Vikan


Vikan - 08.08.2000, Page 28

Vikan - 08.08.2000, Page 28
Ævintýraleg verslunarmannahelgi 1983 Meiri helgín! Próflausir á ónýtum sendiferðabíl með stolnum númeraplötum Helgi, bróðir minn, ásamt vinum sínum beim Rúnari og Ragnari, lenti í otrúlegustu ævin- týrum verslunar- mannahelgína 1983. Að sjálf- góðu einu saman. Helga og vini hans langaði að fara í skemmtilegt ferðalag þessa verslunarmannahelgi en ýmis vandkvæði voru þar á. í fyrsta lagi voru þeir bara 15 og 16 ára gamlir og máttu ekki aka bíl og í öðru lagi vissu þeir ekki um neinn á bíl sem var á leið út úr bænum og hafði pláss fyrir þá þrjá. Þá datt þeim það „snjallræði" í hug að bjarga málunum bara sjálfir, festu kaup á hræódýr- um sendiferðabíl (VW Rúgbrauð '67) og ákváðu að aka sjálfir þótt þeir hefðu ekki aldur til. Foreldrarnir vissu ekki betur en þeir færu í þetta ferðalag ásamt ein- hverjum eldri vinum sem hefðu bílpróf, ella hefðu þeir ekki fengið að fara. Piltarnir reyndu að gera við bílinn en viðgerðin fólst aðallega í því að sauma gluggatjöld fyrir hliðar- og afturgluggana og skreyta bílinn á notalegan hátt. Þeir ætluðu að gista í bílnum þessa helgi og vildu að þeim liði vel í honum. Bíldruslan var óskoðuð og ekki á númerum en piltarnir björguðu því með því að stela skoðunarmiða af bíl móður eins þeirra og númerunum stálu þeir af stórum krana sem var jarðfastur niðri í Sundahöfn. Þeir fylltu bílinn af góðum mat og landa og svo var lagt í hann! Á föstudeginum var hald- ið til Þingvalla. Ferðin þang- að gekk stóráfallalaust og drukku þeir stíft um kvöldið og langt fram á nótt. Strák- unum fannst fjörið ekki nægi- legt á Þingvöllum og ákváðu að fara Kaldadalinn yfir í Húsafell. Þá hófust vandræð- in fyrir alvöru. Vegurinn var lélegur og ekki bætti úr skák að það rigndi. Bíllinn drap á sér í hverjum einasta polli sem þeir lentu í og ferðin sem átti að taka innan við tvo klukkutíma stóð í heila fimm eða sex tíma. Þegar þeir voru loksins komnir í Húsafell ákváðu þeir að eyða restinni af helg- inni þar því þeir treystu því ekki að bíllinn héldist í heilu lagi mikið lengur. Laugar- dagskvöldinu var eytt á svip- aðan hátt og þeir drukku all- ir stíft það kvöld og lögðust svo lil hvílu í bílnum. Á sunnudagsmorgninum þegar þeir stauluðust út úr bílnum var lögreglan á vappi um svæðið. Strákunum varð um og ó, töluðu um að fara af svæðinu og Helgi bróðir gerði þau mistök að reyna að koma sendibílnum í gang. Auðvitað laðaði það hjálpfúsa Borgar- neslögregluna beint að þeim. Tveir ungir lögreglumenn ýttu bflnum af stað en allar til- raunir til að ræsa hann urðu árangurslausar. Gamalreynd- ur lögreglumaður kom þarna að og fannst Helgi og vinir hans virka frekar ungir og ekki alsgáðir. Hann lét Helga blása í blöðru og kom í ljós að hann var yfir mörkum. Helgi sagðist vera nýorðinn 17 ára og gaf upp falskt nafn sem var samviskulega skráð niður ásamt númeri bílsins. Lögreglan hundskammaði hann þegar hann sagðist hafa týnt ökuskírteininu sínu. Strákarnir lugu því að 18 ára vinur þeirra væri hinn eigin- legi ökumaður bílsins og hefði lent á sjens. Hann væri inni í tjaldi hjá einhverri dömu núna en hann væri með ökuskírteini og væri auk þess mikill bindindismaður. Lög- reglan trúði þessu en sagði Helga að hann slyppi ekki við sekt og sviptingu ökuskírtein- is því ekki mætti setjast ölvað- ur undir stýri og reyna að starta bíl, hvað þá aka hon- um. Strákarnir djömmuðu og djúsuðu fram á mánudags- morgun en Helgi þorði ekki annað en að hætta drykkju síðdegis á sunnudegi til að geta ekið í bæinn á mánudeg- inum. Hann skemmti sér ágætlega þrátt fyrir það og um hádegi á mánudag drösl- aði hann Rúnari og Ragnari sögðu nota ég ekki rétt nöfn þeirra því Deír eru allir ágætlega Dekktir menn í Díóðfélagínu í dag og pað af Strákunum varð um og ó, töluðu um að fara af svæð- inu og Helgi bróðir gerði þau mistök að reyna að koma sendíbílnum í gang. Auðvítað laðaði bað hjálpfúsa Borgar- neslögregluna beint að beím. Tveir ungir lögreglu- menn ýttu bílnum af stað en allar tilraunir til að ræsa hann urðu árangurslausar. 28 Vikan

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.