Vikan - 17.12.1998, Blaðsíða 32
SPERGILKÁLSSÚPA
100 g smjörlíki
80 g hveiti
11 vatn
1 tsk. grænmetiskraftur
1 d rjómi
1/2 spergilkálshöfuð
Spergilkálið er skorið í litla
bita og soðið í vatninu í u.þ.b.
5 mínútur. Smjörlíkið er brætt
í potti og hveitinu hrært út í.
Potturinn tekinn af hitanum
og vatninu af spergilkálinu
bætt út í. Sett yfir til suðu og
látið sjóða stutta stund, hrært
vel í á meðan. Bragðbætið
með grænmetiskrafti og rjóm-
anum bætt út í. Bætið soðna
spergilkálinu út í. Á sama hátt
má búa til blómkáls- og græn-
metissúpu.
Kræsinqar fyrir karla
GUFUSOÐIN SMÁLÚÐUFLÖK MEÐ
KARRÍSÓSU
600 g smálúöuflök
vatn eða fisksoð
salt
pipar
sítrónupipar
lárviðarlauf
1/2 sítróna
Sósa:
80 g smjörlíki
80 g hveiti
1/2 epli
fiskikraftur
2 msk. karrí
1/21 vatn (fisksoð)
Iaukur, eftir smekk
Roðflettið smálúðuflökin og skerið þau í u.þ.b. 2 sm breiðar
ræmur. Berjið flökin létt, raðið þeim hlið við hlið og rúllið
þeim síðan upp í rós. Smyrjið pönnu með smjörlíki eða olíu,
raðið smálúðurósunum á pönnuna og kryddið með salti, pipar
og sítrónupipar.
Hellið vatni eða fisksoði á pönnuna, bætið lárviðarlaufunum
út í, setjið lokið á og sjóðið í u.þ.b. 5 - 7 mínútur.
Sósa:
Saxið laukinn og eplið og léttsteikið það í smjörlíkinu ásamt
karríinu. Hrærið hveitinu saman við og hellið síðan fisksoðinu
út í og hrærið vel. Bragðbætið með salti og fiskikrafti. Látið
suðuna koma upp og sigtið. Gott er að bæta örlitlum rjóma út