Vikan


Vikan - 17.05.1999, Page 10

Vikan - 17.05.1999, Page 10
„Konur sem kjósa að vera heima hjá börnum sínum þurfa sífellt að vera að verja þá ákvörðun." gengni stíga sér til höfuðs. Eg vona að við höfum ekki fallið í þá gryfju." Nú kvarta margir sem eru í sviðsljósinu yfir öfundasýki ís- lendinga. Hefur þú orðið vör við öfundarraddir í ykkar garð? „Nei, það hef ég ekki gert. Ég myndi sjálfsagt vera síðasta manneskjan til að heyra þær. Ég skil ekki af hverju fólk ætti að vera að öfundast. Við byrj- uðum með tvær hendur tómar eins og aðrir. Bjarni hefur staðið sig mjög vel í sinni vinnu. Ég vona að fólk sé ekki að öfundast út í okk- ur því öfund er eitt það Ijótasta sem ég veit. Við eigum hins vegar frábæraran vinahóp sem hefur samglaðst okkur." Hvernig er með áhugamál og frístundir í fjölskyldunni? Er einhver tími fyrir slíkt? Helga hristir hausinn og hlær. „Nei. Það er ekki tími til að sinna neinu nema fjölskyldu og vinum. Þegar Bjarni kemur heim sinnir hann börnunum mjög vel. Við reynum að kom- ast út að borða, bara tvö, ein- stöku sinnnum. Við förum aftur á móti lítið út á næturlífinu. Slíkt gengur einfaldlega ekki upp þegar dagurinn hefst klukkan sjö, hvort sem það er mánudagur eða laugardagur. Við fórum með börnin til Flór- ída fyrr í vetur og sú ferð gekk eins og í sögu. Ég hef einu sinni farið utan með Bjarna og við skildum börnin eftir heima. Vinkona mín og systir sáu um þau og það gekk bara vel. Draumurinn er reyndar að koma sér upp sumar- húsi á friðsælum stað og það er í vinnslu." Heimavinnandi móðir Helga hefur ákveðnar skoðanir á hlutunum og leynir þeim ekkert. Nú veit ég að þú hefur margoft verið spurð að því hvort þú sért ekki á leiðinni út á vinnumark- aðinn. Finnst þér fólk undrast á því að þú skulir kjósa að vera heimavinnandi? „Já, mérfinnst það. Fólki virðist finnast sjálfsagt mál að konur fari aftur út að vinna þótt þær eigi ung börn. Konur sem kjósa að vera heima hjá börn- unum sínum þurfa sífellt að verja þá ákvörðun. Áður en ég eignaðist Tómas hélt ég að ég yrði ofurkona sem ætti mann, bundin yfir börnunum. Spyrja hvort ég hafi tíma fyrir sjálfa mig. Þessi hugsun er mjög ríkjandi meðal ungs fólks að það þurfi að gera allt í einu en sé annars að missa af ein- hverju. Ég lít ekki á það sem eitthvað sjálfsagt að ég sé fremst í forgangsröðun núna, þetta snýst um börnin, svo kem ég seinna. Mérfinnst einfaldlega sjálfselskt af mér að fara út á vinnumarkaðinn þar sem ég þarf þess ekki. Ég er mjög heppin. Mitt starf býður eftir mér hvenær sem ég kem til baka. Margar konur verða að fara strax aftur út á vinnumark- aðinn ætli þær að halda í stöð- ur sínar. Kannski ætti að breyta starfsheitinu í heimavinnandi móðir því þetta húsmóðurorð er eitthvað svo þreytt. Það er eins og maður sé bara alltaf að takaslátur. Það er heldur ekki þar með börn, ynni sjálf úti og myndi rúlla þessu öllu upp. Eftir að hann fæddist og ég átti mann sem var alltaf vinnandi breyttist þessi skoðun mín. Mig langar að ala upp börnin mín, ekki láta aðra sjá um það. Hvað getur verið mikilvægara en að ala upp börnin sín? Mér finnst gaman að vera heima og fylgjast með þeim. Ef ég sæki ekki Tómas í leikskólann þrjá daga í röð, finnst mér ég vera að missa tengslin við hann. Miðað við aðstæður mínar í dag, finnst mér það að ég fari út að vinna óraunhæfur mögu- leiki. Það er alveg óþarfi að skapa sér þannig aðstæður að allt sé í stressi og látum. Mér finnst algjör forréttindi að þurfa ekki að klæða börnin eldsnemma á morgnana og hendast með þau í pössun. Margir hafa orð á því að ég sé sagt að þótt ég hafi ekki þotið út á vinnumarkaðinn strax eftir fæð- ingarorlofið þá séu elda- mennska og hannyrðir mitt helsta áhugamál. Ég fer ör- ugglega einhvern tíma að vinna aftur, það hentar okkur bara ekki núna. Heimilisstörfin eru líka van- metin. Maður nýtur ekki mikillar virðingar sem heimavinnandi húsmóðir. Þá telst maður ekki hugsandi mannvera. Ég vil benda á þá staðreynd að sem heimavinnandi húsmóðir þá hef ég tíma til að lesa blöðin og fylgjast betur með þjóðfélags- umræðunni en margir aðrir. Ég geri mér líka grein fyrir því að það hentar ekki öllum að vera heimavinnandi. Sumir vilja fá aðra til að hugsa um börnin sín, t.d. fá stúlku heim til sín en það hentar mér ekki. Að sama skapi er ég ekki til- búin að vinna hálfan daginn. Þann dag sem ég fer út að vinna verður það í fullt starf og þá gerir maður viðeigandi ráð- stafanir. Margar konur fara að vinna hálfan daginn til að hitta fólk en ég er ekkert einangruð. Ég hitti vinkonur mínar oft og er mikið á ferðinni. Þar fyrir utan er ég alveg hrikalega heimakær. Maður getur alveg haft áhuga og skoðanir á hlut- um þótt maður sé ekki bundinn við einn vinnustað. Á meðan mér finnst skemmtilegt að vera heimavinnandi þá nýt ég þeirra forréttinda að geta unnið heima." Tvíburarnir sofa og Tómas er upptekinn við að teikna meðan á viðtalinu stendur. Skyndilega er þögnin í húsinu rofin og Benedikt og Guðrún Helga láta mömmu sína vita að þau séu útsofin með tóma maga. Tómas tilkynnir mér að Síslenska vatnið sé það besta í heimi og sýnir mér hvernig hann skrif- ar nafnið sitt. Helga er komin á fullt að sinna börnum sínum og ég sé að næðisstundinni er hér með lokið. En hvernig skyldi Helga sjá næstu ár fyrir sér? „Maður veit aldrei hvaða tækifæri bjóðast. Eins og stað- an er í dag þá fara tvíburarnir að byrja hjá dagmömmu þrjá tíma á dag, til að hitta önnur börn og ég fæ smá tíma að huga að minni framtíð. Mig langar jafnvei að nýta tímann meðan þau eru ung og mennta mig enn frekar. Með því móti á ég alltaf sumrin með börnun- um. Mig langaði alltaf að eiga mörg börn og við erum ekkert endilega hætt barneignum" segir þessi unga og hressa bankastjórafrú sem hefur svo sannarlega í mörg horn að líta. 10 Vikan

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.