Vikan


Vikan - 08.08.2000, Síða 54

Vikan - 08.08.2000, Síða 54
Allt leyfilegt í ástum og stríðiP Kæra Sígríður Ég er þrítug kona fædd í maí áriðl970. Mitt vandamál hljómar eflaust ekki vel. Þannig er mál með vexti að systir mín er búin að vera lengi alvarlega veik á sjúkra- húsi. Þegar hún veiktist þá ákvað ég að létta undir með mági mínum með börnin þeirra. Ég fór alltaf eftir vinnu til hans til þess að hugsa um heimilishaldið. Kvöld eitt ákváðum við að taka okkur vídeóspólu og þannig byrjaði þetta. Við byrjuðum að kyss- ast og það endaði með því að við sváfum saman. Eftir þetta kvöld sváfum við reglulega saman. Við gættum þess þó að börnin yrðu einskis vör. Tíminn leið og systir mín varð betri og nú er komið að því að læknarnir segja að hún sé til- búin að koma heim. Ég veit ekkert hvað ég á að gera. Þessi litla veröld mín virðist vera að hrynja og ég finn að ég vil ekki missa þetta sem við erum búin að eiga síðastliðna mánuði, því að ég veit að ég elska hann. Ég veit að það getur ekkert orðið á milli okkar. Mig langar til þess að segja frá hvernig mér líður en veit að það myndi eyðileggja líf allt of margra. Hvernig á ég að komast í gegnum þetta og hvernig á ég að geta umgeng- ist þau? Með ósk utn svar, PIPPA Pippa Ég veit nú ekki hversu vina- lega ég get svarað þessu bréfi. Ég er ekki alveg viss um að ég myndi vilja vera systir þín. Ekki veit ég hvort þú hefur haldið að þetta væri hluti af heimilishaldinu. Þar sem þú skrifar að þú vitir að það geti ekkert orðið á milli ykkar, þá veit ég ekki af hverju þú skrifar mér. Það er sagt að allt sé leyfi- legt í ástum og stríði en við S ikunnar erum líklega hvorki sammála því að það hefði átt að útrýma gyðingum né að maður eigi að sofa hjá fjölskyldumeðlim- um. Þetta er gjörsamlega sið- laust. Mér finnst þessi maður hreint ekki þess virði að vera í fjölskyldunni. Þú verður fyrst og fremst að reyna að fyrirgefa sjálfri þér því þá fyrirgefur umhverfið þér. Þið gætuð aldrei átt ham- ingjusamt líf með þetta á bak- inu. Ég hef þá trú að þú mun- ir hitta mann sem er ætlaður þér og engum öðrum. Og að lokum: Við erum það sem við hugsum! Sigríður Klingenberg Bryndís Jónasdóttir vill koma á framfæri innilegu þakklæti til hárgreiðslu- konunnar sinnar, Ingunnar Hannesdóttur á Hársetrinu, Æsufelli 6 í Reykja- vík. Fyrr á þessu ári var Bryndís á leið til Ingunnar í hárgreiðslu en datt illa á bílaplaninu fyrir utan og varð holdvot. Mikil hálka, úrkoma og hvassviðri var þennan dag og mesta mildi að ekki fór verr. Móttökur Ingunnar voru yndis- legar. Ingunn hlúði að Bryndísi, þurrkaði henni með handklæði, gaf henni kaffi, þurr föt og ók henni síðan heim eftir að hafa gert hár hennar glæsilegt að vanda. Vikan sendir Ingunni á Hársetrinu blómvönd og óskar henni góðs gengis í framtíðinni. Rós Vlkunnar Þekkir þú einhvern sem á skilið að fá rós Vikunnar? Ef svo er, hafðu þá samband við „Rós Vikunnar, Seljavegi 2,121 Reykjavík" og segðu okkur hvers vegna. Einhver heppinn verður fyrir valinu og fær sendan glæsilegan rósavönd frá GRÆNUM MARKAÐI. MAEKAÐUE -látið blómin tala 54 Vikan

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.