bókinni er leitast
við að fjalla um ýmislegt það sem skipta mun miklu
máli í þjóðfélagi framtíðarinnar og er framsetningin
ætluð til hvatningar og örvunar sjálfstæðrar hugsunar.