Vikan


Vikan - 17.05.1999, Síða 59

Vikan - 17.05.1999, Síða 59
Dagbók óléttrar konu 33. vika (47 dagar eftir) Það er svolítið gaman að geta farið að telja niður á við þótt 47 dagar séu enn nokkuð langur tími. Enn er það sænska blaðið mitt sem líkir barninu við matartegund og í þetta sinn er það hveitipoki. Mér skilst að flest börn séu búin að snúa sér um þetta leyti meðgöngunnar og í rauninni vanti ekkert uppá að barnið sé tilbúið fyrir komuna í heiminn nema fitulag- ið innan á húðinni. Ef barnið fæddist núna yrði það væntanlega að dúsa í hitakassa í einhvern tíma. Ég heyrði þá sögu um daginn að þegar börn fæddust fyrir tímann hér áður fyrr, fyrir daga tækninnar, þá voru þau vafin reifum og sett ofan í mjölkassa til að halda á þeim hita. Mjölið varði börnin gegn kulda og einangraði svo að þau döfnuðu. Manni finnst þessar aðferðir ótrúlegar nú á dögum sótt- hreinsunar þar sem allt er samkvæmt ströngustu reglum um heimsóknar- tíma á fæðingardeildum, kattahald á meðgöngutíma osvfrv. Upp hefur komið sú umræða milli okkar vinkvennanna um gildi þess að láta barnið sofa úti í öllum veðrum. Við höfurn misjafnar skoðanir á þessu. Sumar eru gallharðar á því að þetta sé „ofsalega gott og hollt" fyrir barnið, herði það og styrki. Ég er ekki alveg á sömu skoðun. Ég tel að það sé engin tilviljun að mörg íslensk börn fái eyrnabólgu í lengri eða skemmri tíma. Ég hef heyrt að þetta þekkist ekki í nágrannalöndunum í jafn miklum mæli. Ég get ekki séð hvað það gerir fyrir barnið að dúða það í galla, setja í kerrupoka, vefja það sæng og svo út í vagn. Þar er það látið vera þangað til að það þykir til- hlýðilegt að taka það inn í hlýjuna. Ég er fegin að vorið er á næsta leiti. 37. vika (17 dagar eftir) Sænska blaðið mitt segir ekkert til um stærðina á barninu í þetta skiptið enda væri skrýtið að tala um lambalærið inn í mér sem vegur um það bil þrjú kfló. Nú er allt tilbúið nema að það á eftir að ná í vagninn og setja saman barna- rúmið. Auðvitað er ekki ALLT tilbúið en svona það helsta. Enda ekki seinna vænna því að ljósmóðirin lét mig hafa skýrsluna mína með mér heim ef eitt- hvað skyldi gerast, barnið getur kom- ið hvenær sem er. Ég fékk fyrirvaraverki í fyrradag. Verkirnir voru ekki sárir en þeir voru öðruvísi en venjulegir fyrirtíðaverkir. Amma segir að nú líði mánuður þangað til barnið lætur sjá sig en vin- kona mín er annarrar skoðunar og spáir því að það verði komið eftir tvo daga. Ég veit ekki hvort mér þykir betra. Þrátt fyrir undirbúnings- námskeið, lestur ýmissa bóka og spjall við aðrar mæður finnst mér ég sjálf ekki vera tilbúin að öllu leyti, en er maður það einhvern tímann? Annars er ég bara að drepa tímann. Ég get lítið gert hér heima og ég er orðin of þreytt til að fara í langa göngutúra. Mig hefur aldrei langað eins mikið til að æfa spretthlaup og núna. Einu æfingarnar eru grindarbotnsæfingar sem mér skilst að séu nauðsynlegar. Ég hafði mig þó í að þvo eldhússkápana að utanverðu í dag, sem er nú leikfimi út af fyrir sig, en ég verð að fara varlega, nú er ég með smá bakverki...úps. Ég held að vatnið sé að fara. Önnur vika heima með barnið Ég vann veðmálið við manninn minn. Við eignuðumst yndislega, litla og fallega stúlku. Sú litla flýtti sér í heiminn og kom 17 dögum fyrir tím- ann. Allt gekk þó vel og hún dafnar og blómstrar. Ég má teljast heppin að hún tekur brjóst og sefur vært (reyndar mjög slitrótt á nóttunni). Ég er ískyggilega róleg og finnst ég stundum í öðrum heimi og fylgist ekkert með því sem gerist fyrir utan. Sú tilfinning að halda á litlu kríli í fanginu og vita að það er algjörlega ósjálfbjarga án þín er ótrúleg. Maður er svo stoltur af þessu undri. Allt sem það gerir er kraftaverk. Og auðvitað finnst okkur foreldrunum þetta vera fallegasta, dásamlegasta og dugleg- asta barn sem fæðst hefur. Það sem kemur mér mest á óvart er hvað allt snýst um barnið, Maður hugsa ekki um annað, talar ekki um annað og skilur ekki hvernig veröldin var tóm og tilgangslaus áður en það kom í heiminn. Fæðingin var allt öðruvísi en ég var búin að ímynda mér. Þetta gekk reyndar mjög hratt fyrir sig þegar ég loksins fór að fá almennilegar hríðir, ekki nema rúman klukkutíma (enn rná ég teljast heppin). Þetta er hörkupúl og mér verður aftur hugsað til langalangömmu minnar sem átti 22 börn. Ef karlmenn vissu hvað það er að ganga með barn og fæða þá væri kannski ýmislegt öðruvísi í jafn- réttismálum. Auðvitað hljóta að vera til menn sem finna til samkenndar með konunum sínum. Mér skilst á manninum mínum að það sé skelfi- legt að sjá tiltölulega indæla mann- eskju breytast í öskrandi ljónynju inni á fæðingarstofunni. Já, okkur konum er ýmislegt til lista lagt sem ekki verður frá okkur tekið og ég hef aldrei verið eins stolt af því og nú að vera kona. Eftir Ingibjörgu Þórisdóttur Vikan 59

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.