Vikan - 13.07.1999, Page 20
Texti: Steingeröur Steinarsdóttir
Likaminn er musteri
sálarinnar sagði góður
maður eitthvert sinn en
nú virðist líkaminn vera
að verða líkt og hver
önnur vara sem falboð-
in er til kaups hæst-
bjóðanda og keppist
hver sem betur getur
við að taka þátt í þeim
leik. Líkt og ævinlega
hafa menn misfallega
og missöluvænlega
vöru á boðstólum svo
óhjákvæmilega eru það
þeir ungu og grönnu
sem verða ofan á og fá
bestu tilboðin. Ekki er
mjög langt siðan að
talið var siðsamlegt að
hylja nekt sína sem
mest og nekt ungra
kvenna var ekki öðrum
ætluð en tilvonandi eig-
inmönnum. Nú ríkir
meira frelsi og ekki
þykir tiltökumál þótt
konur beri brjóst sín og
beini þeim upp í sólina
í sundlaugunum. Frjáls-
lyndi manna gagnvart
nektinni er af hinu góða
en öðru máli gegnir um
hvort eðlilegt og sið-
samlegt er að selja
nekt.
Lengi tíðkaðist að aug-
lýsa bíla, hjólbarða
og fleira með mynd-
um af fáklæddum konum.
Fyrir tilstilli kvennréttinda-
hreyfingarinnar lagðist sá
siður af um tíma. Nú á dög-
um er hefur hann hins vegar
verið tekinn upp að nýju og
nú er tæpast til
sú vara sem ekki
er auglýst með
tilvísun í fagra
hálfbera kroppa
eða kynlíf. Nóa
Kropp er t.d.
best í baði og
kaffi er ekki gott
nema þegar par
nýtur þess saman
í rúminu eða
utan þess, enda
segja sérfræðing-
ar í áhrifamætti
auglýsinga að
ekkert selji betur
en kynlíf og tví-
ræðar tilvísanir
til þess.
Ikönnun sem
gerð var í tilefni
af ráðstefnu um
barnavændi í
ferðamanniðnaði
kom fram að
nokkur hluti
ungra, sænskra
skólastúlkna játaði að hafa
selt líkama sinn til að fjár-
magna kaup á ýmsum tísku-
varningi. Engin þeirra var
háð eiturlyfjum og stunduðu
ekki vændi reglulega en að-
spurðar um viðhorf sín til
þess sem þær höfðu gert
töldu þær allar að ekkert
væri siðferðilega rangt við
það að nýta líkama sinn í
þeim tilgangi að verða sér út
um það sem þær töldu sig
vanta. Niðurstöður þessar
vöktu mikla athygli ráð-
stefnugesta og flestir voru
bæði undrandi og hneyksl-
aðir. Þá reis breskur lög-
reglumaður úr sæti og
spurði hvort menn væru
virkilega nægilega barnaleg-
ir til að undrast þetta. Hann
benti á að börnin okkar eru
alin upp í því viðhorfi að ytri
umgerð manneskjunnar sé
mælikvarði á manngildið og
að allt væri falt. Hvers vegna
þá að undrast að börnin
nýttu síðan þá einu vöru
sem væri þeirra eign til að
bæta stöðu sína á
markaðstorgi nú-
tímans. Hann
benti einnig á að
sænskir væru
ekki þeir einu
sem sæju dæmi
um vændi ung-
linga til þess eins
að eiga fyrir nýj-
um buxum,
breskir og
franskir lög-
gæslumenn
þekkja þetta vel.
Milljónamær-
ingar af að
leika í klám-
myndum
Tímaritið
Cosmopolitan
birti svo á dögun-
um viðtöl við
þrjár ungar kon-
ur sem allar eru
klámmynda-
leikkonur með
meiru. Þær eiga það sameig-
inlegt að hafa kosið sér
starfsferil í klámmyndaiðn-
aðnum og notað gott kaup
sitt þar til að koma undir sig
fótunum í fyrirtækjarekstri.
20 Vikan