Vikan


Vikan - 08.08.2000, Page 50

Vikan - 08.08.2000, Page 50
 Rómantík frá Ralph Lauren Hvenær lokaðir þú þig síðast af og leyfð- ir líkamanum og huganum að njóta verð- skuldaðrar hvíldar? Ef það er orðið langt síðan, af hverju ekki að dekra við sjálf- an sig og njóta nýju Romance baðlínunn- ar frá Ralph Lauren? Til að tryggja að allt fari á þann veg sem þú vilt, byrjaðu þá á að lækka í símsvaranum og biddu eigin- manninn að hafa ofan af fyrir börnunum á meðan þú lokar þig af í a.m.k. hálftíma. Kveiktu á ilmkertum á baðherberginu, veldu mýksta og stærsta handklæðið þitt og góða hlýja baðsloppinn. Ef þess er ein- hver kostur taktu þá uppáhaldstónlistina þína rneö þér inn á baðherbergið. Tæmdu hugann og hugsaðu alls ekki um það sem bíöur þín. Vinnan, þvotturinn, þrifin og jrnin geta beðið, þú ert of mikilvæg til að tleymast í dagsins önn. Það er ekki jálfselska að rækta sjálfan sig heldur nauðsyn og mundu að því betur sem þér líður því meira gefur þú af þér. Fylltu nú aðið og bættu nokkrum dropum af Rom- mce baðolíunni í vatnið og andaðu að þér y ndislegum ilminum. Taktu eftir hvað olían gerir húðina mjúka. Slakaðu vel á og ekki flýta þér að þvo þér. Helltu Romance bað og turtugeli í lófann og berðu vel á allan líkamann eða strjúktu hann með þvottastykki. Hlaupið skol- ast auðveldlega af en skilur húðina eftir mjúka, hlýja, tandurhreina og angandi. Það mun koma öllum á óvart hve róandi og slakandi það er að láta eftir sér hálftíma sem þennan og það skilar sér í aukinni vellíðan í marga daga á eftir. 1 1 Saklaus engill, nýi ilmurinn frá Thierry Mugler, kemur í himinbláu úða- glasi og minnir litasamsetning þess á léttar skýjaslæður á heiðurn himni. Angel Innocent var þróað með írnynd Pólstjörnunnar í huga og er hún á lokinu umlukin geislabaug úr silfri. Þetta er til að undirstrika ferskleika og hlýja viðkvæmni ilmsins. Angel ilmurinn frá Thierry Mugler var djörf sköpun sem ávann sér miklar vinsældir um allan heim og Angel Innocent er ný túlkun þeim ilmi. Angel Innocent er besti og viðkvæm- asti hluti Angel ilmsins sem aðdáendur geta látið sig dreyma um að bera aðeins á sig við sérstök tækifæri þegar áhugi vaknar á því að draga upp mynd af sjálfum sér sem saklausum engli. En Angel Innocent er hrekkjóttur engill, gáskafullur en um leið fullur af viðkvæmni og unaði. Ilmurinn spilar á fjarstætt kveneðli, blíður en voldugur og í senn sak- laus og holdlegur, engilfagur og djöfullegur. Angan af andstæðum sem sannarlega undirstrikar óviðjafnanleg- an persónuleika og ljær honum glæsilega og austræna hlýju Klíkt og töfrandi kvenverur ___ ~ úr Þúsund og einni nótt hafa til að bera. Angel Inn- ocent er blanda af bergamot, helional og mandarínum sem gefa hreinleika og ferskleika, hun- ang, sólber, passíuávöxt- ur og ber klungur- jurta bæta við mildri glað- værð sem und- irstrikuð er enn frekar með léttleika sykur- möndlunnar og krafti am- ber musk olí- unnar. Angel Innocent er nýr gáskafullur stíll innblásinn af ógleyman- legum þokka Angel ilm- vatnsins. Vikan

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.