Vikan


Vikan - 17.05.1999, Qupperneq 8

Vikan - 17.05.1999, Qupperneq 8
Texti: Margrét V. Helgadóttir Myndir: Hreinn Hreinsson „Maður nýtur ekki mikillar virðingar sem heimavinnandi húsmóðir." Helga Sverrisdóttir er gift Bjarna Armannssyni, forstjóra Fjárfestingarbanka atvinnulífsins og þau eiga þrjú börn, Tómas, fjögurra ára og tvíburana, Helgu Guðrúnu og Benedikt, sem eru rúmlega árs gamiir. Helga áleit að hún væri hin dæmigerða ofurkona. Hún gæti unnið fulla vinnu eftir að hún eign- aðist börn, sinnt heimili og börnum með annarri hendi. Eftir að hún eignað- ist sitt fyrsta barn skipti hún snögglega um skoðun. ari ákvörðun. Ég var alveg viss um að hann stæði sig vel í starfinu og jafnframt að ég gæti ekki gert þá kröfu að hann sinnti heimili og börnum. Hann hefur þurft á mínum stuðningi að halda í starfinu og stuðning minn hefur hann fengið allt frá fyrsta degi. Um leið og ég vissi að ég gekk með tvíbura ákvað ég að taka mikið tillit til meðgöngunn- ar, leit á hana eins og vinnu. Ég vildi forðast eins og hægt var að enda inn á meðgöngu- deild. Ég vissi að heimilið þyldi ekki fjarveru mína. Ég fór mjög vel með mig. Tómas var byrj- aður í leikskóla og á meðan hann var þar notaði ég tímann til að hvíla mig. Meðgangan gekk ótrúlega vel. Tviburarnir fæddust tveimur vikum fyrir tímann og voru 12 og 13 merk- ur. Ég var hraust allt fram á síðasta dag, var úti að borða kvöldið áður þau fæddust. Ég sé eftir á að þetta var skyn- samleg ákvörðun að hafa tekið meðgöngunni á þennan hátt. Við vorum mjög heppin með börnin. Þau voru vær og góð fyrstu mánuðina og ég var með þau á brjósti í níu mánuði. Erf- iðustu tímabilin voru þegar Bjarni var erlendis og ég var ein á nóttunni með þau. Tómas var líka mjög þægur og meðfærilegur. Það vottaði ekki fyrir afbrýðisemi hjá honum í garð systkina sinna. Ef hann Helga er hjúkrunarfræð- ingur að mennt og starf- aði við hjúkrun á geð- deild Sjúkrahúss Reykjavíkur frá útskrift og þar til frumburð- urinn fæddist. Síðan hefur hún lítið unnið utan heimilisins. „Þegar Tómas var eins og hálfs árs hefði ég getað hugs- að mér að fara aftur að vinna en þá fluttist fjölskyldan til Sviss þar sem Bjarni fór í fram- haldsnám. Okkur leið mjög vel í Sviss. Við eignuðumst góða vini og erum á leið til Indlands [ sumar til að vera viðstödd brúðkaup vina okkar sem við kynntumst í Sviss." Námið var strembið og Helga var því mik- ið ein með Tómas á meðan Bjarni var í skólanum. Á með- an nemendurnir voru látnir púla var skipulögð dagskrá fyrir makana 3-4 sinnum í viku þannig að Helga var ekki ein- angruð heima í ókunnu landi. Fjölskyldan kom aftur heim árið 1996 og þá hóf Bjarni störf sem forstjóri Kaupþings. „Bjarni var strax farinn að vinna mikið og var töluvert erlendis þannig að heimilisstörfin og barnauppeldi var á minni könnu.” Skyldi Helgu ekki hafa lang- að aftur út á vinnumarkaðinn eftir að þau fluttu heim? „Mér fannst það óþægilegt að fara að vinna á þessum tímapunkti. Bjarni var mjög upptekinn í sinni vinnu og okk- ur langaði að eignast fleiri börn. Á sama tíma vorum við í húsnæðisleit." En ekki leið á löngu þar til líf þeirra breyttist til muna. Fjölgunarvon og fjárfestingarbanki Sumarið 1997 fluttu þau í nýtt hús á Seltjarnarnesi. Vinnan við standsetningu og flutninga kom í hlut Helgu. Á svipuðum tíma kom í Ijós að fjölgunarvon væri í litlu fjöl- skyldunni. Helga gekk með tvíbura! Stuttu seinna bauðst Bjarna forstjórastaða hjá Fjár- festingarbanka atvinnulífsins. Hvernig skyldi Helgu hafa lit- ist á hið nýja atvinnutilboð eig- inmannsins vitandi að hún gengi með tvíbura? „Það var satt best að segja ekkert auðveld ákvörðun fyrir okkur. Ég gerði mér strax grein fyrir því gífurlega álagi sem myndi fylgja starfinu, ekki bara í byrjun heldur f nokkur ár. Frá þeim degi sem Bjarni tók við starfinu hefur verið óheyri- legt vinnuálag á honum. Ég studdi hann heilshugar í þess- vantaði t.d. hjálp á meðan ég gaf þeim brjóst beið hann bara rólegur þar tii ég gat sinnt hon- um. í dag er hann alltaf að rétta þeim dótið sitt eða leika við þau. Með ómetanlegri hjálp frá mömmu minni og fjöl- skyldunni hefur þetta gengið upp. Mamma kemur hér enn þá nær daglega og er heimsins besta amma." Ertu aldrei pirruð út í starfið hans, sem tekur nánast allan hans tíma? „Nei, yfirleitt ekki. Mér hefur alltaf þótt starfið áhugavert. Við tölum mikið saman í síma, oft á dag. Bjarni segir mér frá því sem hann er að fást við og ég segi honum hvað við erum að gera hérna heima. Heimur Bjarna er mér alls ekki fram-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.