Vikan - 13.07.1999, Page 25
n a f n i ,
hefur leitt fjölda
hjóna framhjá
erfiðum skilnaði
Þannig skapast vítahring-
ur einangrunar, árása og
undanhalds og hvorugt veit
af hverju. Fólk fer að rífast
yfir einföldustu hlutum og
tekur alltaf harða afstöðu í
málum, yfirleitt hvort gegn
öðru. Varnarmúrarnir eru
styrktir og fjarlægðin eykst.
Fólk særir hvort annað
dýpra og oftar og sárin ná
aldrei að gróa áður en næsta
bætist við. Ástin deyr.
„Ég held friðinn“
Sjaldan veldur einn þá
tveir deila. En það þarf því
ekki nema annan aðilann til
að binda enda á áralangt
stríðsástand í sambúðinni.
Fyrsta skrefið er að gera
sér grein fyrir hlutverki sínu
í ferlinu.
Bill Ferguson biður fólk
að skoða vel hug sinn og að
gera sér grein fyrir því
hvenær það sé að hella olíu
á eldinn í stað þess að
slökkva hann.
Flann segir að hver og
einn sé algerlega ábyrgur
fyrir því hvort skilnaðurinn
verður fullur af illindum eða
ekki, það sé sáraeinfalt að
komast hjá hvers konar deil-
um og særindum með því að
beita réttu hugarfari, þ.e.a.s.
að hugsa: Ég ætla ekki að
eyði-
leggja líf mitt með þessu, ég
ætla að haga mér skynsam-
lega og fara létt út úr þess-
um skilnaði. Ég held friðinn
hvað sem aðrir gera.
Þótt aðeins annar aðilinn
nái þessu takmarki geta
hjónin skilið sem vinir.
Vikan 25