Vikan - 13.07.1999, Page 61
/imVikunnar
MEÐ EINKABÍLSTJÓRA
HANDLAGINN í HOLLYWOOD
Stórstjarnan Harrison Ford er alltaf jafn hjálpsamur. Fyrir skömmu kom leikarinn auga á unga móöur
með tárin í augunum eftir að henni hafði mistekist að setja saman barnavagn fyrir tvíburana sína. Ford
bauðst til að aðstoða hana og var ekki lengi að bjarga málunum. Konan var orðin svo æst að hún
þekkti ekki stjörnuna sem var valin „kynþokkafyllsti karlmaður heirns" af tímaritinu People í fyrra. Hún
bauðst til að borga Ford fyrir ómakið. „Nei, takk,“ svaraði leikarinn sem fær 20 milljónir dollara fyrir
hverja mynd. „Svona viðgerðargrúsk er áhugamál mitt.“ Ford þykir mjög handlaginn, enda vann hann
fyrir sér sem smiður áður en hann sló í gegn í Hollywood.
DANSARINN OG GLEÐIGELLAN
Michael Flatley er oftast kallaður The Lord of
the Dance, enda er hann maðurinn á bak við
vinsældir hins írska Riverdance. Flatley, sem
erfertugur, er líka mikill kvennabósi og þær
fréttir bárust frá Bretlandi á dögunum að
hann væri nýi ástarpungurinn hennar Paulu
Yates, fyrrum eiginkonu Bobs Geldof og unn-
ustu Michaels Hutchence heitins. Paula og
Mikki kynntust í glamúrpartíi og kom strax
vel saman. „Michael var þó ekkert að flýta
sér. „Hann bauð henni út að borða áður en
hann lokkaði hana í rúmið,“ segir náinn vinur
dansarans. Flatley býr í níu svefnherbergja
lúxusvillu í London sem kostaði hann rúmar
450 milljónir króna. Sambýlingur hans er
hvuttinn Paddy.
Að þessu sinni er það ung kona, Kristín Guðlaugsdóttir,
sem fær Rós Vikunnar. Það er tilvonandi tengdamóðir henn-
ar sem sendir henni kveðju og segir að Kristín eigi svo
sannarlega skilið að fá Rós fyrir hversu vel hún hefur reynst
syni hennar í veikindum hans. ,,Hún er yndisleg stúlka,
traust og hlý. Þau kynnust í Verslunarskólanum og Kristín
hefur alla tíð staðið staðið eins og klettur við hlið kærasta
sín síðan hann veiktist. Það er svo gott að vita af ungu fólki
sem hefur þennan frábæra persónuleika og stendur sig
svona vel,“ segir hin tilvonandi tengdamóðir hennar.
Það má til gamans geta að Kristín verður 19 ára 13. júlí nk.
svo blómin verða líka eins konar afmælisgjöf þótt þau berist
varla fyrr en nokkrum dögum seinna.
Við óskum kærustuparinu alls hins besta og vonum að Krist-
ín njóti rósanna.
/lásVikunnar
Þekkir þú einhvern sem á skilið að
fá rós Vikunnar? Ef svo er, hafðu þá
samband við „Rós Vikunnar, Seljavegi 2,101
Reykjavík" og segðu okkur hvers vegna. Einhver
heppinn verður fyrir valinu og fær sendan
glæsilegan rósavönd frá Blómamiðstöðinni.
Lisa Nicole Carson leikur í tveimur af vinsæl-
ustu sjónvarpsþáttunum í dag, Ally McBeal og
Bráðavaktinni (E.R.). Lisa þarf því oft að skjót-
ast á milli upþtökuvera þegar mikið liggur við
en hún þarf að treysta á góða vini eða leigu-
bíla til að ferja sig á milli þar sem hún hefur
aldrei haft ökuréttindi. Þegar hún var ungling-
ur féll hún þrisvar á þílprófinu. í síðasta skiptið
felldi prófdómarinn hana fyrir að setja ekki
rúðuþurrkurnar á í rigningu. Nú er hún að und-
irbúa enn eina tilraun, ef hún nær að einbeita
sér. „Maður verður að hafa rétt hugarfar til að
vera bílstjóri," segir Lisa. „Ég þarf alltaf mik-
inn tíma til að komast í það hugarástand.“ Á
meðan notar hún vini og vandamenn sem
einkabílstjóra. Bróðir hennar, Wyatt, er einnig
að reyna fyrir sér sem leikari í Hollywood og
systir hennar, Lynn, býr skammt frá en hún er í
tískubransanum.