Vikan - 17.12.1998, Blaðsíða 31
KARLARIKOKKASKQU
Það skín einbeiting úr andlitum nemenda
Matreiðsluskólans Okkar þegar okkur ber
að garði eitt hrollkalt mánudagskvöldið.
Hrollurinn er fljótur að hverfa úr skrokknum
I hitanum frá pottunum sem I krauma hinir
girnilegustu réttir. Það er ekki að sjá á
handbragðinu að nemendurnir séu í sinni
fyrstu kennslustund. Hér er gengið fumlaust
til verks. Nemendahópurinn er eingöngu
skipaður körlum.
Hvernig smakkast? Ragnar Ólafsson smakkar súpuna. Þórarinn Jónsson og Sigurður Ing-
ólfsson bíða spenntir eftir dóminum.
Eldamennska er ekkert grín! Eða hvað? Daði Pétursson, Guðjón Guð-
jónsson og Bergsveinn Halldórsson ræða málin.
Þetta er nú ekki mikill vandi! Sigurjón Harðarson og Grétar Þórisson
niðursokknir í eldamennskuna.
Ingvar Helgi Jónasson kennari skiptir körlunum upp í fjóra
hópa. Fyrsti hópurinn á að sjá um forréttinn. Annar og
þriðji hópurinn sjá um aðalréttina tvo, og sá fjórði um eftir-
réttinn. „Kokkarnir" eru borubrattir og bera sig vel. Eru ekkert
hræddir við verkefnið. Flestir þeirra eru samt að kynnast mat-
argerðarlistinni í fyrsta sinn. Þeir koma af ýmsum ástæðum í
matreiðsluskólann, sumir hafa fengið námskeiðið í afmælisgjöf
frá fjölskyldunni, aðrir koma af eigin hvötum. Alla langar þá að
kunna eitthvað annað fyrir sér í eldamennsku en það sem yfir-
leitt er tekið frá fyrir karlana; grilleldamennskuna.
Hér á eftir birtast uppskriftirnar sem herrarnir í Matreiðslu-
skólanum Okkar fóru eftir:
WOBOftG
Svona eigið
þið að fara
að þessu,
strákar! Ingv-
ar sýnir
Kristjáni jó-
hannessyni,
Ögmundi
Friðrikssyni
og Þórhalli
Einarssyni
réttu hand-
tökin.
31