Vikan - 17.05.1999, Blaðsíða 63
...nýja maskaranum frá Clarins.
Hann heitir Pure Volume Mascara og undirstrik-
ar fegurð augnanna með því að gera augnhárin
þykkari og lengri. Uppskriftin að honum var
hönnuð með það fyrir augum að vernda, styrkja
og næra augnhárin og halda þeim mjúkum allan
daginn. Sýrustigið í litnum er það sama og í
tárum, hann er ilmefnalaus og í honum eru eng-
in plastefni. Það er mikill gljái á litunum og
augnhárin klessast ekki saman, sem sagt
maskari sem gerir augun geislandi falleg. Pure
Volume Maskara fæst í svörtu, brúnu, bláu og
fjólubláu.
... nýja
þættinum
hans Jón
Orms Hall-
dórssonar á
sunnudög-
um. Jón Ormur
er löngu þjóð-
kunnur af útvarps-
pistlum sínum og
fréttaskýringar
hans hafa alltaf
verið í algerum sérflokki. Nú í sumar stýrir Jón
Ormur þættinum „Samtal á sunnudegi" klukkan
13:00 á sunnudögum. Gestir Jóns hverju sinni
munu ræða þær þrjár bækur sem hafa haft
mest áhrif á líf þeirra. Það er mikils að vænta af
þessum þætti fyrir þá sem hafa áhuga á að
skyggnast svolítið inn í þankagang annarra.
Kona Vikunnar
Kona Vikunnar er Sveinbjörg
Pálsdóttir, guófræðingur og
verkefnisstjóri hjá samtök-
unum Barnaheill. Hún hefur undan-
farið ár stjórnað forvarnarverkefni
Barnaheilla sem lýtur að kynferðislegu
ofbeldi gegn börnum, en er um þessar
mundir að víkka starfssvið sitt hjá sam-
tökunum og tekur m.a. við rekstri For-
eldralínunnar. Sveinbjörg lagði stund á
framhaldsnám f sál-
gæslu við háskólann í
Bamberg í Þýskalandi og
starfaði við neyðarlínu
kirkjunnar í Bamberg á
meðan hún bjó þar.
Foreldralínan verður
opin alla virka daga frá
10:00- 12:00. Að auki
verður hún opin á mánu-
dagskvöldum milli 20:00
og 22:00. Nýtt símanúm-
er Foreldralínunnar verð-
ur: 561- 0600. Megintil-
gangurinn með Foreldra-
línunni er að veita ráðgjöf um hvaðeina
er snýr að uppeldi barna og styðja við
foreldra í uppeldishlutverkinu. Með því
móti telja samtökin að þau séu í raun að
stuðla að velferð barnanna.
„Öll ráðgjöf er veitt fyrst og fremst
með velferð barnsins í huga og er sátt-
máli Sameinuðu þjóðanna um réttindi
barnsins lagður þartil grundvallar, eins
og reyndar í öllu starfi samtakanna,"
segir Sveinbjörg. „Við viljum hjálpa for-
eldrum og öðrum aðstandendum til að
miðla þessum mannréttindum í uppeld-
inu en stuðla jafnframt að því að barnið
læri að finna smátt og smátt til eigin
ábyrgðar eftir því sem aldur þess og
þroski segir til um. Við munum einnig
leiðbeina um hvaða leiðir séu færar í
samfélaginu þegar þörf er fyrir sérfræði-
aðstoð. Helgi Birgisson lögmaður mun
síðan veita alla lögfræðilega ráðgjöf
eins og áður. Til Foreldralínunnar getur
fólk leitað vegna vandamála sinna, eða
til tjá sig um málefni sem snerta börn og
uppeldi þeirra. Á vegum Foreldralín-
unnar verða einnig haldin námskeið fyrir
foreldra um tiltekin efni, t.d. um stöðu
barna við skilnað, hver sé réttur þeirra
og hverjar séu skyldur foreldranna.
Hvaó er það sem þú hlakkar
mest til að takast á við í þessu
nýja starfi?
„Ég tel að áhugaverðast sé að komast
í nánari tengsl við foreldra og aðra þá
sem standa að uppeldi barna. i ráðgjaf-
ar- og fræðslustarfi gefst tækifæri til að
takast á við margar mikilvægar spurn-
ingar. Staða feðra er til að mynda mikið
að breytast. Því hefur ekki verið svarað
nógu skýrt hvert hlutverk þeirra sé í lífi
barnanna og ekki sinnt nóg um að gefa
þeim færi á að rækta það hlutverk."
Telur Sveinbjörg að foreldra-
hlutverkið hafi breyst frá því
sem áður var?
„Vissulega, sem foreldrar erum við
ekki einu uppalendur barnanna okkar,
þó að við séum auðvitað þeir mikilvæg-
ustu. Leikskólar og skólar koma mikið
inn í líf þeirra og vegna starfa okkar
erum við fjarri börnunum stóran hluta
dagins. Að mínu mati er mikilvægt að
við horfumst í augu við það og reynum í
Ijósi þess að finna leiðir m.a. til að auka
samvinnu og upplýsingaflæði milli að-
standenda barnanna og skólanna sem
þau sækja."
Hefur okkur þá farið aftur í for-
eldrahlutverkinu? Erum við ekki
jafn vel í stakk búin til að sinna
því og kynslóðin á undan?
„Við höfum margt til að bera sem kyn-
slóðin á undan hafði ekki og við höfum
glatað ýmsu sem hún hafði. Samfélagið
hefur einfaldlega breyst og við erum
stöðugt að leita leiða til að takast á við
þær breytingar og þau áhrif sem þær
hafa á hlutverk okkar sem foreldrar og
uppalendur."
Amtsbókasafnið á Akureyri
03 591 149