Vikan - 17.12.1998, Blaðsíða 45
LYSTARSTOL Ot LOTUGRÆBGI
Inga Bjarnason aðstoðar ungar konur með mataróreglu
Inga skorar á alla þá sem þjást af þessum
sjúkdómum að leita sér lækninga.
„Þó þú gerðir ekkert annað
en að liggja hreyfingarlaus í
rúminu eyðir þú 900 hitaein-
ingum bara með því að anda
og halda líkamsstarfseminni
gangandi. Eðlileg hitaeininga-
þörf er um 2 þúsund hitaein-
ingar á dag, þannig að þessi
kona er á óskaplega kvala-
fullri og hægfara leið til sjálfs-
vígs." Inga Bjarnason leik-
stjóri veit hvað hún er að tala
um. Hún miðlar af eigin
reynslu á námskeiðum fyrir
þá sem haldnir eru sjúkdóm-
um sem tengdir eru mataró-
reglu; lystarstoli (anorexiu),
bulemiu (lotugræðgi) og ofáti.
Hópurinn hittist vikulega í
fimm vikur og þátttakendur
eru í símasambandi eftir að
námskeiðinu lýkur, bera sam-
an bækur sínar og veita hver
öðrum stuðning. „Aðallega
reyni ég að fá þau til að leita
sér lækninga, bendi þeim á
geðlækna og brýni fyrir þeim
nauðsynina á að leita sér lækn-
isfræðilegrar hjálpar. Einnig
bendi ég þeim á OA samtök-
in." Sjálf var Inga haldin lotu-
græðgi um tveggja ára skeið.
„Ég lenti í þessu þegar ég var
ungur dansari og leikari, ég
þurfti að grennast mjög hratt
á skömmum tíma og var mjög
grönn fyrir. Þessir sjúkdómar
eru algengir meðal dansara,
að ég tali nú ekki um hjá fyrir-
sætum. Það er talið að um
95% toppfyrirsæta séu allar
meira eða minna haldnar lyst-
arstoli eða lotugræðgi. Ég var
svo heppin að hitta strax mjög
góðan lækni. Ég var orðin
þannig að ég varð að velja á
milli þess að leika og dansa
eða vera grönn. Ég var farin
að æla blóði fyrir hverja sýn-
ingu en mér þótti vænna um
leikhúsið heldur en þetta
ástand."
Lystarstolssjúklingar eru yf-
irleitt ungar stúlkur sem
haldnar eru fullkomnunar-
áráttu og með sveltinu ná þær
fullkomnu valdi yfir
einhverju, hafa al-
gjöra stjórn. Fyrst
er talað um lyst-
arstol sem sjúkdóm
fyrir u.jj.b. 300
árum. Aður fyrr
dóu um 15-20%
sjúklinganna en í
dag er talið að um
1-5% deyi úr sjúk-
dómnum. Lotu-
græðgi er hins vegar
að verða æ algeng-
ari og rannsóknir
sem gerðar hafa
verið meðal ungra
kvenna sem stunda
háskólanám í
Bandaríkjunum
sýna að um 20%
þeirra eru haldnar
lotugræðgi. Inga
segir ástæðuna aug-
ljósa. „Sjáðu til.
Venjuleg kona er
sköpuð þannig af
guði að hún er
nokkurn veginn
eins og talan 8 í lag-
inu. Tískan segir að
konan eigi að vera
eins og sleikipinni í
laginu. Þér er sagt
að þannig eigir þú
að líta út viljir þú
verða rík og fræg.
Þú átt að vera dug-
leg og falleg, þér á
að ganga vel og einhvers stað-
ar brestur þetta allt saman.
Fyrirmyndirnar eru fyrirsæt-
urnar sem eru fárveikar stúlk-
ur. Til þess að líkjast þeim
ferð þú í megrun sem getur
endað með skelfingu. Rann-
sóknir sýna fram á það að
megrun er fitandi. Líkaminn
bregst þannig við að hann fer
að nýta alla orku og brenna
eins litlu og hægt er, þannig að
í hvert skipti sem þú ferð í
megrun fitnar þú af minni mat
en áður. Hugsið ykkur alla
ljótu, feitu kallana úti í heimi
sem eru orðnir milljarðamær-
ingar á þessari vitleysu! Þeir
framleiða alls kyns duft og
pillur sem eiga að hjálpa þér
til að líkjast ímyndinni um
grönnu konuna sem gengur á
vegi velgengninnar."
Inga segir þessa sjúkdóma
leiða til einangrunar. „Þetta
er einmanalegt líf, þú Iokast
inni í þínum eigin heimi.
Margar kenningar eru til um
orsakir sjúkdómanna, líkleg-
ast eru þær margvíslegar.
Ekki eingöngu andlegar held-
ur einnig félagslegar, líkam-
legar og tilfinningalegar.
Þjóðfélagið segir að þú eigir
að vera grönn og falleg þang-
að til þú deyrð. Sumir vilja
kalla þetta systursjúkdóma
alkóhólismans. I Bandaríkjun-
um, þar sem ég hef kynnt mér
þessi mál, eru meðferðar-
heimili hlið við hlið, þar sem
verið er að venja fólk af
áfengi og eiturlyfjum annars
vegar og mataróreglu hins
vegar. Þar hefur gefist vel að
nota 12 spora kerfið við með-
ferð þessara sjúkdóma."
Hún bendir á að erfiðast sé
að lækna lystarstol. „Sjúkling-
arnir eru haldnir þráhyggju og
eru með mat á heilanum. Á ég
að borða, á ég ekki að borða.
Ef þú sýnir þeim mynd af
venjulegri konu í góðum hold-
um og aðra mynd af lyst-
arstolssjúklingi segjast þeir
líkjast feitu konunni. Það er
mjög erfitt að hjálpa þeim fyrr
en þær gefast upp sjálfar, þeg-
ar þær geta ekki meir."
Inga leggur áherslu á að for-
eldrar fylgist með matarvenj-
um barna sinna. „Það borgar
sig að gæta að hlutunum ef
unglingsstúlkan tekur upp
undarlegar matarvenjur, þeg-
ar hún vill borða í einrúmi og
elda ofan í sig sjálf. Ungar
stúlkur geta leynt þessu
ástandi í lengri tíma. Það er
augljóst þegar unga stúlkan er
of feit. Það er eitthvað sem
hún ber með sér og getur ekki
leynt. En lotugræðgi er hægt
að leyna svo árum skiptir."
Inga skorar á allar þær konur
sem þjást af þessum sjúkdóm-
um að leita sér lækninga.
„Hafið í huga að lystarstol og
lotugræðgi er af mörgum vís-
indamönnum talin ein aðalor-
sök fyrir sjálfsmorðstilraunum
og sjálfsmorðum ungra
kvenna."
Viðtal: Þórunn Stefánsdóttir
Mynd: Gunnar Gunnarsson
45