Vikan - 08.08.2000, Page 57
konu hans. Æska hennar var
hamingjurík og hún þótti vera
falleg og eðlileg á allan hátt
en nokkuð feimin. Þrátt fyrir
að hafa alist upp við ríkidæmi
blandaði hún geði við alla.
Hún þótti frá upphafi vera
sterkur persónuleiki og með
eindæmum skyldurækin. Það
tók Albert þrjú ár að sann-
færa hana um að giftast sér.
Hana langaði ekki að verða
meðlimur bresku konungs-
fjölskyldunnar, með öllu því
ófrelsi sem því fylgir, og hafn-
aði hún bónorði hans tvisvar.
Loksins tókst honum að fá
hana upp að altarinu og hef-
ur hann alla tíð verið talinn
lánsamur að hafa eignast slík-
an kvenkost sem hana. Elísa-
bet kallaði mann sinn alltaf
Berta og hjálpaði honum við
að yfirstíga sjúklega feimni.
Hún varð til þess að sjálfs-
traust hans jókst og stam hans
minnkaði þegar hún sendi
hann til talkennara.
Þegar eldri bróðir Alberts,
Játvarður VIII, afsalaði sér
konungdómi þann 10. desem-
ber 1936, eftir aðeins 327
daga valdatíma, varð Berti
konungur og tók sér nafnið
Georg VI. Litla hertogaynjan
hans varð Elísabet drottning.
Hún fyrirgaf mági sínum
aldrei að hafa afsalað sér
krúnunni til að kvænast hinni
tvífráskildu Wallis Simpson
því Elísabetu langaði ekki til
að verða drottning. Konung-
urinn fyrrverandi fékk titilinn
hertoginn af Windsor og
Wallis varð þá hertogaynjan
af Windsor. Þrátt fyrir það
kallaði Elísabet hana aldrei
annað en „þessa konu“.
Nýja drottningin endur-
vakti tiltrú almennings á kon-
ungdæminu. Hún var ákveð-
in í að færa það nær almenn-
ingi. Hún veitti fjölmiðlum
aðgang að fjölskyldulífi
þeirra og bauð ljósmyndurum
að mynda þau hjónin ásamt
dætrum þeirra, prinsessunum
Elísabetu og Margréti.
„Börnin fara huergi!"
Konungsfjölskyldan varð
líkast til einna vinsælust á
stríðsárunum þegar Elísabet
drottning var spurð hvort
ekki væri best að senda ríkis-
Húrra, ég fæ líka skeyti!
Þegar drottingarmóöirin var
spurö að því hvaö þaö væri sem
hún hlakkaði mest til á afmælinu
sínu svaraði hún: „Aö fá heilla-
óskaskeyti frá dóttur minni.“
Drottningin sendir nefnilega öll-
um þegnum sínum skeyti þegar
þeir ná 100 ára aldrinum, meira
aö segja hinni stórmerkilegu
móöursinni.
erfingjann, Elísabetu, og syst-
ur hennar, Margréti, til
Kanada en börn margra fyrir-
manna í Evrópu höfðu verið
send úr landi. Svar drottning-
ar lifir enn í minningu þjóðar-
innar: „Börnin fara ekki án
mín, ég fer ekki án konungs
og konungurinn, hann fer
hvergi." Þarna sýndi hún að
konungsfjölskyldan vildi
standa við hlið þjóðarinnar í
gegnum allt. Elísabet
prinsessa og Margrét voru þó
sendar til Windsor kastala í
öryggisskyni. Önnur setning
Elísabetar drottningarmóður
hafði sterk áhrif á breskan al-
menning en þegar Þjóðverj-
ar höfðu sprengt upp hluta
Buckinghamhallarsagði hún:
„Nú getum við horft framan
í Austurbæingana án þess að
skammast okkar,“ en Austur-
bær Lundúna fór einna verst
út úr sprengjuárásum Þjóð-
verja. Þau hjónin vörðu
stríðstímanum meðal annars
í að heimsækja þá sem höfðu
farið illa út úr átökunum. El-
ísabet uppörvaði þegna sína
svo mikið að Hitler kallaði
hana hættulegustu konu Evr-
ópu. Hugrekki hennar hjálp-
aði við að halda kónginum og
þegnunum saman. Þeir voru
sem eitt.
