Vikan


Vikan - 17.05.1999, Page 58

Vikan - 17.05.1999, Page 58
Ben Affleck hefur, þótt ungur sé, þegar hlotið einn óskar og það ekki fyrir leik heldur handrit. Þeir sem óttuðust að það yrði aðeins aukabúgrein þurfa ekki að óttast, hann og Matt Damon eru þegar byrj- aðir á tveimur nýjum handrit- um. yndin Forces of Nature hefst þar sem auglýsinga- maðurinn Ben (Ben Af- fleck) ætlar að giftast Bridget (Maura Tierney) eftir aðeins tvo daga - en náttúruöflin og Sarah (Sandra Bullock) gera það sem þau geta til þess að hindra hann. Ben og Sara hittast fyrst þegar hún dettur (bókstaflega) inn í líf hans og þau fljúga til New York saman. En þegar flugvélin rennur út af flugbrautinni við brottför þá slysast hann til að bjarga lífi hennar og sökum þess er hún upp frá því hundtryggur ferðafé- lagi - án þess að Ben greyið hafi neitt um það að segja. Eftir þetta reyna þau eftir megni að komast til New York í tíma, en brjálað veður (fellibylur þar á meðal) og óteljandi óhöpp eru erfiðir and- stæðingar - og hver getur ekki fyrirgefið Ben karlinum að vera farinn að fá bakþanka yfir gifting- unni þegar kona sem lítur út eins og Sandra Bullock sýnir honum áhuga? Allt í lagi, þetta hljómar allt frekar kunnuglega, en athugum það að Ben Affleck er ansi lunk- inn við að finna góðar myndir (við skulum gera okkar besta til að gleyma smákökuatriðinu með Liv Tyler í Armageddon) til að leika í og fyrst hann segir að þetta sé óvenjuleg ástarsaga er kannski eitthvað til í því - og ef hann nær að sýna einhverja svipaða takta og í Chasing Amy (sem er svo sannarlega óvenjuleg ástarsaga) er góðs að vænta. Meðal þess sem hann fær að sýna er nektar- dans, atriði mjög í anda The Full Monty, nema að þetta atriði gerist fyrir framan fullan sal af homm- um. Hvort það kemur til með að flækja eitthvað þann ástarþrí- hyrning sem þegar er búið að setja upp skal ósagt látið en hvað sem því líður kemur þetta atriði sjálfsagt til með að selja nokkra miðana. En stjarnan hér er þó vissulega Sandra Bullock, Affleck er að vísu heitur en hann á ennþá nokkrar myndir í það að verða stjarna. Við skulum ekki gleyma að fyrir aðeins rúmu ári síðan höfðu fæstir hugmynd um hver hann var, síðan kom Good Will Hunt- ing, sem aflaði honum og Matt Damon félaga hans töluverðrar góðvildar í Hollywood. Sandra Bullock hefur aftur á móti lifað nokkuð lengi á góðvildinni sem hún fékk út á Speed og While You Were Sleeping - ferillinn hefur verið upp og niður síðan en hún hefur engu að síður fest sig í sessi og síðustu þrjár myndir (þessi, Practical Magic og Hope Floats) hafa gengið alveg ágæt- lega, en eins og venjulega á Hollywood erfitt með að finna hlutverk við hæfi leikonu sem er orðin stórstjarna. Þetta er miklu auðveldara með karlana; fram- leiða eitt stykki Die Hard, búmm! En persóna Bullock í Forces of Nature er að hennar sögn „geð- veik“ og hún segist muni skilja sátt ef þetta yrði síðasta myndin sem hún léki í - sem hún er að Ben Affleck og Sandra Bull- ock eiga fleira sameiginlegt en marga grunar, þau hafa nefnilega bæði leikstýrt stutt- myndum sem hljóta að teljast allrar athygli verðar. Bullock lék sjálf ásamt Matthew McConnaughey í “Making Sandwiches", þar sem þau tvö smurðu nokkrar samlokur á meðan Eric Roberts (bróðir Juliu) lék ... Juliu Roberts! Hvað afrek Affleck varðar þá segir nafnið á stuttmyndinni hans það sem segja þarf: "I Killed My Lesbian Wife, Hung Her on a Meat Hook, and Now I Have a Three-Picture Deal at Disney". Ja, Disney framleiddi Armageddon ... •„Ég þoli ekki allt þetta rugl um að vilja ekki vera kyntákn. Þú sérð þessa gæja, uppstrílaða á nærbuxunum, talandi um að þeir vilji ekki vera kyntákn" - kyntáknið Ben Affleck flettir ofan af öðrum kyntáknum. vísu örugglega ekki. En kannski er hún bara svona glöð yfir að fá mótleikara sem er átta árum yngri - nýmæli í Hollywood og sjálfsagt þarft innlegg í jafnréttis- baráttuna.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.