Vikan - 17.05.1999, Qupperneq 49
um vegna atvinnuum-
sókna eða því að hitta
nýtt fólk. Kona nokkur
sem er á atvinnuleysis-
skrá sagði okkur þá sögu
að ævinlega áður en hún
færi í viðtöl velti hún fyr-
ir sér öllu því sem gæti
farið úrskeiðis. „Ég hef
áhyggjur af útlitinu, að
verða of sein og því að
vera kvíðin og sýna það.
Yfirleitt hef ég ekki ann-
að upp úr vangaveltun-
um en það að auka kvíð-
ann og er yfirleitt svo
stressuð, um það leyti
sem ég hitti atvinnurek-
endurna, að hendurnar
skjálfa, hnén eru mátt-
laus og ég kófsvitna. Pað
þarf ekki að taka það
fram að mér hefur geng-
ið illa að fá vinnu."
Flestir sem eru að berj-
ast við kvíða hafa til-
hneigingu til að hugsa
svo mikið um kvíðaefnið
að það vex þeim stöðugt
í augum. Það leiðir hins
vegar ekki til annars en
að geta þín, til að vinna
verkið, minnkar. Karen
Reivich sem er banda-
rískur sálfræðingur, hef-
ur skipulagt námskeið til
að kenna fólki að takast
á við kvíða. Hún segir að
best sé að minna sjálfan
sig stöðugt á að örlítill
kvíði sé eðlilegur og
hjálpi í raun, því að sá
sem er örlítið kvíðinn er
líklegri til að skipuleggja
sig vel og passa betur
smáatriði en hinn. Farðu
því vel yfir allt sem þú
þarft að hafa með þér,
athugaðu hvort fötin,
greiðslan og annað sé í
lagi og tryggðu að þú
hafir góðan tíma áður en
þú þarft að halda af stað.
Slíkur kvíði vinnur með
2.
3.
þér
ekki gegn þér.
Komdu þér upp góðri
setningu sem þú notar til
að hugga þig í hvert sinn
sem eitthvað fer úrskeið-
is. Margir segjast hafa
yfir í huganum setningar
á borð við: Oft vinnst
sigur í seinni ferð, eða
allt í lagi ekki tókst þetta
en það kemur dagur eftir
þennan dag. Finndu slíka
setningu sem hæfir þér
og notaðu hana óspart.
Rifjaðu upp allt það sem
þú gerir vel og ert góð í.
Það hjálpar mörgum
þegar kvíðinn er að ná
yfirhöndinni að minnast
þess að enginn er betri
kokkur í fjölskyldunni en
einmitt þú og betri móð-
ur/vinkonu er varla hægt
að hugsa sér. Hugsaðu
líka til allra þeirra sem
hafa trú á þér og hafa
margoft lýst því fyrir þér
hvað þú gefur þeim
mikið.
Einbeittu þér að því sem
mun örugglega fara vel
frekar en að velta þér
upp úr því sem gæti farið
úrskeiðis. Ef þú ert til
dæmis komin í tíma-
þröng með verkefni
hugsaðu stöðugt um
hversu mikið er búið,
frekar en að leiða hug-
ann að því sem eftir er
og hversu margt gæti far-
ið úrskeiðis, til að
tryggja að þú náir
ekki að skila á
réttum tíma. Um
leið og farið er að kvíða
því sem framundan er
minnkar sjálfstraustið og
neikvæðni eykst. Það
getur einfaldlega tafið
vinnuna og dregið úr af-
köstum. Með því að
hugsa um allt það já-
5.
kvæða við framgang
verkefnisins fyllist
þú bjartsýni, eflir sjálfs-
traustið og ýtir undir
vinnugleðina. Þú verður
mun líklegri til að skila
afköstum en ekki.
Hættu að bera þig saman
við aðra, samanburður-
inn verður aldrei raun-
hæfur hvort sem er því
þú ert einstök
manneskja
og það eru hinir líka. I
hvert sinn sem við hitt-
um fólk sem náð hefur
frama eða góðum ár-
angri í lífinu höfum við
tilhneigingu til að halda
að það sé á einhvern hátt
betra en við, hæfileika-
ríkara, gáfaðra, duglegra
eða skemmtilegra. Við
eigum ákaflega erfitt
með að trúa öðru en að
þetta fólk sé alltaf ánægt
með sig og líf sitt og finni
aldrei fyrir óöryggi.
Sannleikurinn er hins
vegar sá að allflestir
þjást af einhvers konar
minnimáttar-
kennd og allir
kvíða einhverju.
Galdurinn getur
einfaldlega verið í því
fólgin að sumir kunna
betur að fela það en aðr-
ir. Mundu að kvíði, van-
líðan og skortur á sjálfs-
öryggi eru algengustu til-
finningavandamál Vest-
urlandabúa.
Vikan 49