Þegar Berti hennar, Georg
VI, lést úr lungnakrabba-
meini árið 1952 sagði drottn-
ing hann hafa látist langt um
aldur fram vegna vinnutengd-
ar streitu. Hún bauð ekki
eldri bróður hans, hertogan-
um af Windsor, að
koma í erfisdrykkj-
una (hádegisverðar-
boð fyrir þá allra
nánustu). Hún
kenndi afsögn hans
um ótímabæran
dauða manns síns.
Hún dró sig í hlé í
nokkra mánuði og
varð bitur og þung-
lynd. Þegar dóttir
hennar, Elísabet II,
var krýnd sem
drottning, nokkrum
mánuðum síðar,
hafði hún náð sér að
fullu. Titill hennar
varð Elísabet
drottning, drottn-
ingarmóðir. Fólk
hafði mikla samúð
með henni en aðrir
vorkenndu dóttur
hennar sem varð ___________
drottning aðeins 24 ára að
aldri og sögðu að ævi hennar
væri í raun lokið og hennar
biði opinber þjónusta það
sem eftir væri. Hún og Fil-
íppus, eiginmaður hennar,
höfðu nýlega endurinnréttað
heimili sitt í Clarence House
í Lundúnum en þau höfðu
fengið fjármagn frá ríkinu til
að búa húsið nútímahitalögn-
um og öðrum þægindum. Þær
mæðgur skiptu um heimili við
andlát konungs og Elísabet II
Hún skilur allt!
Drottningarmóðirin nær afar vel
til almennings. Hún hefur oft
heimsótt sjúkrahús og aðrar
stofnanir og hughreystir þar
veika og þjáða. Hún notar alltaf
sömu orðin til huggunar og taut-
ar: „Ég skil, ég skil,“ á meðan
hún strýkur handlegg einhvers
sjúklingsins blíölega. Þetta virk-
ar alveg ótrúlega vel á fólk því
þaö veit aö sú gamla hefur upp-
lifað sitt af hverju sjálf.
gat hafið nýja baráttu fyrir
fjármögnun til að koma upp
nútímaþægindum í Bucking-
ham höll.
Fyrir nokkrum árum var
sagt að breska konungsfjöl-
skyldan kostaði Breta meira
Elísabef drottningarmóðir, 25
ára gömul, grunlaus um að hún
yrði drottning Breta eftir 11 ár.
en allar konungsfjölskyldur í
Evrópu kostuðu til samans.
Þess má reyndar geta að þess-
ir peningar koma í stórum stíl
til baka til ríkisins, meðal
annars með ferðamönnum.
Dauðinn undirbúinn
Fyrir mörgum, mörgum
árum festu stjórnendur
breskra sjónvarpsfréttastofa
kaup á svörtum hálsbindum.
Þau átti að setja upp þegar til-
kynnt yrði lát drottningar-
móðurinnar. Einnig er löngu
búið að taka saman æviágrip
hennar til að birta sjónvarps-
áhorfendum við sama tæki-
færi. Sú gamla tórir enn og
bindin áðurnefndu komu að
góðum notum þegar Díana
prinsessa lést í bílslysi fyrir
þremur árum. Drottningar-
móðirin heimsótti nýlega
Westminster Abbey til að at-
huga hvernig gengi að undir-
búa útför hennar. Þegar henni
voru sýnd kertin sem á að
brenna á altarinu við kistu
hennar sagði hún: „Mér finn-
ast þessi kerti ekki falleg, er
ykkur sama þótt ég komi með
mín eigin?“
Vikan 57