Vikan


Vikan - 08.08.2000, Blaðsíða 20

Vikan - 08.08.2000, Blaðsíða 20
Hún lifði af árás raðmorðingja Djúpt í hverrí einustu konu blundar senniiega óttinn við að verða fyrir árás nauðgara. Kona sem er ein á ferð í myrkri fer ósjálfrátt að líta um öxl verði hún hess vör að einhver gangi á eftir henni og flestar forðast dimm húsasund og fáfarnar, illa upplýstar götur. Sennilega geta pví mjög margar konur fundið til samkenndar og sam- úðar með Diönu Larrabee sem máttí bola hað að vera algjörlega á vatdi morðingja, sem hafði nauðgað og drep- íð margoft áður, í nokkrar klukkustundir. Snarræði Diönu sjálfrar og hugrekki björguðu henni frá bví að hljóta sömu örlög og kynsystur hennar höfðu áður hlotið. Diöim l.arriihee tökst ineö snar- ra'öi siiiu o” skyrri luigsim aö sleppa lit'aiuli l'ra raömoröiiigjn. Diana Larrabee vann í lítilli vefnað- arvöruverslun sem staðsett var rétt við fjölfarinn þjóðveg í Bandaríkj- unum. Kvöld nokkurt var hún að farin að búa sig undir að loka þegar maður gekk inn í búðina. Fyrir í versluninni var kona sem var að skoða sig um en Diana notaði tímann meðan hún var að gera upp hug sinn til að telja peningana í kassanum og byrja að gera hann upp. Hún rétt leit upp þegar maðurinn gekk inn og tók eftir að hann var mynd- arlegur þrátt fyrir nokkurra daga skeggbrodda og það var plástur þvert yfir nef hans. Di- ana lét hann ekki trufla sig lengi heldur hélt áfram verki sínu. Skyndilega fann hún kalt byssu- hlaup þrýstast að enni sínu og maðurinn skipaði henni að af- henda honum peningana úr kassanum. Diana heyrði í fyrstu ekki hvað hann var að biðja um og óttinn var svo mikill að hún gat aðeins stamað út úr sér hvað hann vildi. Hann endurtók hvassyrtur að hann vildi fá pen- ingana úr kassanum og sjálfri sér til mikillar undrunar spurði Diana hann þá hvort hann vildi poka undir peningana og hvort hann vildi bara seðlana eða smámyntina líka. Maðurinn svaraði því til að hann vildi ein- göngu seðlana og pokann var hann tilbúinn að þiggja. Diana setti seðlana í pokann og rétti honum sallaróleg. Hún bað hann meira að segja afsökunar á því hversu lág upphæðin væri og sagði honum að lítið hefði verið keypt í búðinni þann dag- inn. Meðan á þessu stóð barðist hjarta hennar af hræðslu en hún reyndi eftir bestu getu að setja á minnið öll útlitseinkenni mannsins. Hann var með prjónahúfu sem huldi hár hans en augun voru móbrún og hörð. Henni fannst ekkert líf leynast í þeim. Eftir að hún hafði rétt honum peningana yfir af- greiðsluborðið átti hún von á því að hann hlypi út úr búðinni en annað kom á daginn. Mað- urinn hafði ekki lokið erindi sínu í versluninni. Á valdi morðingja Hann spurði hvort einhver annar ynni í búðinni og Diana svaraði því neitandi. Hann skip- aði konunni, sem enn var stödd inni í versluninni, að koma. Di- ana komst síðar að því að hún hét Cindy Nelson en Cindy hafði ekkert tekið eftir því sem fram fór við afgreiðsluborðið heldur var hún upptekin af því að skoða efni í hillum innar í versluninni. Þegar hún gerði sér grein fyrir að hún stóð frammi fyrir vopnuðum manni varð hún skelfingu lostin. Hann beindi byssunni að konunum og skipaði þeim að fara inn í her- bergi inn af búðinni. Maðurinn tók límband upp úr vasa sínum og límdi saman hendur og fæt- ur Cindyar, því næst sneri hann sér að Diönu og skipaði henni að krjúpa á gólfið. Nötrandi hið innra barðist Diana við að halda ró sinni á yf- irborðinu en þegar maðurinn lagði hendurnar á brjóst henn- ar og strauk yfir rass hennar fann hún hryllinginn hríslast um sig. Hann klæddi hana úr skón- um og límdi saman fætur henn- ar um ökklann og síðan hélt hann áfram að gæla við líkama hennar. Diana gerði sér þá grein fyrir að hún var á valdi al- ræmds raðmorðingja sem blöð- in kölluðu 1-5 glæpamanninn því hann ók ævinlega eftir þjóð- 20 Vikan Texti: Steingerður Ste i narsdó11 i r
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.