Vikan - 17.12.1998, Blaðsíða 18
BOLABITURINN
ÞYKIR LÍKJAST CHURCHILL
Veitingamennirnir á Gráa kettinum, listamennirnir Hulda Hákon og Jón Óskar, með heimasætuna
sína, tíkina Nönnu. Nanna kíkti við til þess að heilsa upp á bróður sinn, sigurvegarann Bonus Padre.
Ólafur Magnússon, for-
maður og prímusmótor
félagsins, býr sig undir
að krýna sigurvegarann.
Sigurvegarinn, Bonus Padre,
ásamt stoltum eiganda sínum,
Sigurði H. Guðjónssyni lögmanni.
Oq sigurvegarinn er... Klúbb-
meðlimir fylgjast með útnefn-
ingunni.fulíir eftirvæntingar
Fyrir rúmum tveimur árum
stofnuðu eigendur bolabíta á Is-
landi með sér félagsskap. Tilgang-
urinn var að halda utan um rækt-
unina á hundunum sem í dag eru
um 28 talsins hér á landi. Hópur-
inn hittist mánaðarlega, farið er í
gönguferð eitthvað út fyrir bæinn,
og hundar og menn bera saman
bækur sínar.
Fyrir nokkru hélt klúbburinn
kvöldskemmtun á kaffistofunni
Grái kötturinn við Hverfisgötuna í
Reykjavík. Eigendurnir, lista-
mennirnir Hulda Hákon og Jón
Óskar, eru bolabítseigendur og
klúbbfélagar. Fyrir utan það að
eiga saman góða kvöldstund var
tilgangur kvöldsins að verðlauna
hund þann sem reyndist stigahæst-
ur eftir keppnir ársins. Það var
enginn annar en bolabíturinn
Bonus Padre og var hann klæddur
í sigurvegaraskikkju við hátíðlega
athöfn. Bolabítur Huldu og Jóns
Óskars, tíkin Nanna, er systir sig-
urvegarans og segir Jón Óskar
hana heimasætuna á þeirra heim-
ili. Nanna fer daglega með Jóni
Óskari í vinnuna og lítur stundum
við á Gráa kettinum þegar búið er
að loka og verið að ganga frá. Jón
Óskar segir bolabítinn upphaflega
kominn frá Englandi, enda sé
hann kenndur við landið, heitir á
ensku English Bulldog. „A 16. öld
var hann ræktaður fyrir svokallað
bolaat, en það var ljótur leikur
sem enskir konungar höfðu mætur
á. Leikurinn var bannaður í byrjun
19. aldar. Það var svo um síðustu
aldamót, þegar bolabítsstofninn
var næstum útdauður, að maður
einn í Englandi hóf að rækta þá á
nýjan leik og í dag er bolabíturinn
einn vinsælasti heimilishundur
Breta. Hann er sagður líkjast
bresku þjóðarsálinni, er íhalds-
samur, þvermóðskufullur og yfir-
vegaður og þykir líkjast Churchill í
útliti!"
Jón Óskar segir bolabíta afskap-
lega skemmtilega hunda. „Þeir eru
góðir heimilishundar sem ekki
þurfa á mikilli hreyfingu að halda.
Þeir eru rólegir og yfirvegaðir og
umfram allt eru þeir skemmtileg-
ir."
Texti: Þórunn Stefánsdóttir
Myndir: Hreinn Hreinsson