Vikan


Vikan - 08.08.2000, Síða 22

Vikan - 08.08.2000, Síða 22
Texti og myndir Sigríður Víðis Jónsdóttir Ég man eftir Puí þegar ég lærði um andheití sem barn í skóla. Við skólaborðið sat ég nagandi blýantinn og braut heilann iengi um hvert væri andheitið við „fátækur". Á endanum gafst ég upp og spurði kennarann. fltvik betta rifjaðist upp fyrir mér á ferðalagi mínu um Zambíu fyrir nokkru. Þar hafði ég svarið ijóslifandi fyrir augunum á mér og í betta skipti burfti ég ekki að spyrja. Eða hvað, var betta svona einfalt? sinni sem hún rekur en hún sérhæfir sig í safaríferðum. Síðan fyrirtækið opnaði fyrir sex árum hefur verið nóg að gera og umsvifin sífellt að aukast. í landi þar sem hvítir eru í flestum lykilstöðum, meirihluti svartra eru bændur og meðaltekjur íbúa ekki nema tvöhundruð bandarískir dollarar á ári (u.þ.b. 15000 krónur) er staða hennar athyglisverð. Hún og maðurinn hennar eru nefnilega bæði svört. Þegar við sýndum áhuga okkar færðist hún öll í aukana og hóf að segja okkur frá umsvifum eiginmannsins en hann rekur hótel og veitingastað. Hún vildi síðan endilega sýna okkur húsið sem hún er að byggja og um þaðbilaðflytjainní. Þarmeð náði hún í nýja BMW-inn sinn og með tónlistina í botni keyrðum við á áfangastað. Meðfram veginum sáum við gangandi fólk, enda bflar í landinu fáir. Flestar konur báru böggla og brúsa á höfðinu og sumar höfðu auk þess eitt eða fleiri börn hangandi utan á sér. Inni á milli akranna grillti í strákofa og börn að leik. Flestir sem við sáum voru ekki í skóm. Þegar við keyrðum upp að húsinu seig hakan á okkur niður á bringu. Við okkur blasti feiknastórt hvítmálað hús með stórri verönd, rimlum fyrir gluggum og undurfögrum garði. Fyrir þremur árum, þegar Elizabeth keypti jörðina var ekkert á henni nema grjót en Hvorki mig né ferðafélaga minn grunaði hvað við áttum í vændum fyrsta daginn okkar í Zambíu í Afríku. Við höfðum gist í strákofa á tjaldstæði við höfuðborgina Lusaka og vorum að bíða eftir hópnum sem við ætluðum að ferðast með upp til Kenía. Þar sem við sátum og nutum veðurblíðunnar kom að máli við okkur ung kona. Hún talaði ágætis ensku og kynnti sig sem Elizabeth. Henni fannst mikið til um að við kæmurn svona langt að og vildi endilega bjóða okkur í glas. Við fengum engu um ráðið þó klukkan væri ekki nema hálftólf að morgni. Elizabeth sagði okkur afar stolt frá ferðaskrifstofunni 22 Vikan Ríkur fátæklingur eða fátækur auðjöfur?

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.