Vikan


Vikan - 17.05.1999, Síða 38

Vikan - 17.05.1999, Síða 38
Girnilegar tertur s srún Björg Sveins- dóttir á Neskaup- stað sendir okkur uppskriftir af freistandi tert- um sem eru hentugar í saumaklúbbinn eða sem eftirréttir í matarboði. Gott Gums Einn marengsbotn (t.d. sœlgœtisbotn) 2 pelar rjómi salthnetur og súkkulaðirúsínur Ofsagóða tertan 4 eggjahvítur 200 g flórsykur 100 g súkkulaði Eggjahvítur og flórsykur þeytt saman, súkkulaðið brytjað og hrært saman við eggjahræruna. Skipt til helminga í tvö form og bak- að við 150° í u.þ.b. 60 mín. 11/2 peli þeyttur rjómi settur á milli botna. Krem ofan á tertuna Helmingur marengsbotns- ins er mulinn ofan í skál og einn peli af þeyttum rjóma látinn yfir. Seinni helmingn- um af marengsbotninum raðað þar ofan á og þunnu lagi (aðeins til að þekja) af þeyttum rjóma smurt yfir. Síðan er kakan skreytt með súkkulað- irúsínum og salt- hnetum. NÓI SÍRÍU 4 eggjarauður 3 msk. sykur 100 g súkkulaði 60 g smjörlíki Eggjarauðurnar og sykur- inn þeytt saman. Smjörlíkið og súkkulaðið brætt saman í vatnsbaði og hrært saman við eggjahræruna. Kreminu er hellt yfir kökuna og hún síðan skreytt með ferskum ávöxtum og þeyttum rjóma. Hérna kemur örstutt próf fyrir karlmenn sem sýn- ir fram á hversu gott hjónabandið er. Lestu spurninguna og ef þú getur svarað henni ját- andi færðu tiltekinn stigafjölda. • Gengur þú með GSM-síma á þér? ...........10 stig. • Er eiginkona þín sú eina sem hefur númerið? ....20 stig nema hún sé ófrísk! • Gengur þú með mynd af konunni þinni í veskinu? ...5 stig. • Hringir þú daglega í konuna þína? ....7 stig. • Hringir konan þín í þig á hverjum degi? ......10 stig. • Kann konan þín lykilorðið fyrir GSM-símann þinn? ....4 stig. • Ekur konan þín um á sportlegri bíl en þú? ...10 stig. • Setur þú jafn oft í þvottavélina og hún? ..7 stig. • Getur þú matreitt einfaldan pastarétt án uppskriftar? ....8 stig. • Sagðiru upp áskriftinni að Playboy eftir að þið fóruð að vera saman? 5 stig. • Ferðu í Bónus til að versla með konunni þinni? ....4 stig. • Manstu alltaf eftir afmælinu hennar? ....1 stig fyrir hvert ár sem þú hefur munað! • Borgar þú Visa reikninginn hennar þegjandi og hljóða- laust? 10 stig. • Býður þú tengdamömmu þinni í mat til ykkar? ....5 stig. • Setur þú klósettsetuna niður þegar þú ert búinn að pissa? 9 stig. Leggðu nú saman öll stigin og látum okkur sjá... (Ef þú ert giftur, þá veistu það best sjálf- ur. Ekkert próf getur sýnt fram á hversu gott hjónaband er í raun og veru. 38 Vikan

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.