Vikan - 13.07.1999, Qupperneq 29
ekki upp á hinum aðilanum?
Kannski voru þetta örlög
hans, hennar, þeirra að vera
saman og reyna að halda
hvort öðru á floti, hver veit?
Allavega var hann viss um
það að þau hefðu aldrei náð
þetta langt ef það hefði ekki
verið fyrir einhverjar sterk-
ari tilfinningar ... Skrýtið
hvernig hugsanir manns
renna út í sandinn er sólin
kemur upp og hvernig allt
verður skýrara.
„ Langar þig í ristað
brauð?“ spurði hún.
„ Já, takk. „ Hann horfði á
hana setja brauð í brauðrist-
ina. Hún hafði enn þann
sjarma sem hafði heillað
hann þá. Hann vissi að hún
vissi að hann horfði á hana
og hann vissi einnig að
henni þótti alltaf gaman
þegar hann horfði á hana.
Hún hafði lítið sem ekkert
breyst síðan þá. Hann var
mjög heppinn að eiga hana
að, hún var hans besti vinur
og hann gat sagt henni allt.
Og sama hvað hafði gengið
á að undanförnu þá bar
hann enn sömu tilfinningar
til hennar. í raun og veru var
hún rauði liturinn í gráa
hversdagsleikanum sem
honum fannst hann upplifa
hvern dag, hverja viku og
hvern mánuð sem leið á líf
hans. Hann mátti ekki við
því að missa hana, ekki
núna. Þau voru jú alveg eins
og hjón og honum fannst
hann vera orðinn of gamall
til að fara að eyðileggja allt
og þurfa að fara aftur að á
miðin að leita.
„Gjörðu svo vel,“ sagði
hún.
„Takk.“ Hann horfði á
hana borða.
„Hvenær ætlum við að
giftast?" spurði hann.
Það var andartaks
þögn. Svo leit hún upp og
brosti. Hún stóð upp og
kyssti hann. Þá horfði hún
djúpt í augu hans eins og
hún væri að leita að ein-
hverju. Kannski var hún að
leita að ást, skilningi, ein-
hverjum þarna inni sem gat
haldið utan um hana þegar
henni leið illa og einhverjum
sem var góður við hana; öllu
því sem honum fannst ekki
að hann gæti veitt henni á
sama hátt og hún honum.
„Varstu að biðja mín?“
„Það má eiginlega segja
það, ætli það ekki... eigum
við að gifta okkur?“
Þögn. Hún brosti.
„ Já, við skulum gifta okk-
ur.“
Kannski sá hún eitthvað
sem hann sá ekki í sjálfum
sér. Kannski var einhver
þarna inni sem hún þekkti
en ekki hann. Hann leit út
um gluggann og sá sólina
rísa yfir fjöllin. Hann naut
þess að finna sólargeislana
leika um andlit sitt. Lífið leil
alltaf miklu betur út í sól-
inni.
Vikan 29