Vikan - 13.07.1999, Side 21
Æskudýrkunin á sér skuggahliðar
Einar Gylfi Jónsson, sálfræðingur hefur
unnið mikið með ungu fólki, ekki
hvað síst ungmennum sem lent hafa í
fíkniefnaneyslu. Hann segist ekki hafa velt
fyrir sér spurningunni um hvort líkaminn sé
almennt talin söluvara á faglegum nótum.
Hann hefur þó ákveðna skoðun á því sem er
að gerast sem auðvitað er á einhvern hátt lit-
uð af faglegri þjálfun hans og þekkingu.
„Í fyrsta lagi er mikilvægt í þessu sambandi
að í allri sölumennsku er mjög mikið höfðað
til tilfinninganna á bak við viðskipti. Af
hverju kaupir maður t.d. bfl? Jú það er vegna
notagildis hans en það eru einnig ýmsar fé-
lagslegar og tilfinningalegar ástæður sem
stjórna ekki síður valinu. Auglýsingaiðnaður-
inn er orðinn rnjög háþróaður og oft veltir
maður því fyrir sér hvað er verið að auglýsa,
enda er það iðulega ekki ljóst fyrr en eitthvert
vörumerki birtist í lokin. Auglýsingaiðnaður-
inn hefur augljóslega komist að þeirri niður-
stöðu að það borgi sig að höfða til tilfinning-
anna. Ef þú kaupir þessa vöru líturðu vel út
eða ert félagslega eftirsóknarverðari ef þú átt
þetta fremur en hitt.
í öðru lagi lifum við á tímum mikillar æsku-
dýrkunnar. Að bera virðingu fyrir hinum
eldri, þekkingu þeirra og reynslu er mjög á
undanhaldi. Allir eiga að reyna að líta ung-
lega út og í viðskipta og atvinnulífinu er talið
mikilvægt að fá inn ungt fólk með ferskar
hugmyndir.
Vel heppnuð markaðsetning meðal
yngstu kynslóðarinnar
Viðskipta- og þjónustugeirinn er einnig
alltaf að reyna að færa út kvíarnar. Þess vegna
er stöðugt verið að teygja sig neðar í aldri.
Tískufatnaður fyrir mjög ungar stúlkur hefur
náð mikilli útbreiðslu og dæmi um ákaflega
vel heppnaða markaðsetningu er Ninja Turt-
les sem voru mjög vinsæl leikföng, myndbönd
og fleira ekki alls fyrir löngu. Disney fyrirtæk-
ið byrjaði á þessu en aðrir hafa náð miklu
betri árangri en þeir.
Petta eru þau viðhorf sem ríkjandi eru en
hvernig kom þau við einstaklinginn? Jú, skila-
boðin sem fólk fær í gegnum fjölmiðla er að
það eigi að vera grannt og ungt. Ef nefnd er
til dæmis kvenímyndin sem hefur verið ríkj-
andi þá er hún hálfgerður vanskapnaður.
Hvergi má safnast nokkur fita á líkamanum
nema utan um mjólkurkirtlana framan á hon-
um. Ýmis geðræn vandamál eins og átröskun-
arsjúkdómarnir búlemía og anorexía hafa
fylgt í kjölfarið en mikil fjölgun hefur orðið á
þeim.
Það er svo sem ekkert nýtt að sagt sé við
mann að maður líti mun betur út í flottum föt-
um en það hefur aldrei verið sagt á jafn öflug-
an hátt og nú. En þetta eru skuggahliðar þess
að setja æskuna á stall og sjálfsagt hefur það
ýmsar jákvæðar hliðar líka. Sumt ungt fólk
ætti að finna til meiri ábyrgðar og gerir það
eflaust."
Tvær þeirra eiga eigið kvik-
myndaframleiðslu- og dreif-
ingafyrirtæki en ein dansar
nektardans á stórum
skemmtistöðum víða í
Bandaríkjunum og notfærir
sér það hversu þekkt hún er
fyrir klámmyndaleik til að
trekkja að áhorfendur. Ein
þessara kvenna er milljóna-
mæringur aðeins 23 ára að
aldri en hinar tvær stefna að
sama marki. Allar ætla þær
að draga sig í hlé um þrítugt
og ef áfram heldur sem
horfir eru það ekki dónaleg
eftirlaun sem þær hafa að að
hverfa. Engin þeirra þriggja
er eiturlyfjaneytandi eða
með sálarör eftir erfiða
æsku. Ein er fyrrum fram-
haldsskólakennari sem taldi
kennaralaunin ekki vera
mannsæmandi og sneri sér
því að þessu.
Við íslendingar þurfum
ekki að leita langt yfir
skammt því á ýmsum
skemmtistöðum hér dansa
háskólastúdínur og jafnvel
háskólamenntaðar konur frá
fátækum, fyrrum kommún-
Vikan 21