Vikan - 17.12.1998, Side 13
Feðgin í Frjálslyndaflokknum.
Margrét kviðir ekki samstarf-
inu við föður sinn þó hún hafi
á stundum verið á öndverðum
meiði við hann í pólitíkinni.
fram í þessum málaflokki. En
ég held að þetta sé dæmigert,"
segir Margrét hlæjandi. „Karl-
menn væru ekki neitt sérlega
ragir við að stíga fram í ein-
hverju máli sem við teldum að
varðaði konur, þeir myndu ör-
ugglega gera það, hver
blöðruskjóðan á fætur
annarri." Margét bendir á að
kvótamálið sé ekki eina hita-
málið á stefnuskránni. „Há-
lendisfrumvarpið er Iíka hita-
mál og ég vona að konur geti
komið til liðs við flokkinn til
að móta stefnuna. Mér fyndist
sorglegt ef konur sætu hjá
þegar nýtt stjórnmálaafl verð-
ur til. Ég er ekki bjartsýn á að
það náist mikið af konum inn
á sjálfan stofnfundinn, en það
mun verða lögð mikil áhersla
á að fá konur til að starfa í
kjördæmunum. Mér finnst
vanta konur á pólitískan vett-
vang og samkvæmt skoðana-
könnunum er 80% þjóðarinn-
ar á sama máli."
BYLTII\IGARKEI\iniD STEFNfl
Það var Sverrir Hermanns-
son sem reis upp og hóf um-
ræðuna um kvótamálið og
gerði að sínu. Ég bendi Mar-
gréti á að nú, þegar líður að
alþingiskosningum, virðast
allir flokkarnir vera að taka
þetta málefni upp á sína arma.
Hver er hennar skoðun á því?
„Það liggur alveg ljóst fyrir að
stjórnarflokkarnir munu engu
breyta, ef stjórnin helst
óbreytt áfram þá breytist ekki
neitt. Vinstri flokkarnir segja
auðlindagjald lausnina, en
það er í raun og veru líka
mjög slæmur kostur. Það þýð-
ir einungis að þeir sem þegar
hafa fengið sitt halda sínu og
þurfa aðeins að borga fyrir
það friðþægingargjald. Þess
vegna eru menn á vinstri
vængnum, Agúst Einarsson
og fleiri kvótaeigendur, mjög
hlynntir því. Það sem við
erum að gera er bylting,
spurningin er hvort fólk þorir
að taka þátt í henni. Okkar
tillaga er róttækur kostur; að
afnema gjörsamlega framsal
kvótans og taka gjafakvótann
út úr dæminu. Auðvitað verð-
ur að vernda fiskistofnana og
nauðsynlegt er að setja kvóta
á fiskveiðarnar. Hins vegar
teljum við þessa úthlutun af-
brigðilega og ranga. Fólk er
almennt ósátt við hana, hvað
sem hver segir. Hjá okkur
verður kvótamálið algjörlega
á oddinum. Við erum á móti
allri séreignarstefnu sem hér
hefur skapað ákveðna stétt.
Ég er ekki á móti því að fólk
hafist af sjálfu sér, það er ekk-
ert til að öfundast út af. En
þegar menn hins vegar eru
farnir að fá hundruðir millj-
óna að gjöf og peningarnir
koma til með að flæða út úr
þessari atvinnugrein, þá er
eitthvað mikið að."
BERSKJALDAÐIR STJÓRNMÁLA-
MENN
Börn sem alin eru upp á
heimili stjórnmálamanns fara
ekki varhluta af baktali, öf-
und og illum tungum. Ég spyr
Margréti hvort hún sé ekkert
hrædd við þessa hlið málsins,
13