Vikan - 17.12.1998, Síða 53
STJORNUslúður...
Rós Vikunnar
Þekkir þú einhvern sem á skiliö að i'á rós Vik-
unnar? Ef svo er, hafðu þá samband við
..Rós Vikunnar. Seljavegi 2, 101 Reykjavík"
og segðu okkur hvers vegna. Einhver hepp-
inn verður fyrir valinu og fær sendan
glæsilegan rósavönd frá Blómamiðstöðinni.
fær Rós Vikunnar að þessu sinni.
Ekki hafa margir einstaklingar lirist jafn rækilega
upp í íslenskri þjóðfélagsumræðu á síðastliðnum
árum og Kári Stefánsson geröi um leiö og hann
Hulti aftur til landsins og stofnaöi íslenska erfða-
greiningu. Fyrirtæki Kára hefur skapað el'tirspurn
eftir hæfu íslensku menntafólki og haft áhrif á
kttup og kjör víða í samfélaginu. Það er sama hvar
á landinu nafn Kára ber á góma, allir eru með á
nótunum. Svo hefur Kári skapað hagyrðingum og
skemmtikröftum um land allt efnivið í ræður og
vísur. Varla stígur nokkur maður í pontu þessa
dagana án þess að slá um sig a.m.k. einu sinni með
orðunum „Kári" og „miðlægur".
ÞUNGLYND
Gillian Anderson,
sem leikur í Ráð-
gátum, segist hafa
verið í meðferð hjá
sálfræðingi síðan
hún var 14
ára. Hún þjáist
af þunglyndisköstum og
leitar til „sála" þegar
hún er niðurdreg-
in. Leikkonan
fagra greinir frá
þessu i viðtali við
tímaritið Movieline og
þar kemur einnig fram að
hún trúir á endurholdgun og hún
telur sig hafa lifað öðru lifi á jörðinni
áður fyrr.
STJÖRNUAFMÆU
Kim Basinger verður 45 ára þann 8. desember.
I. des.: Woody Allen (1935), Richard Pryor (1940), Bette Midler (1945), Vendela (1967) 2. des.: Monica Seles (1973)
3. des.: Katarina Witt (1966), Daryl Hannah (1960) 4. des: Marisa Tomei (1964), Jeíf Bridges (1949) 5. des.: Jose
Carreras (1946) 6. des.: Janine Turner (1962), Don King (1932) 7. des.: Ellen Burstyn (1932), Larry Bird (1956),
Tom Waits (1949) 8. des.: Kim Basinger (1953), Teri Hatcher (1965), Sinead O'Connor (1966) 9. des.: john Mal-
kovich (1953), Kirk Douglas (1916), Beau Bridges (1941) 10. des.: Kenneth Branagh (1960), Susan Dey (1952) II.
des.: Teri Garr (1949) 12. des.: Dionne Warwick (1941), Madchen Amick (1970) 13. des.: Christopher Plummer
(1929) 14. des.: Patty Duke (1946) 15. des.: Don Johnson (1949), Helen Slater (1963).
IHJARTAÐ ÞOLIR
ítalska þokkadisin Sophia Loren segist
ekki mega við því að verða ástfangin á
ný því hjartað í henni þoli sennilega ekki
álagið. "Spenningurinn yrði mér sennilega
ofviða, hjartað myndi ekki þola það. Eg
verð að halda ró minni," var haft eftir
leikkonunni í ítölsku dagblaði. Sophia var
lögð inn á spítala I New Vork í ágúst og
fréttir voru fljótar að magnast í fjölmiðl-
um. Hún var sögð hafa fengið hjartaáfall
og hafa þurft að fara í meiriháttar
hjartaaðgerð en læknirinn hennar, Isadore
Rosenfeld, segir ekkert vera til í þessu.
"Hún fór ekki I aðgerð og henni vegnar
vel. Hún er fallegri en nokkru sinni fyrr
og fullfrísk," segir læknirinn. Sophia, sem
er 64 ára, dvelst nú í Genf með syni sín-
um, Eduardo, og á nýlegum myndum
virkar hún veikluleg.
Rós Vikunnar